- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Tag Archive for 'Battle.net'

Blizzard bannar 5.000 svindlara durga á einu bretti

StarCraftIIWoL_Logo

Fyrirtækið Blizzard sem kallar ekki allt Ömmu sína, tók sig til og bannaði 5.000 StarCraft II notendur á einu bretti eins og þeir höfðu lofað um daginn. Fólk þetta var að reyna að svindla og eða nota forrit til að hakka leikinn og spila á netinu.

Það sem þetta þýðir fyrir fólkið sem gat ekki fengið af sér að spila eðlilega eins hinar Miljónirnar sem eru að spila StarCraft II leikinn, munu þurfa að kaupa sér nýtt eintak af leiknum til að fá nýtt raðnúmer til að spila á netinu og nota Battle.net kerfi Blizzard mann.

We recently took action, including suspensions and bans, on over 5,000 StarCraft II players who were in violation of the Battle.net Terms of Use for cheating and/or using hack programs while playing. In addition to undermining the spirit of fair competition that’s essential to play on Battle.net, cheating and hacking can lead to stability and performance issues with the service. Maintaining a stable, safe, and secure online-gaming experience for legitimate players is a top priority for us, and we’ll be continuing to keep watch on Battle.net and take action as needed.

Það er alltaf jákvætt að sjá svona þar sem að svindl á netinu getur algerlega eyðilagt leiki fyrir almennum spilurum. Blizzard hafa ávallt verið duglegir að gera þetta við svindlara í leikjum þeirra.

Svo það er um að gera að smella sér í smá StarCraft II um helgina vitandi að það eru 5.000 færri svindlarar í umferð :)

Kv.
GameTíví

Kynning frá Blizzard til að koma fólki í StarCraft II gírinn

starcraft_2_release_date1272985160

StarCraft II: Wings of Liberty er að koma út í kvöld og eru spenntir leikjaspilarar að nálgast leikinn í tölvuleikjabúðum landsins í kvöld og fara spenntir heim með annað hvort venjulegu útgáfuna eða flottu úber útgáfuna sem við höfum minnst hérna á síðunni áður.

Það er talið að allt í 5 Miljón eintök af leiknum gætu selst strax í byrjun um víðan heim og álagið á Battle.net kerfið nýja og endurbætta sem fer í gangið á sama tíma og leikurinn ætti að verða talsvert, svo það gæti þurft að sýna smá þolinmæði ef að álagið er mikið. Til samanburðar seldust 3.8 Miljón eintök af GTA IV á fyrsta degi og Call of Duty: Modern Warfare 2 seldist í 4.7 Miljón eintökum á degi 1 sem er ótrúlegt, svo spurning hvað StarCraft II mun gera?

Suður-Kórea og StarCraft er sérstak fyrirbæri og nýtur leikurinn þar gríðalegara vinsældra þrátt fyrir að vera þetta gamall, ef að einhver tímann ætti að gefa frí í vinnunni þarna útaf tölvuleik er það ekki klárlega núna?

Á meðan það er beðið eftir að Battle.net netþjónarnir fara í loftið á miðnætti og leikurinn er að hlaðast inní vélina er ekki við hæfi að kíkja á fínt kynningar myndband sem fer í gegnum einmenningspart leiksins aðeins og hvað verður hægt að gera?

Það verður gaman að heyra í ykkur GameTíví lesendur hvernig ykkur líst á leikinn hérna á síðunni eða á Facebook síðunni okkar.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku