
Það hefur ekki farið framhjá neinum þær hræðilegu harmfarir sem skullu í Japan í síðustu viku með jarðskjálfta sem var 9.0 á Richter skalanum og stórkotlegri flóðbylgju sem skall á austurströnd Japans stuttu síðar olli gríðalegu tjóni og mannfalli. Við hugsun hlýlega til vina okkar í Japan og þeirra sem eiga um sárt að binda.
Japan eins og margir vita er eitt af helstu iðnríkjum heimsins og mikið af raftækjunum og bílum ásamt fleiru sem við notum daglega kemur þaðan, ofan á það er bæði Nintendo og Sony með höfðustöðvar sýnar þar og stór hluti af leikjaframleiðslu þeirra og annara fyrirtækja eins og Konami, Koei, Square-Enix, Capcom, Sega og Namco ásamt ótal annara.
Square-Enix hefur tilkynnt um tímabundna stöðvun netþjóna þeirra sem keyra Final Fantasty XI og Final Fantasy XIV í tilmælum Japans stjórnar til að spara rafmagn eins og er.
Konami fór svipaða leik og slökkti á Metal Gear Online netþjónunum í óákveðin tíma á meðan sparnaðaraðgerðirnar á rafmagni standa yfir. Útgefandinn hefur bent fólki á að kíkja á opinberu heimasíðuna fyrir nánari upplýsingar.
Nýja DLC efninu fyrir Marvel vs Capcom 3 hefur verið seinkað ótímabundið og átti það að innihald Jill og Shuma Gorath sem spilanlegar persónur.
Sega hefur seinkað nýja Yakuza: Of the End um ótakmarkaðan tíma og gaf ekki út afhverju nákvæmlega, en það má gera í skónna að það hefur eitthvað að gera með viðfangsefni leiksins sem snerti eyðileggingu borga í Japan útaf uppvakningum.
Japanska útgáfa Sony og Evolution Studios af Motorstorm: Apocalypse hefur verið seinkað útaf “ýmsum ástæðum” það gerðist hið sama í Nýja Sjálandi nýlega og má giska að leikur sem gerist í borgarrústum í kringum jarðskjálfta sé ekki það besta sem fólkið í Japan þarf á að halda. Leikurinn er mjög góður þó og kemur líklega bara út síðar á því svæði en mun koma í Evrópu í þessari viku og í Apríl í Bandaríkjunum.
Sony hefur síðan sagt að PlayStation Network þjónustan ásamt öðrum mun verða óstöðug á næstunni, og á það höldum við bara við í Japan.
Að lokum hefur Japanska fyrirtækið hætt framleiðslu Disaster Report 4 sem átti að verða fyrsti PS3 leikurinn í seríunni. Hann hafði átt að koma út núna í vor, stór ástæða á bakvið þetta hlýtur að vera útaf byrjun leiksins sem byrjað eimmit með stórum jarðskjálfta í Japan. Það er pínu svekkjandi að sjá svona leik sem var alveg að verða tílbúin fá ekki útgáfu, það er spurning hvort að hefði mátt seinka honum út árið. En fyrirtækið hefur klárlega góða ástæðu að gera þetta og líklega miðað við aðstæðurnar er þetta það besta í stöðunni.
Við óskum fólki í Japan alls þess besta og vonum að það nái sér fljótt á strik eftir þessar harmfarir, þjóðin er mjög þrautseig og hefur sýnt það í gegnum tíðina að hún getur tekist á við erfiða hluti.
Kv.
GameTíví
Heimildir: EvilAvatar, Joystiq, Andriasang
Nýleg comment