- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Archive for the 'Uncategorized' Category

Page 2 of 40

Crackdown 2 demó komið út fyrir Xbox 360

crackdown2_logo

Xbox 360 eigendur geta glaðst í dag og nýtt tímann á milli leikja Í HM í knattspyrnu til að kíkja á demó af sandkassa leiknum Crackdown 2 á Xbox 360. Fyrri Crackdown var leikur sem kom skemmtilega á óvart með vanabindandi spilun, frelsi til að gera ýkta hluti og littlu sætu grænu orbana sem var svo gríðalega erfitt að hætta að safna, einnig hafði leikurinn 2 manna co-op spilun sem var hægt að leika sér saman með vini og kasta bílum og öðrum hlutum í hvern annan ásamt því að reyna að valda sem mestum usla í borginni.

Crackdown 2 mun leyfa allt að 4 leikmönnum að fara í gegnum borgina og sögu leiksins saman. Það sem er extra spennandi fyrir þá sem eru að sækja demóið og kaupa síðan leikinn þegar hann kemur út þann 9.Júlí er að það verður hægt að vinna sér inn 100GS Achivement stig í demóinu sem ætti að gleðja ýmsa þá sem eru hrifnir að bæta við stafrænu stigin sín.

Hérna er smá vídeó úr demóinu til að gefa smá forsmekk hvað er í vændum. Demóið er tímasett á 30 mín og gefur hraðari framþróun á kröftum en verður í lokaleiknum alveg eins og demóið af Crackdown 1 þegar það kom út.

The taster allows you to take part in four-player co-op, earn Demo Achievements and also gives accelerated leveling.

Demo Achievements in particular sounds like a great feature, allowing you to unlock rewards before purchasing the full game. We can see other developers copying that feature.

The demo will weigh in at 1.07Gb.

Það er hægt að smella niðurhalinu af stað hérna úr PC vélinni yfir á Xbox 360 vélina fyrir þá sem nenna ekki að standa upp eða eru staddir í vinnunni og geta ekki beðið eftir að demóið verði klárt þegar þeir koma heim. Hérna er tengill á það!

Kveðja
GameTíví

Heimild: VG24/7

Hvaða leiki munum við fá að spila á Nintendo 3DS?

3ds

Eflaust velta margir því fyrir sér hvað Nintendo ætlar að bjóða upp á þegar Nintendo 3DS kemur á markað. Eins og kunnugt er kynnti Nintendo til leiks glænýjan leik í Kid Icarus seríunni, en síðasti leikur í seríunni kom út á Game Boy fyrir hartnær 18 árum.

Kid Icarus verður þó ekki eini leikurinn sem 3DS mun bjóða upp á og á E3 voru sýndir nokkrir spennandi titlar sem munu koma út fyrir nýju leikjatölvuna. Meðal helstu titla eru:

Nintendogs + cats er ný útgáfa af gæludýraherminum vinsæla fyrir Nintendo DS. Grafíkin hefur verið bætt til muna, auk þess sem spilendur fá að leika sér við kelna kettlinga til viðbótar við krúttlegu hvolpana. Spilunin hefur ekki mikið breyst en við getum búist við að upplifunin sé önnur nú þegar þrívíddartæknin hefur bæst við og að dýrin muni reyna hvað best þau geta til þess að .

nintendogs3ds_ss02

nintendogs3ds_ss01

Metal Gear Solid 3D: Snake Eater er endurgerð af Metal Gear Solid 3: Snake Eater sem kom út á PlayStation 2 fyrir 5 árum. Einungis var stutt myndband úr leiknum sýnt á E3 þar sem notendur gátu lítið annað gert en stjórnað myndavélinni, en þeir sem hafa séð myndbandið hafa allir sagt að leikurinn líti jafnvel betur út á 3DS en hann gerði á PlayStation 3.

snakeeater3ds_ss01

snakeeater3ds_ss02

Kingdom Hearts 3D er annar af tveimur leikjum sem Square-Enix hefur sýnt skjáskot úr, en lítið hefur verið sagt um innihald hans. Hugsanlegt er að hann verði endurgerð af fyrsta Kingdom Hearts leiknum, með einhverjum breytingum, en einnig eru líkur á að hann verði glænýr…

kh3ds_ss01

kh3ds_ss02

Engin Nintendo vél væri fullkomin án Mario Kart og sýndi Nintendo brot úr Mario Kart fyrir 3DS á sýningunni. Ekki er vitað hvort hann muni koma út samhliða vélinni eða hvort hann muni koma út síðar meir, en hvenær sem það verður mun hann vekja ómælda hamingju fólks úti um allan heim enda hafa Mario Kart leikirnir alltaf notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina.

