
Sænska fyrirtækið DICE er búið að vera að lofa að þegar 1.Miljón manns gerir Like á Facebook síðu þeirra fyrir Battlefield 3 skotleik þeirra muni opnast fyrir 12 mín langt myndbrot úr leiknum sem er hluti af myndaröð þeirra af leiknum sem er búið að vera að koma út síðustu vikurnar. Eitthvað hefur aðeins klikkað einhver staðar og myndbandið dúkkaði uppá Kotaku um miðjan daginn.
Við vorum snöggir að horfa á það og dást af og ákvaðum að bíða andartak og sjá hvort að það hyrfi aftur af netinu áður en við smelltum upp frétt af þessu myndbroti. Við getum ekki mælt nógu sterkt með að horfa á það í 720p myndgæðum, og þegar að DICE gefur það opinberlega út verður hægt að slefa yfir þessu í 1920x1080p gæðum.
Það þarf helst að horfa á myndbandið nokkrum sinnum til að gera sér grein fyrir hvers konar skrýmsli DICE er að búa hérna til. Ef að Bobby Kotick og félagar hjá Activision hljóta ekki að vera orðnir pínu stressaðir um útgáfuna næsta Nóvember þegar að BF3 mætir næsta Call of Duty leik.
Kv.
GameTíví




































Nýleg comment