- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Tag Archive for 'Activision'

Call of Duty: MW3 rakar inn peningunum

Það ætti líklega ekki að koma neinum á óvart að Call of Duty skotleikja serían er frekar vinsæl, enda hafa sölutölur fyrir Call of Duty: Modern Warfare 2 og Cod: Black Ops sýnt það.

Call of Duty: Modern Warfare 3 tók sig til og seldist í 8.9 milljón eintökum í Bandaríkjunum á fyrsta mánuði leiksins í sölu, samkvæmt Cowen & Company ráðgjafa fyrirtækinu.

Leikurinn hefur selst um 10% meira en þau átta miljón eintök sem seldust af Black Ops fyrsta mánuðinn í fyrra.

Modern Warfare 3 sölutölurnar innihalda víst 100,000 eintök seld af leiknum á Nintendo Wii leikjavélina. Tölurnar fyrir PC eru frekar óljósar þar sem að þær innihalda ekki seld eintök af Steam og öðrum slíkum stafrænum þjónustum.

Til samanburðar seldust 1.26 miljón eintök af Assasin’s Creed: Revelations og um 700,000 eintök af Uncharted 3: Drake’s Deception og ekki nema 50,000 af Rayman Origins sem er frekar leitt, en hann kom reyndar út á mjög vondum tíma ársins og samkeppnin á móti leikjum eins og MW3 gríðalega hörð.

Bara svona til að gera þetta enn merkilegra þá tilkynnti Activision að leikurinn hafði halað inn 1. Biljón Dollara á heimsvísu á aðeins 16 dögum! Það er einum degi hraðara en Avatar kvikmynd James Cameron.

Miðað við allt þetta, þá er ekki ólíklegt að við fáum nýjan Call of Duty leik á næsta ári. Sem hefur reyndar verið staðfest en ekki verið kynntur nánar, en það mun örugglega breytast á E3 næsta sumar.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

Fyrstu dómar Call of Duty: Modern Warfare 3

Call of Duty: Modern Warfare 3 er komin út í búðir á PC/PS3/Xbox 360/Nintendo Wii og eftirvæntingin hefur verið mikil fyrir leikmenn sem eru áfjáðir að stökkva í fjölspilun leiksins eða æsifenginn hasar sögunnar þar sem allt er lagt undir.

Dómarnir fyrir leikinn hafa sprottið um allt netið og er ekki annað hægt að segja en að gagnrýnendum er að líka leikurinn vel ef að má marka dómana hér fyrir neðan og forsölutölur leiksins.

Svo þið sem eruð komin með leikinn, hvernig líkar ykkur hann? Var sagan tekin fyrir í byrjun eða var tekin löng rispa í fjölspilun leiksins strax?

Kv.
GameTíví

Lögsókn fyrrum stofnenda Infinity Ward heldur áfram

Dómari í Bandaríkjunum hefur dæmt gegn Activision og leyft lögsókn fyrrum stofnenda Infinity Ward þeim Vince Zampella og Jason West og mun málið fara nú fyrir dóm.

Gamasutra vefurinn er síðan með nánari upplýsingar um þetta mál.

On Thursday a Los Angeles Superior Court judge ruled (via The Hollywood Reporter) that there are facts to support the duo’s allegations that Activision defrauded the former Call of Duty studio heads by firing them before substantial royalties from Modern Warfare 2 were due.

West and Zampella are charging that Activision had plans from the beginning to fire them in order to avoid making these payments.

The duo first filed a lawsuit against Activision last year, citing a “breach of contract” following their abrupt firing. Fraud allegations were added to the suit earlier this year, with West and Zampella explaining that Infinity Ward’s acquisition by Activision included a Memorandum of Understanding contract requiring that the duo retain control over the “look, feel and brand for the Modern Warfare games” as long as they remained employed by the company.

Allegedly, Activision Blizzard CEO Bobby Kotick told the pair during negotiations, “Don’t worry about it. It’s impossible for you guys to get fired.”

Zampella og Vince voru reknir af Activision eftir útgáfu Call of Duty: Modern Warfare 2 sem skilaði skuggalegum upphæðum í hirslur Activision og deilur voru um peningar, réttinn á seríunni ofl. Það verður óneitanlega forvitnilegt að sjá hvernig þetta mál endar í dómstóla kerfi Bandaríkjanna.