mariokart3ds_ss01

mariokart3ds_ss02

Aðdáendur Dead or Alive slagsmálaleikjanna geta fagnað því Koei-Tecmo vinnur hörðum höndum að nýjum Dead or Alive leik fyrir Nintendo 3DS. Leikirnir hafa þekktir fyrir skoppandi brjóst og líklegt er að þrívíddartæknin verði notuð til þess að sýna dýpt þegar þau skoppa.

doa3ds_ss01

doa3ds_ss02

Paper Mario hefur hingað til haldið sig við hefðbundnar leikjatölvur en Nintendo virðast staðráðnir að breyta því og hafa birt nokkur skjáskot úr Paper Mario fyrir 3DS. Leikurinn sver sig í ætt við Paper Mario fyrir Nintendo 64 og Paper Mario: The Thousand Year Door fyrir GameCube, þ.e.a.s. hlutverkaleikur í heimi þar sem allt er gert úr pappír.

papermario3ds_ss01

papermario3ds_ss02

Að lokum… hvað væri Nintendo án Zelda leiks? The Legend of Zelda: Ocarina of Time er löngu orðin klassík og á dagskrá Nintendo er að skella honum í þrívídd og gefa hann út á 3DS. Besti leikur allra tíma (samkvæmt GameRankings.com og Metacritic) fær loksins athyglina sem hann á skilið.

zeldaoot3ds_ss01

zeldaoot3ds_ss02

Þessir sjö leikir eru þó einungis nokkrir af mörgum leikjum sem eru í bígerð fyrir Nintendo 3DS. Tugir leikja frá 23 mismunandi framleiðendum eru í fullri framleiðslu svo líklega verður enginn leikjaskortur á fyrstu lífdögum vélarinnar.

Stóra spurningin er einfaldlega hvenær við fáum að líta gripinn augum!

zeldaoot3ds_ss01.pnger

Nokkrir spennandi E3 trailerar af væntanlegum leikjum eins og inFamous 2, Spec Ops, Monkey Island 2, Castlevania ofl

e3_2010-banner

Í kringum E3 sýninguna þá er gríðalega mikið að myndefni sýnt úr væntanlegum leikjum. Við hérna a GameTíví datt í hug að smella nokkrum saman hérna af leikjum sem okkur finnst spennandi og ættu að höfða til sem flestra.

Fyrst er það Sly Cooper Collection sem er áætlað á PS3 í haust. Þetta verður safn með 3 Sly Cooper leikjum í HD upplausn ekki ólíkt God of War safninu sem kom út í vor. Í pakkanum verður Sly Cooper and the Thievius RacconusTM, Sly 2: Band of ThievesTM and Sly 3: Honor Among ThievesTM á einum Blu-Ray disk. Að auki við topp grafík verður stuðningur við Trophie kerfi Sony, auka efni við leikinn í 3D og nýja Playstation Move (sem er nýja hreyfikerfi Sony) mini leiki.

inFamous 2 var sýndur á E3 kynningu Sony og skartaði nýju looki á aðalpersónu leiksins og nýrri rödd sem hefur farið í marga þar sem að þeir töldu enga þörf á þessari breytingu. Óháð þessari breytingu er trailerinn einn sá flottasti á E3 og ætlar inFamous 2 að verða ein fjöðrin í hatt Sony á næsta ári þegar leikurinn kemur út. Og fyrir þá sem hafa ekki en spilað fyrri inFamous, skammist ykkar! Og farið og kaupið leikinn strax, hann er það góður.

FPS leikurinn Specs Ops: The Line er nýr leikur sem á koma út 2011 á PS3 og Xbox 360 og gerist í Dubai. Spennandi leikur sem sýnir Dubai í rúst og þar sem sandur eyðimerkurinnar hefur rúllað fyrir borgina. Ekki skemmir þétt Alice in Chains lag í trailernum.

