- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Tag Archive for 'Dead Rising 2: Case Zero'

Dead Rising 2: Case Zero kemur út 31. Ágúst eingöngu á Xbox 360

dr2_title-logo_case-zero-300x150

Dead Rising 2: Case Zero er leikur og hálfgert demó sem mun fylla uppí bilið á milli fyrri leiksins og framhaldsins og hefur verið dagsett þann 31. Ágúst eingöngu fyrir Xbox 360 og var það staðfest af Capcom í dag.

Leikurinn sem verður eingöngu hægt að fá í gegnum netið mun kosta 400Ms punkta eða 5$ sem er rétt yfir 600 Krónur á gengi dagsins í dag.  í Case Zero er fólk kynnt fyrir hetju Dead Rising 2 leiksins honum Chuck Greene. Keiji Inafune yfirmaður rannsóknardeildar Capcom og framleiðandi Dead Rising 2 talar um að Capcom muni ekkert græða á þessum viðskiptum og setti hann þetta verð á móti hugmyndum Capcom fyrirtækisins sjálfs.

“We’re not making any money on this,” Inafune said during today’s Comic-Con panel for the game. “I went against the company’s wishes and went for the 400 MSP price point”

“With Dead Rising 2: CASE ZERO we had two goals: provide newcomers with an easy point of entry to the Dead Rising universe, and give fans of the series an insight into what took place after Frank West survived the outbreak at the Willamette Mall,” Inafune said in a prepared statement. “We have certainly achieved both of these ambitions but I am equally pleased that we are able to give gamers so much unique and entertaining content at such a great price.”

Dead Rising 2: Case Zero gerist 2 árum eftir atburði hins upprunalega Dead Rising og 3 árum áður en Dead Rising 2 gerist. Í forsögunni er Greene fastur með dóttur sinni Katey í eyðimerkurbænum Still Greek sem er uppfullur af Zombie kvikyndum sem líklega langar ekkert frekar en að éta þau.

Í forsögunni munu leikmenn fá aðgang af vopnasmíðahæfileikum Greene’s sem á eftir að sjá fyrir alvöru síðan í Dead Rising 2. Fólk sem kaupir Case Zero mun geta fært persónurnar sínar yfir í lokaútgáfu leiksins og verður hægt að byrja þá í lvl.5 ásamt því að vinna sér inn aðra bónusa sem vonandi koma að góðum notum í leiknum sjálfum.

Ekkert er staðfest um að Dead Rising 2: Case Zero muni kom út á PC eða PS3.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku