
Bloodbath Arena, fyrsta niðurhals efnið fyrir uppvakninga leikinn Dead Island mun koma út þann 22. Nóvember næsta eftir talsverða töf.
DLC pakkinn fer í loftið á PC, PlayStation 3 and Xbox 360. Í Evrópu, munu PS3 eigendur fá DLC Miðvikudaginn 23. Nóv.
Bloodbath Arena er byggt upp ekki ólíkt Horde Mode úr Gears of War leikjunum og inniheldur fjögur borð fyrir einmennings og Co-op spilun.
Það bætist ennig við nýtt vopn, heila bylgju sprengjann, og bætir við nýjum stigaborðum. Reynslustig og hlutir sem fást í Bloodbath Arena munu vera færanlegir yfir í sögu leiksins.
Pakkinn átti að koma út upprunalega í haust stuttu eftir að leikurinn kom út í byrjun September og var mjög skemmtilegur en var með frekar mikið af villum sem gátu ruglað í leikjum margra. Framleiðandi leiksins tók þá rökréttu ákvörðun um að seinka DLC pakkanum og vinna að plástrum fyrir leikinn se kom út fyrir stutt.
Kv.
GameTíví





Nýleg comment