Næst er trailer úr nýja Castlevania leiknum sem Konami er að vinna að. Leikurinn heitir. Castlevania: Lord of Shadows.

Geggjuðu LEGO kallarnir mæta ferskir á næstar ári með LEGO: Star Wars III á allar helstu vélar.

Assasins Creed: Brotherhood er væntanlegur í haust á PS3 og Xbox 360 og mun skarta drúgri sögu ásamt fjölspilun sem er nýtt fyrir seríuna. Þetta vídeó fer í gegnum hvernig ein af mörgum fjölspilunarkeppnum virkar.

The Secret of Monkey Island 2: LeChuck’s Revenge Special Edition kemur út í sumar á PC, Xbox Live og að öllu eðlilegu PSN síðar. Þetta er annar leikurinn frá Lucasarts þar sem að gamli leikurinn er tekinn í gegn og bætt við raddsettningu, nýrri grafík ofl ásamt því að hafa gamla leikinn 100% spilanlega undir og hægt að svissa á milli hvenær sem er bara með að ýta á einn takka! LeChuck’s Revenge mun einnig innihalda viðbót þar sem að hönnuðir leiksins tala í Commentary stíl yfir leiknum ekki ólíkt eins og er að finna á mörgum Dvd diskum þar sem að leikstjórinn og stjörnurnar sitja og ræða myndina á meðan hún rúllar á skjánum.

Þetta er bara smá brot af nýjum og spennandi trailerum og við reynum að setja meira sem okkur líst á fljótlega.

Kveðja,
Game Tíví

Heimild: Gametrailers og Youtube

The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D lætur vonandi ljós sitt skína á 3DS einn góðan veðurdag

3ds_zeldaot_02ss06_e3

Það lítur allt út fyrir það að næstbesti leikur allra tíma, samkvæmt gamerankings, verði endurgerður fyrir Nintendo 3DS vélina sem er væntanleg…  já, hvenær sem það verður nú. Ef þið voruð ekki nú þegar búnir að giska rétt hvaða leikur þetta er, að þá mælum við með því að þið takið ykkur smá pásu frá tölvunni og æfið ykkur á þetta bráðskemmtilega hljóðfæri hér!

Í fyrstu var leikurinn einungis sýndur á sýningunni sem svo kallað “tech-demo” þar sem leikjameistarinn, Shigeru Miyamoto vildi sýna viðstöddum hvernig Hyrule Field liti út í 3D umhverfi. Hann nefndi svo í lokin að það væri möguleiki að þeir myndu ljúka við leikinn einn daginn og gefa hann svo út fyrir nýju Nintendo 3DS.

Einnig barst tilkynning á Joystiq þar sem aðal framleiðandi Zelda seríunnar, Eiji Aonuma sagði til um að leikurinn fengi nýjar breytingar sem myndi gera hann auðveldari í spilun. Hann nefndi það sérstaklega að þeir myndu gera Water Temple leiksins mun betra með því að gefa spilendum kleift að nota hin svo kölluð “iron boots”, án þess að þurfa að stoppa leikinn. Það gerði það að verkum að Water Temple fékk á sig leiðinlegan stimpil og hafa Zelda aðdáendur alltaf verið smeykir við að ganga inn um neðansjávar musteri eftir atvikið í Ocarina of Time.

Að lokum voru það Nintendo í Ameríku sem gáfu vísbendingu um að endurgerð sé að ræða. Á Twitter síðu þeirra twittuðu þeir orðrétt: „Zelda aðdáendur, eitt í viðbót… Við erum stoltir að kynna fyrir ykkur The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D!

Við hér á GameTíví.is krossleggjum að sjálfsögðu fingurna okkar og vonum innilega að þetta verði allt saman að veruleika í náinni framtíð.

Heimildir: Kotaku, Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

E3: Star Wars: The Force Unleashed 2 er væntanlegur síðar á þessu ári

star-wars-force-unleashed-2

Síðar á þessu ári kemur út nýtt framhald úr Star Wars heiminum. Við erum að sjálfsögðu að tala um Star Wars: The Force Unleashed 2 sem við fengum að sjá úr rétt áður en E3 sýningin hófst. Leikurinn var kynntur með nýrri stiklu og í henni má sjá sjálfan Svarthöfða þar sem hann yfirgefur lærling sinn og bíður hans ekkert nema dauði. Að sjálfsögðu situr hann ekki aðgerðalaus og lætur í stað verkin tala.

