
E3 leikjasýningunni fyrir árið 2011 er lokið og það mun taka nokkurn tíma að fara í gegnum allar þær fréttir, kynningar, myndbönd og annað sem kemur útúr svona stóru dæmi eins og E3 er árlega.
Fjörið byrjaði fyrir viku þegar að Microsoft hélt kynninguna sýna og ræddi hvað væri framundan hjá þeim út árið og yfir í það næsta. Kinect hreyfitæknin fékk talsverða kynningu og það er augljóst að þeir ætli sér enn stærri hluti þetta árið og að bæta við þær 10. Miljónir Kinect hreyfiskynjara sem eru á markaðnum eins og er.
Halo gamli er að fá flotta HD endurgerð ásamt því að Halo 4 var stuttlega kynntur og á að vera hluti af nýrri trilogíu. Minecraft mætir ásamt ásamt Gears of War 3, Forza 4 og Dance Central 2. Það var í raun ekki mikið um leiki eingöngu fyrir Xbox 360, heldur átti 3rd party markaðurinn stærsta hlusta þess sem kynnt var. Þetta var mjög örugg kynning, en ekki neitt stórt eða grípandi.
EA og Ubisoft héldu kynningar sem við fjölluðum um og má finna nánari upplýsingar um þær hérna og hér. Báðir útgefendurnir voru almennt mjög góðir og kom okkur einna skemmtilegast á óvart að Ubisoft þótt skrítnir væru, voru ekki í sama ruglinu og í fyrra.
Það var eftirvænting eftir kynningu Sony eftir vandræði síðustu vikna og eftirvæntingu um hvernig nýja lófavél þeirra NGP yrði. Sony byrjaði vel með að ræða PSN hakkið og fóru síðan inní sterka sýningu á helstu leikjum þeirra eins og; Uncharted 3 sem leit hrikalega vel út, Resistance 3, inFamous 2, Starhawk, Sly Cooper 4. Það var síðan óvænta mæting CCP á sviðið að kynna Dust 514 skotleik þeirra sem fær góðan stuðning Sony. Þetta var bara hluti þeirra leikja sem að Sony kynnti og virðast vera að rækta vel við innri framleiðslu sýna. Ekki eins mikið af PlayStation Move og við hefðum búist við.
NGP lófavélin fékk loks nafn og mun heita PlayStation Vita og á að koma út í lok ársins, hvar nákvæmlega erum við ekki alveg 100% vissir. Vélin og leikirnir litu virkilega vel út og virðist Sony hafa lært af mistökun þeirra með PSP og byggt á því sem virkaði vel. Verðið var staðfest og sem verður 249$ og 299$.
Endapunkturinn af kynningunum var svo Nintendo kynningin sem mjög margir biðu spenntir eftir, enda höfðu þeir sagt að þeir myndu kynna arftaka Nintendo Wii leikjavélarinnar. 25 ára afmæli Zelda leikjaseríunnar var rætt og kynnti plön þeirra að halda uppá það út árið. Nintendo staðfestu að The Legend of Zelda: Skyward sword myndi fá útgáfu í lok ársins. Nintendo 3DS er að fá slatta af gæða titlum, það er samt hægt að spyrja sig pínu afhvejru voru ekki einhverjir af þessum leikjum gefnir út með vélinni og eða vélin seinkað pínu til að koma út með sterkt leikjasafn?
Nýja leikjavélin mun heita Nintendo Wii U, við klóruðum okkur pínu í hasunum þegar við sáum þetta. Það voru orðrómar um mörg nöfn, en þetta var pínu óvænt. Ástæðan má líklega rekja til að Nintendo vill halda áfram tengingu við Wii nafnið á sama tíma að koma með nýja vél á markaðinn. Megin þorri kynningar þeirra var ekki leikjavélin heldur nýja snertiskjá fjarstýringin sem minnir á iPad sem eignaðist barn með venjulegri fjarstýringu. Skjárinn er mjög flottur og þeir möguleikar sem eru í boði.
Nintendo virðist ætla sér að gefa út aftur meiri fullorðinslegri leiki ásamt hinum klassísku Mii tegund af leikjum ásamt Zelda og Mario leikjum. Við erum ekki en vissir samt um grafík getu vélarinnar þar sem að myndbrotin sem voru sýnd voru út PS3/360 úgáfum leikjanna. Það sem stóð uppúr við þessa kynningu var að okkur fannst pínu eins og við værum ekki að fá raunverulega kynningu Nintendo Wii U vélarinnar fyrr en á E3 2012.
Þetta er bara hluti af því sem var kynnt og voru ótal leikir kynntir á sýningunni sjálfri sem fengu kannski ekki eins mikkla athygli, og tekur smá tíma að finna allt það flotta sem er í boði. Við erum búnir að vera duglegir að fara í gengnum það og birta þá á vef okkar og Facebook síðunni okkar.
Við erum að pæla hvað fannst ykkur flott, slæmt, kom á óvart, hvað vantaði, hver klikkaði, hvernig var þetta E3 miðað við fyrri árin? Síðan bara almennt álit á sýningu ársins? Endilega tjáið ykkur hérna fyrir neðan og á Facebook síðunni okkar.
Kv.
GameTíví






Auglýsing fyrir tennis leikinn Top Spin 4 lak útá netið af leikkonu sem leik í myndbandinu sem um ræðir og hefur líklega ekki glatt marga hjá 2K Sports sem gefa leikinn út.










Nýleg comment