
Það eru nokkrar vikur í að E3 byrji og upplýsingar um Call of Duty: Modern Warfare 3 eru byrjaðar að leka út, trixið er auðvitað að vita hvað er rétt og hvað er mjög góður skáldskapur eða óskhyggja fólks.
Koktaku var með frétt í vikunni um MW3 og birti meira að segja mynd sem á mögulega að vera af kápu leiksins og má sjá hana hérna fyrir neðan.

Samkvæmt fréttum á Kotaku mun nýji Modern Warfare 3 taka næsta skrefið og ýta seríunni fram á við í hasar og skala en hefur áður séðst í serínni. Leikurinn er í vinnslu hjá Infinity Ward eða reyndar sagt leyfum þess eftir sprengjuna sem varð í fyrra sem endaði í hótunum og málsóknum. Þeim til aðstoðar eru bæði Sledgehammer Games og Raven Software.
Það verður líklega erfitt að fylgja MW2 eftir, hann var gríðalega vinsæll í sölu og dómum og án stórs hluta Infinity Ward sem hætti og fór yfir til Respawn Games hjá EA ásamt toppum IW.
Það er viðbúið að MW3 haldi áfram þeirri sögu sem kom fram í síðustu tveimur leikjum þar sem að spennan á milli Rússa og Bandaríkjanna í MW1 endaði með innrás Rússa eftir valdarán þar í landi í MW2og leikmenn fengu að sjá og upplifa þegar að kjarnorkusprengja var sprengd ofarlega í himinhvolfinu fyrir ofan Washington D.C. sem olli því að öll raftæki á svæðinu grilluðust af EMP sprengingunni.
Samkvæmt heimildum heldur sagan áfram í “heimi í vanda” eftir atburði síðustu leikja og afleiðingar innrásar Rússa á Bandaríkin. MW3 gerast áfram í þéttbyggðum svæðum með tilheyrandi skriðdrekum ofl.
Það er líklegt að persónurnar Captain John “Soap” MacTavish og Captain John Price muni snúa aftur ásamt Rússanum Nikolai og eru þeir á flótta eftir að hafa drepið hinn spillta Lieutenant General Shepherd í lok MW2.
Stóra spurningin er auðvitað mun atburðir leiksins leiða til stærri átaka eða hreinlega Þriðju Heimstyrjaldarinnar? Eyðilegging umhverfisins mun spila sterkt í sögu, það er án efa til varnar þeirri ógn sem að Battlefield 3 er gagnhvart Call of Duty seríunni með tilkomu þess leiks næsta vetur.

Ofan á þessa stóru orðróma rispu um MW3 hefur að auki lekið út á spjallborði Electric Hydra mynd af einhverju sem kallast “Call of Duty: Elite” sem gæti verið tengt netverkefninu Call of Duty “Project Beachhead” sem hefur verið talið að sé einhvers áskriftar þjónusta fyrir Cod.
“This platform will include a suite of services and content plan that will unite and ignite the community like never before,” said CEO of Activision Publishing, Eric Hirshberg on the company’s recent investors call when speaking of Beachhead. “The platform will support in-game integration and bring online experiences and console play together for the first time.”
Bæði “Project Beachhead” (eða Call of Duty: Elite?) og Modern Warfare 3 ættu að fá nánari kynningu á E3 snemma í Júní.
Kv.
GameTíví
Heimild: Kotaku og Destructoid
Nýleg comment