Skoðið þessa mögnuðu stiklu hér fyrir neðan til þess að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Kveðja,
Game Tíví

E3 herjar á með látum! – Microsoft

Þessa vikuna fer fram hin árlega E3 ráðstefnan þar sem tölvuleikjarisarnir fá tækifæri á því auglýsa það sem þeir hafa í væntum fyrir okkur núna og komandi ár. Sýningin er nú þegar í fullum gír eftir að hún hófst í gærkvöldi og hafa Microsft, Nintendo og Sony allir lokið við kynningarnar sýnar.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur brot hvað okkur þótti mest skara fram úr sýningunum þremur, en þetta er langt frá því að vera tæmandi listi því ráðstefnan var rétt að byrja og hafa nú þegar verið gefið út yfir 100 myndbönd í tengslum við hana. Við munum svo vonandi næstu daga henda inn fleiri áhugaverðum fréttum og stiklum sem þið getið bæði skoðað hér á GameTíví.is og öðrum leikjafréttasíðum.

Microsoft

Microsoft:

Microsoft byrjuðu á því að sýna úr Metal Gear Solid: Rising, nýr leikur frá föður MGS seríunnar, Hideo Kojima.

Metal Gear Solid: Rising

Bungie menn voru að sjálsögðu á sýnum stað til þess að sýna úr nýja Halo leiknum þeirra.

Halo: Reach

Kinect, nýja hreyfiskynjunin frá Microsoft á eflaust eftir að gera allt vitlaust á heimilinu þegar hún loksins kemur í haust.
Kinect Adventures!

Nintendo sýningin á E3

nin-press-10

Nintendo:

Það er nokkuð klárt mál að Nintendo áttu sviðið þetta árið. Fullt af nýjum leikjum voru afhjúpaðir á sýningunni ásamt nýju lófatölvunni, Nintendo 3DS sem lítur frábærlega vel út í fyrstu sýn.

Nintendo byrjuðu sýninguna með mjög óhefðbundnum hætti. Fyrsti leikurinn í röðinn var enginn annar en næsti Zelda leikur fyrir Wii, en margir hafa beðið í fjölda ára til þess að sjá fyrstu brot úr leiknum. Loksins sáu Nintendo menn sig fært að uppfylla óskir þeirra.

The Legend of Zelda: Skyward Sword

Einn besti skotleikur allra tíma er án nokkurs vafa Goldeneye, sem gerði allt vitlaust á Nintendo 64 á sínum tíma. Í haust er svo væntanlegt endurgerð af leiknum með smá miklum breytingum, eingöngu á Nintendo Wii.
Goldeneye 007
Nintendo enduðu svo sýninguna með trompi með því að kynna nýjustu lófatölvu þeirra, Nintendo 3DS.
Nintendo 3DS

Sony sýningin á E3

thebonezone-1276633834

Sony:

Eftir að hafa verið sýndur síðustu tvö til þrjú árin að þá hafa Sony menn loksins neglt niður útgáfudag á Gran Turismo 5 sem allir bíða óðreyfafullir eftir. Gripurinn er væntanlegur 2. nóvember, svo ekki hika við að merkja þann dag við í dagatalinu.

Gran Turismo 5

Mestu óvæntin þetta árið var kom klárlega frá Sony þegar Gabe Newell, bæði stofnandi Valve og Steam, tilkynnti að Portal 2 myndi láta ljós sitt skína á PS3 vélinni og mun leikurinn líta best út á þerri leikjatölvu.
Portal 2
Í lokin sýndu Sony svo úr væntanlegum leik sem flesti ættu að kannast eitthvað við.
Twisted Metal
Eins og við nefndum í fyrstu frétt okkar að þá er þetta lang, langt, langt frá því að vera tæmandi listi. Þið getið skoðað helling af myndböndum á GameTrailers eða hér á síðunni á næstu komandi dögum.

XCOM kynntur og lítur vel út, en fer fyrir brjóstið á eldri aðdáendum

Xcom-500x_oxm1

2K Marin hönnuðir síðasta Bioshock leiks hafa sýnt vídeó af nýjasta leik þeirra XCOM er er skotleikur og byggir á frægri herkænsku seríu frá 9 áratugnum og er talin ein af betri sem hafa komið út og hafði mikil áhrif á leikjaiðnaðinn. Nýji leikur 2K Marin er skotleikur sem gjörólíkt fyrri leikjum og fer það skiljanlega talsvert í gamla harða aðdáendur fyrri leikja.

Xcom2

Skjáskot úr UFO: Enemy Unknown frá árinu 1994 og var gefin út af MicroProse.

Það má sjá viss áhrif Bioshock í leiknum þar sem að RPG og skoleikjum er blandað saman, það sem er að sjá er mjög forvitnilegur grafík stíll og spilun sem er ólíkari algengum skotleikjum eins og t.d Call of Duty og fleiri slíkum.

Heimild: VE3D

Kv. GameTíví

What you think you know about the enemy is about to change. An insidious and faceless enemy is clawing its way into America, tearing at the fabric of the American dream. This is not an invasion that anyone could have expected or prepared for. There is no army, no front – only a nation being picked apart from within, one family at a time.

Join humanity’s struggle against an unknown enemy and step into the shoes of William Carter, an FBI agent tasked with identifying this mysterious growing threat and eliminating it at any cost. True to the roots of the franchise, players will be placed in charge of building a campaign of risky strategic gambits to overcome high-stake odds. Told from a first-person perspective, they will enact their plans through heart-stopping combat experiences that pit human ingenuity – and frailty – against a foe beyond comprehension. Players will feel the white-knuckle tension and fear that comes with confronting an elusive and deadly enemy across battle lines drawn through the homes and lives of the innocent.

Welcome to XCOM.

Features:

  • Experience XCOM from an Immersive New Perspective: Step into the shoes of FBI agent William Carter and confront firsthand the horror, tension and fear of the unknown.
  • Call the Shots and Bear the Consequences: The enemy threat is far-reaching and indiscriminate. As the man in charge, you will be tasked with deciding where and when to respond to the disturbances across the United States, and how best to use the limited resources at your disposal. Your choices and efforts have a direct involvement in the creation of new tools and technology that will aid in your battle to save mankind. But make a bad decision, and the consequences will be felt most by those you have failed.
  • Struggle Against a Faceless Enemy: Knowledge is power. Confront the enemy in the field, and conduct research and investigation to learn more about them. Command your science and engineering teams to build tools to exploit their weaknesses as you struggle to gain the upper hand against the growing threat.
  • No Two Experiences Are the Same: The player-driven, yet narrative-rich campaign progresses according to your choices and performance, while dynamic, unscripted conditions and emergent combat systems ensure that no two field operations play out the same way
  • Civilization 5 komin með útgáfudag

    civ5

    2K eru búnir að staðfesta að Civilization 5 er komin með útgáfudag. Hann er dagsettur þann 21 September 2010 á PC. Einnig eru þeir búnir að endurhanna vefsíðu sínu með nýjum upplýsingum um leikinn.

    2K Games announced today that Sid Meier’s Civilization® V will be available in North America on September 21, 2010 and internationally on September 24, 2010 for Windows PC. Sid Meier’s Civilization® V is currently in development at Firaxis Games. The Sid Meier’s Civilization franchise has been recognized as one of the greatest PC game franchises of all time, captivating millions of gamers around the world.

    Sid Meier’s Civilization V reinvigorates the classic turn-based strategy genre with an astonishing new engine built from the ground-up for this flagship edition of the Civilization franchise. Players are introduced to a heightened tactical combat system; vast, realistic landscapes to explore; deeper diplomatic interactions; and an array of expanded features that deliver a fully immersive experience providing hours of entertainment as players build and defend their empire on their quest to become the greatest ruler the world has ever known. Additionally, the new in-game community hub allows Civ fans to share content and compete against each other without leaving the game, marking a new era that will forever change the “one more turn” addiction of the franchise.

    Sid Meier’s Civilization V will be viewable by invitation during E3 2010 at 2K’s booth (South Hall, #2823). Sid Meier’s Civilization V is not yet rated by the ESRB. For more information on Sid Meier’s Civilization V, please visit www.civilization5.com.

    Kv. GameTíví