StarCraft II: Wings of Liberty er að koma út í kvöld og eru spenntir leikjaspilarar að nálgast leikinn í tölvuleikjabúðum landsins í kvöld og fara spenntir heim með annað hvort venjulegu útgáfuna eða flottu úber útgáfuna sem við höfum minnst hérna á síðunni áður.
Það er talið að allt í 5 Miljón eintök af leiknum gætu selst strax í byrjun um víðan heim og álagið á Battle.net kerfið nýja og endurbætta sem fer í gangið á sama tíma og leikurinn ætti að verða talsvert, svo það gæti þurft að sýna smá þolinmæði ef að álagið er mikið. Til samanburðar seldust 3.8 Miljón eintök af GTA IV á fyrsta degi og Call of Duty: Modern Warfare 2 seldist í 4.7 Miljón eintökum á degi 1 sem er ótrúlegt, svo spurning hvað StarCraft II mun gera?
Suður-Kórea og StarCraft er sérstak fyrirbæri og nýtur leikurinn þar gríðalegara vinsældra þrátt fyrir að vera þetta gamall, ef að einhver tímann ætti að gefa frí í vinnunni þarna útaf tölvuleik er það ekki klárlega núna?
Á meðan það er beðið eftir að Battle.net netþjónarnir fara í loftið á miðnætti og leikurinn er að hlaðast inní vélina er ekki við hæfi að kíkja á fínt kynningar myndband sem fer í gegnum einmenningspart leiksins aðeins og hvað verður hægt að gera?
Það verður gaman að heyra í ykkur GameTíví lesendur hvernig ykkur líst á leikinn hérna á síðunni eða á Facebook síðunni okkar.
Við hérna hjá GameTíví erum að telja niður tímana í þann 27.Júlí þegar dýrið StarCraft II kemur í búðir 12 árum eftir að StarCraft I kom út! Það í tölvubransanum er gríðalegur tími og svo mikið hefur gerst síðan. Heilu kynslóðir leikjavéla og tækninýjunga hefur komið fram og horfið aftur. Blizzard fyrirtækinu til stuðnings, hafa þeir reyndar ekki verið nema að vinna að StarCraft II að viti síðan 2005 og var leikurinn staðfestur fyrst árið 2007 á StarCraft kynningu í Suður-Kóreu þar sem að leikjaserían nýtur gríðalegrar hylli.
Þegar leikurinn kemur loksins í hillur búða eftir helgi verður fyrir flesta hægt að velja á milli þess að fá leikinn bara stakann eða í ofur flottri Collectors Edition pakka sem minnir á eldri pakkana fyrir World of WarCraft fyrir þá sem hafa séð þau stóru dýr. Blizzard er ekki eitt af þessum fyrirtækjum sem gerir eitthvað hálfa leiðina. Svo okkur langaði að deila með ykkur Youtube vídeói sem við rákumst á Þýskri síðu og þó að við séum ekki sleipir í tungumálinu skiljum við vel Nörda tungumálið og eigum auðvellt með að dáðst af pakkanum og innihaldinu. Eins og áður er þetta ekki gefins og er þessi pakki á 100$ í Bandaríkjunum og leikurinn sjálfur á 60$. Engin verð hafa verið 100% nelgd niður hérna heima, en Elko er með leikinn stakann og Collectors á forsölu á vef sínum. Það ætti að skýrast eftir helgina hvað hin fyrirtækin gera í sambandi við verð ofl.
Það helsta sem má nefna í pakkanum er; DVD diskur um gerð leiksins, 176 bls bók með myndum úr hönnum leiksins, 2GB USB flash kort í formi dog tag frá Jim Raynor og kemur með StarCraft I og Brood War aukapakkanum, síðan er CD geisladiskur með 14 þéttum lögum úr leiknum ásamt aukalögum, síðan StarCraft #O teiknimyndasaga sem er forveri teiknimyndablaða sem er verið að vinna að og að lokum auka Battle.net efni sem er eingöngu fyrir þessa útgáfu.
What follows is a checklist for the Collector’s Edition contents, as provided by Blizzard:
– The Art of StarCraft II: Wings of Liberty, a 176-page book featuring artwork from the game
– An exclusive 2GB USB flash drive replica of Jim Raynor’s dog tag, which comes preloaded with the original StarCraft and the StarCraft: Brood War(R) expansion set
– A behind-the-scenes DVD containing over an hour of developer interviews, cinematics with director’s commentary, and more
– The official StarCraft II: Wings of Liberty soundtrack CD, containing 14 epic tracks from the game along with exclusive bonus tracks
– StarCraft comic book issue #0, a prequel to the comic series
– A World of Warcraft(R) mini Thor in-game pet that can be applied to all World of Warcraft characters on a single Battle.net account
– Exclusive Battle.net downloadable content, including special portraits for your Battle.net profile, decals to customize your units in-game, and a visually unique version of the terran Thor unit
Það styttist óðum í að StarCraft II komi út nánar Þriðjudaginn 27 Júlí og Blizzard er í óðaönn að undirbúa sig undir hasarinn sem fylgir útgáfu eins stærsta leik ársins sem er viðbúið að muni seljast í Miljónum eintaka. StarCraft II Betan sem er búin að rúlla síðustu vikurnar mun ljúka 19. Júlí og verða netþjónarnir teknir niður og byrjað að undirbúa þá fyrir útgáfu leiksins.
Framleiðsla StarCraft II hefur tekið nokkuð mörg ár og samkvæmt frétt á Wall Street Journal hefur kostnaðurinn á leiknum farið uppí 100 Miljón Dollara og hinn umdeildi Bobby Kotick sagt að Activision telur sig fá í kringum 500 Miljón til 1 Biljón Dollara fyrri leikinn og síðan tvenna aukapakka sem líklega verða seldir sem stakir leikir svo það er ljóst að það er nóg af peningum á leiðinni á kassann handa Activision.
The Wall Street Journal puts StarCraft II’s development costs above the $100 million mark, but Activision Blizzard boss Bobby Kotick says the investment will eventually bring in between $500 million and a billion dollars for the publisher. In profit. Yes, building a new StarCraft game and an all-new Battle.net service takes money to make money, but with international subscription fees, a $60 retail price in the States and two more expansions in the works, a billion starts to sound conservative.
Perhaps the most positive sign of success for Blizzard and StarCraft II? “We’ve brought in a lot of new players in the beta testing who’ve been playing ‘World of Warcraft’ but have never tried Starcraft,” Blizzard president Mike Morhaime tells the Journal.
Blizzard hefur gefið út loka vélbúnaðarkröfurnar fyrir StarCraft II bæði fyrir PC og Mac. Svo það er gott að skoða þetta nánar og sjá hvernig vélin kemur út, þær eru reyndar mjög sanngjarnar
PC Requirements
PC Minimum System Requirements*:
Windows® XP/Windows Vista®/Windows® 7 (Updated with the latest Service Packs) with DirectX® 9.0c
2.6 GHz Pentium® IV or equivalent AMD Athlon® processor
128 MB PCIe NVIDIA® GeForce® 6600 GT or ATI Radeon® 9800 PRO video card or better
12 GB available HD space
1 GB RAM (1.5 GB required for Windows Vista®/Windows® 7 users)
DVD-ROM drive
Broadband Internet connection
1024X720 minimum display resolution
PC Recommended System Requirements:
Windows Vista®/Windows® 7
Dual Core 2.4Ghz Processor
2 GB RAM
512 MB NVIDIA® GeForce® 8800 GTX or ATI Radeon® HD 3870 or better
*Note: Due to potential programming changes, the Minimum System Requirements for this game may change over time.
Mac Requirements
Mac Minimum System Requirements:
Mac® OS X 10.5.8, 10.6.2 or newer
Intel® Processor
NVIDIA® GeForce® 8600M GT or ATI Radeon® X1600 or better
12 GB available HD space
2 GB Ram
DVD-ROM drive
Broadband Internet connection
1024X720 minimum display resolution
Mac Recommended System Requirements:
Intel® Core 2 Duo processor
4 GB system RAM
NVIDIA® GeForce® 9600M GT or ATI Radeon® HD 4670 or better
Beta prófanir á StarCraft II, nýjasta herkænskuleiks snillinganna hjá Blizzard Entertainment, hófst í gærkvöldi, og eru fyrstu heppnu þátttakendurnir nú þegar byrjaðir að spila.
Þá hafa þeir einnig loksins staðfest RÉTTAR lágmarks vélbúnaðarkröfur fyrir StarCraft II betuna, og er líklegt að kröfur fyrir lokaútgáfuna verði á svipuðu róli þegar leikurinn kemur út síðar á árinu. Þær eru:
Windows XP SP3/Vista SP1/Windows 7
2.2 Ghz Pentium IV or equivalent AMD Athlon processor
1 GB system RAM/1.5 GB for Vista and Windows 7
128 MB NVidia GeForce 6600 GT/ATI Radeon 9800 PRO video card
1024×768 minimum display resolution
4 GB free hard space (Beta)
Broadband connection
Það þarf því ekki glænýja tölvu til þess að keyra þennan eftirsóknarverða leik.
Fleiri boðskort í betuna verða send út á næstu dögum og vikum – verður þú ein(n) hinna heppnu?
Þótt World of WarCraft sé vinsælasti MMO leikur í hinum vestræna heimi þýðir það ekki að það sé vegna þess að allir sem hann spila verði háðir honum. Engin fjölgun hefur orðið í hópi spilenda á rúmu ári og stendur talan því enn í 11.5 milljónum. Samkvæmt Mike Morhaime, forstjóra BlizzardEntertainment, komast innan við 30% allra spilara yfir level 10, sem bendir til þess að það sé mikil spilendavelta, þ.e. að fólk sé sífellt að byrja og hætta.
Í World of WarCraft: Cataclysm eru starfsmenn Blizzard búnir að endurskipuleggja alla leveling kúrvuna sína svo það verður mun einfaldara og auðveldara að levela persónur sínar, og með því vonast þeir væntanlega til þess að fá fólk til að snúa til baka ásamt því að fá nýja spilara til þess að halda áfram að spila. Cataclysm aukapakkinn verður gefinn út í seinna á árinu, en þeir sem ekki kaupa aukapakkann fá þó að njóta nýju útgáfanna af gömlu svæðunum.
Þá minntist herra Morhaime á sama tíma á StarCraft II betuna, en hún hefst síðar í þessum mánuði. Eru ekki allir búnir að sækja um?
[Uppfært: Svo virðist sem einhver hafi ýtt á vitlausan takka hjá Blizzard því starfsmenn fyrirtækisins vinna nú hörðum höndum að því að segja öllum að þetta séu ekki réttar vélbúnaðarkröfur. Úps!]
Það er ekki spurning að StarCraft 2 verður einn stærsti leikur ársins og eflaust eru ótal margir íslendingar sem bíða spenntir eftir að fá gripinn í hendurnar. Ef það er einhver sem óttast að tölvan sín ráði ekki við gripinn þá getur hinn sami andað léttar, því leikurinn keyrir jafnt á nýjum vélum sem gömlum. Blizzard hafa birt vélbúnaðarkröfurnar fyrir beta útgáfu StarCraft II, en þar sem leikurinn er enn í framleiðslu gætu tölurnar hér fyrir neðan breyst. Það er þó ólíklegt að breytingin verði mjög mikil þar sem fyrirtækið er vel þekkt fyrir að gera leiki með lágar vélbúnaðarkröfur.
Lágmarksvélbúnaðarkröfur Örgjörvi: Intel Pentium IV 1.3GHz, AMD XP 1500+
Stýrikerfi: Windows XP / XP64 (Service Pack 3), Windows Vista / Vista64 (service Pack 1), Windows 7 Home Premium
Innra minni: (Windows XP) 512mb, (Windows Vista) 1024mb, (Windows 7) 1024mb
Skjákort: 3D graphics processor with Hardware Transform and Lighting with 32 MB VRAM such as an ATI Radeon 7200 or NVIDIA GeForce 2 class card or better
Pláss á harða disk: 15GB
DirectX: DirectX9.0c
Mælt með…
Örgjörvi: Intel Pentium D, AMD 64 X2
Stýrikerfi: Windows XP / XP64 (Service Pack 3), Windows Vista / Vista64 (service Pack 1), Windows 7 Home Premium
Innra minni: (Windows XP) 1024mb, (Windows Vista) 2048mb, (Windows 7) 2048mb
Skjákort: 3D graphics processor with Vertex and Pixel Shader capability with 128 MB VRAM such as an ATI Radeon X1600 or NVIDIA GeForce 7600 GT class card or better
Pláss á harða disk: 15GB
DirectX: DirectX9.0c
Blizzard fyrirtækið hefur verið þekkt í gegnum tíðina fyrir það að hanna eingöngu góða leiki fyrir aðdáendur sína. Hvort sem það eru hlutverka- eða herkænskuleikir að þá hafa þeir ávallt farið skrefi lengra en önnur fyrirtæki sem hefur skilað þeim mjög góðum árangri.
Um þessar mundir eru þeir að vinna hörðum höndum að hlutverkaleiknum Strarcraft II sem virðist aldrei ætla að koma út. Leiknum hefur verið frestað nokkuð oft og er búist við því að hann detti inn einhvern tíman á næsta ári. Þó svo að biðin taki langan tíma að þá er hún ávallt þess virði að bíða eftir. Því lengur sem biðin verður, því betri verður leikurinn.
Núna um helgina komu út tvö glæný myndbönd úr Starcraft II og líta þau bæði ótrúlega vel út. Það er klárt mál að Blizzard ætla sér stóra hluti með þessum leik, enda býst maður ekki við öðru þar sem fyrri leikurinn er talinn vera einn besti herkænskuleikur sem komið hefur út.
Nýleg comment