Kv.
GameTíví

Heimild: Evilavatar

Project Beachhead verður að Call of Duty Elite, mánaðargjald lagt á kerfið

Hinn hinsti draumur Activisions er að geta rukkað Call of Duty spilendur fyrir að spila leikina þeirra á netinu. Nú fer brátt að koma að því.

Í tæp tvö ár hafa Activision unnið að nýju kerfi fyrir Call of Duty seríuna til þess að halda utan um spilendur þeirra og verður kerfið loksins tilbúið þegar Modern Warfare 3 fer af stað. Kerfið hefur hingað til verið nefnt Project Beachhead þar sem Beachhead Studios voru sameinaðir til þess að byggja upp nýtt kerfi fyrir leikina og mun það heita Call of Duty Elite.

Megin tilgangurinn með Call of Duty Elite er svo að Activision geti haldið sjálfir utan um vefþjónana og þurfa ekki að notast við Steam lengur, líkt og Modern Warfare 2 og Black Ops hafa gert hingað til á PC. Þeir sem kjósa að nýta sér þessa þjónustu verða hins vegar að borga mánaðargjald fyrir hana og eiga Activison enn eftir að negla niður verð á gjaldið.

Engum verður þó skylda að borga fyrir Call of Duty Elite til þess að spila fjölspilunar hlutann í Modern Warfare 3, en þeir sem kjósa að notfæra sér hana munu hljóta meiri ávinning en hinir sem ætla sér að hunsa hana. Kostnaðurinn fyrir Call of Duty Elite mun dekka yfir nýju kortin sem verða gefin út fyrir leikinn sem og önnur góðgæti sem þeir eiga enn eftir að kynna.

Einnig er talað um að Call of Duty Elite muni halda utan um stöðuna þína á meðan þú spilar leikina á netinu. Með því getur þú séð hvernig þér hefur gengið undanfarna leiki og séð hvaða vopn henntar þér að hverju sinni. Fleira á enn eftir að koma í ljós og munu Activision vonandi kynna Call of Duty Elite opinberlega á næstu dögum.

Það er ekki hægt að segja að svo stöddu hvort þessi þjónusta sé þess virði til þess að eyða 5-8 dollurum í hverjum mánuði í senn. Activision eru samt sem áður þeir snjöllustu þegar kemur að því að veiða krónur frá spilendum sínum þannig að þeir ættu ekki að vera í neinum erfiðleikum að koma þessu kerfi í gang.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Þriðja heimsstyrjöldin hefst í Modern Warfare 3

Stríð eru óumflýjanleg og spennan yfir Call of Duty leikjunum er engu síðri. Í gærkvöldi birtist fyrsta stiklan úr Call of Duty: Modern Warfare 3 á meðan fjórði leikurinn í NBA körfuboltanum stóð yfir.

Eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan að þá er þriðja heimsstyrjöldin gengin í garð og munt þú takast á við orrustur í helstu löndum í Evrópu, þar á meðal Bretland, Frakkland, Þýskaland og svo að sjálfsögðu í Bandaríkjunum.

En nóg af texta, við látum mynbandið sjá um rest!

Nýjar upplýsingar um Modern Warfare 3 á mánudaginn kemur

Í síðustu viku lak út efni úr nýjasta Call of Duty leiknum, Modern Warfare 3 sem er væntanlegur þann 8. nóvember næstkomandi um allan heim. Activision áttu ekki von á því en þeir voru ekki lengi að snúa vörn í sókn með því að afhjúpa nokkra áfangastaði leiksins sem var gefið út í nokkrum stiklum.

Þrátt fyrir að E3 sýningin sé rétt handan við hornið, sem fer af stað þann 6. júní, að þá eru Activision tilbúnir að kinda enn meira í bálinu sem hefur farið hljótt af stað. Á mánudaginn kemur verður sýnt úr nýju efni í auglýsingahléi  á meðan fjórði leikurinn í NBA úrslitunum fer fram.

Mikil spenna ríkir yfir Call of Duty seríunni með hverju árinu sem líður og er hún nánast óumflýjanleg. Modern Warfare 3 ætti ekki að vera nein undantekning en við eigum eftir að sjá mikið úr honum þegar nær dregur að útgáfudegi hans.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Fyrstu “teaser” myndböndin komin fyrir MW3

Það er ekki annað hægt að segja en að fréttir síðstu daga hafa verið gríðalega þéttar af Call of Duty: Modern Warfare 3 umfjöllun. Fyrir stuttu birtum við ykkur fréttir frá Kotaku sem komust í feitar fréttir um MW3 sem virðast vera byggðar upp að haldbærum upplýsingum að hluta.

Leikurinn mun koma út 8. Nóvember á þessu ári og mun sagan flakka um heiminn og gerast í borgum eins og; New York, París og London ásamt öðrum.

Fréttir segja að saga leiksins muni endurskapa landslang Call of Duty seríunnar ásamt að færa djúpa fjölspilun og sögu sem klárar alla lausu enda fyrri leikja ásamt að kynna nýjar persónur til sögunnar.

Til að komast í veg fyrir einhverja þessa umfjöllun hefur Activision og Infinity Ward gefið út fern myndbönd fyrir MW3 sem eru unfanfari stórrar kynningar á leiknum á E3 í næsta mánuði.

Myndbandið fyrir England

Myndbandið fyrir Þýskaland

Myndbandið fyrir Bandaríkin

Myndbandið fyrir Frakkland

Við munum reyna að spilla ekki öllu sem er að leka, fyrir þá sem vilja lesa það er lítið mál finna það á netinu. E3 stefnir í að verða epískur þar sem að MW3 og Battlefield 3 munu berjast um hylli skotleikja unnenda.

Kv.
GameTíví

Orðrómar um Call of Duty: Modern Warfare 3

Það eru nokkrar vikur í að E3 byrji og upplýsingar um Call of Duty: Modern Warfare 3 eru byrjaðar að leka út, trixið er auðvitað að vita hvað er rétt og hvað er mjög góður skáldskapur eða óskhyggja fólks.

Koktaku var með frétt í vikunni um MW3 og birti meira að segja mynd sem á mögulega að vera af kápu leiksins og má sjá hana hérna fyrir neðan.

Samkvæmt fréttum á Kotaku mun nýji Modern Warfare 3 taka næsta skrefið og ýta seríunni fram á við í hasar og skala en hefur áður séðst í serínni. Leikurinn er í vinnslu hjá Infinity Ward eða reyndar sagt leyfum þess eftir sprengjuna sem varð í fyrra sem endaði í hótunum og málsóknum. Þeim til aðstoðar eru bæði Sledgehammer Games og Raven Software.

Það verður líklega erfitt að fylgja MW2 eftir, hann var gríðalega vinsæll í sölu og dómum og án stórs hluta Infinity Ward sem hætti og fór yfir til Respawn Games hjá EA ásamt toppum IW.

Það er viðbúið að MW3 haldi áfram þeirri sögu sem kom fram í síðustu tveimur leikjum þar sem að spennan á milli Rússa og Bandaríkjanna í MW1 endaði með innrás Rússa eftir valdarán þar í landi í MW2og leikmenn fengu að sjá og upplifa þegar að kjarnorkusprengja var sprengd ofarlega í himinhvolfinu fyrir ofan Washington D.C. sem olli því að öll raftæki á svæðinu grilluðust af EMP sprengingunni.

Samkvæmt heimildum heldur sagan áfram í “heimi í vanda” eftir atburði síðustu leikja og afleiðingar innrásar Rússa á Bandaríkin. MW3 gerast áfram í þéttbyggðum svæðum með tilheyrandi skriðdrekum ofl.

Það er líklegt að persónurnar Captain John “Soap” MacTavish og Captain John Price muni snúa aftur ásamt  Rússanum Nikolai og eru þeir á flótta eftir að hafa drepið hinn spillta Lieutenant General Shepherd í lok MW2.

Stóra spurningin er auðvitað mun atburðir leiksins leiða til stærri átaka eða hreinlega Þriðju Heimstyrjaldarinnar? Eyðilegging umhverfisins mun spila sterkt í sögu, það er án efa til varnar þeirri ógn sem að Battlefield 3 er gagnhvart Call of Duty seríunni með tilkomu þess leiks næsta vetur.

Ofan á þessa stóru orðróma rispu um MW3 hefur að auki lekið út á spjallborði Electric Hydra mynd af einhverju sem kallast “Call of Duty: Elite” sem gæti verið tengt netverkefninu Call of Duty “Project Beachhead” sem hefur verið talið að sé einhvers áskriftar þjónusta fyrir Cod.

“This platform will include a suite of services and content plan that will unite and ignite the community like never before,” said CEO of Activision Publishing, Eric Hirshberg on the company’s recent investors call when speaking of Beachhead. “The platform will support in-game integration and bring online experiences and console play together for the first time.”

Bæði “Project Beachhead” (eða Call of Duty: Elite?) og Modern Warfare 3 ættu að fá nánari kynningu á E3 snemma í Júní.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku og Destructoid

Activision ræðir sölu, tekjur og leiki

Activision/Blizzard ræddi í vikunni hvað er í gangi hjá þeim í leikja útgáfunni á næstu mánuðum og út árið. Blizzard er á fullu að vinna að World of WarCraft, StarCraft II aukapökkum og nokkrum leyniverkefnum ásamt Diablo III sem hefur verið beðið gríðalega eftir.

Fólk mun eiga von á Betu fyrir Diablo III á tímabilinu frá Júlí-Sept og síðan vonandi(vonandi) kemur leikurinn út fyrir árslok.

Hápunktar Activision

  • Call of Duty: Black Ops varð söluhæðsti leikur allra tíma*
  • Í Bandaríkjunum og í Evrópu á Xbox 360, PS3 og PC
  • Activision Publishing bætti við sig markaðshlutdeild Y/Y*
  • Black Ops First Strike content pack rúllaði upp metunum á Xbox LIVE og náði að seljast í 1.4 Miljón eintökum á fyrstu 24 tímunum**
  • Black Ops First Strike content pack hefur náð að seljast meira en fyrsti aukapakkinn fyrir Modern Warfare 2 meira en 20%**

*Í Bandaríkjunum og Evrópu í $ á Xbox 36o og PS3

Hápunktar Blizzard Entertainment

  • Sterkur Q1 ársfjórðungur
  • Aukning á tekjum

World of Warcraft

  • Metsölur af Cataclysm í Bandaríkjunum og Evrópu
  • Í Mars höfðu áskriftartölur náð sömu hæðum og fyrir útgáfu Cataclysm í vestur hluta heimsins.
  • Vinna heldur áfram að búa til nýtt efni til að styrkja við leikinn og samfélagið sem spilar hann
  • Full vinna er í gangi hjá Kínverska fyrirtækinu Netease í Kína til að gefa út Cataclsym sem fyrst

StarCraft II

  • Var gefinn út í Kína og er strax orðinn eitt af stærstu svæðunum fyrir StarCraft II í núverandi leikmönnum sem spila í einu.
  • Á kafi í fullri vinnu að búa til fyrsta aukapakann, Heart of the Swarm

Diablo III

  • Innanhús prufannir byrjarðar

Það smávægilega minnst síðan á næsta Call of Duty leik sem við búumst við að sjá hann á E3 í næsta mánuði. Það er ýjað að “online universe” sem ýtir annað hvort undir Cod netleik eða leik með stærri áherslu á netspilunina. Næsta eintak af opinbera PlayStation blaðinu mun verða með upplýsingar um Modern Warfare 3 er talið.

Kv.
GameTíví

Heimild: VE3D

Nýr aukapakki á leiðinni fyrir Cod: Black Ops

Samkvæmt Eurogamer þá eiga Call of Duty: Black Ops eigendur von á nýjum DLC pakka þann 3. Maí næst komandi sem kallast Escalation.

Fréttin lak fyrst út frá GAME keðjunni í Ástralíu, en var síðan tekin niður á mettíma.

Það sem er í boði verða fimm ný fjölspilunar borð; “Seize the Zoo”, “Take the Hotel”, “Secure the Convoy”, “Raid the Stockpile” og “Survive the Call of the Dead” og það síðasta hljómar sem Zombie borð.

Út frá samningi Activision og Microsoft þá verður pakkinn eins og First Strike bara first fáanlegur fyrir Xbox 360, en miðað við síðast þá tók það um 1 mánuð eftir á til að birtast á PlayStation 3 og PC.

Það má búast við að pakkinn kosti það sama og fyrri sem var á 1200Ms punkta sem er 15$.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer