- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Archive for the 'Greinar og pistlar' Category

Upphitun fyrir Max Payne 3

Í dag eru meira en 9 ár liðin frá því Max Payne kom við sögu í formi tölvuleiks í leiknum Max Payne 2: Fall of Max Payne. Síðast sást til hans í samnefndri kvikmynd, Max Payne (2008) sem virtist ekki falla vel í kramið hjá aðdáendum seríunnar, enda er það afar sjaldan sem tölvuleikir gera það gott í kvikmyndum og öfugt. Kappinn hefur ekki sagt sitt síðasta og snýr hann aftur í nýjum leik, Max Payne 3 sem er væntanlegur í næstu viku fyrir Playstation 3 og Xbox 360, svo í næsta mánuði fyrir einkatölvurnar.

En hvað er svona sérstakt við Max Payne? Við hér á GameTíví.is tókum upp á því að hita upp fyrir þriðja hlutann með því að endurspila bæði Max Payne eitt og tvö til að koma sterkir til leiks þegar Max Payne 3 dettur loksins inn.

Það sem einkennir báða Max Payne leikina er að sagan er sögð í formi myndasögu í stað „cut-scene“ sem sést í svo mörgum leikjum nú til dags. Hann sækir innblástur sinn í noir kvikmyndastílinn þar sem sjálfur Max Payne segir sögu sína og leiðir þig um leið í gegnum þann hasar sem hann verður fyrir. Báðir leikirnir gerast á tveim til þremum nóttum frá því að sagan er fyrst sögð. Í upphaf leikjanna er komið að því þegar allt er á leið norður og niður en svo er þér hennt aftur í tímann eða þremur dögum áður en viðkomandi atburður á sér stað.

Sjálfur er Max Payne grjótharður nagli sem kallar ekki allt ömmu sína. Hann starfar hjá NYPD (New York Police Depardment) og er óhræddur að fara sína eigin leiðir, þrátt fyrir að hann komist í kast við lögin og þar að auki er hann eftirlýstur út um alla New York borg. Ólánið leikur heldur betur við honum því lengra sem haldið er og vilja flest allir glæpamenn hann feigann, því þeim er alls ekki vel við það sem Max Payne þefar upp. Hann er þó mannlegur rétt eins og ég og þú nema líf hans tekur á sig miklar breytingar sem leiðir til þess að hann neyðist til að leita svara frá hinum óhuggnalegustu aðilum og gengur þó lengra en flestir menn myndu í raun þora.

Max Payne, úr Max Payne eitt

Því fær engum leynt að leikirnir séu farnir að segja til sín daginn í dag og þá sérstaklega Max Payne eitt sem kom út fyrst árið 2001. Nýjasta útgáfa leiksins kom annars vega út fyrir iOS stýrikerfin í síðasta mánuði en sú útgáfa sem um er rædd er fyrir PC vélarnar. Leikirnir bjóða upp á fjöldan allan af vopnum frá skammbyssum, haglabyssum og yfir í sniper riffla sem þú getur valið á milli til þess að ganga frá þeim sem verða í vegi fyrir þér. Aftur á móti er sérsvið seríunnar hið svo kallaða „bullet time“ sem gefur þér kleift að hægja á tímanum til að ná stjórn á öllu því sem gerist í senn. Það er ómögulegt að komast í gegnum leikina án þess að nýta sér þann kost, enda veltur spilun leikjanna upp úr því sem gerir hana svo einstaka. Það sést hins vegar langar leiðir að framleiðendur leiksins höfðu reynt sig áfram með örlitlum feluleik, eða „stealth“ spilun sem tókst því miður afar illa að útfæra í Max Payne eitt. Þeir höfðu nefnilega óvart sett ósýnileg augu á hnakkanum á þeim ásamt lyktarskyni sem greinir þig úr marga metra fjarlægð.

Max Payne 2: The Fall of Max Payne gerir nærrum allt sem fyrsti leikurinn bauð upp á nema hvað að hann gerir allt mikið betur. Remedy gerðu allt hárrétt þegar kom að gerð leiksins. Þeir einfaldlega notuðu betrum bætta grafíkvél (MAX-FX 2.0), tóku gripinn allan í gegn og fíngerðu alla spilunina á öllum sviðum. Til að mynda er loks hægt að læðast upp að óvinum án þess að allir koma auga á þig um leið. Meiri að segja eru teikningarnar mun betri og skartar leikurinn öll þau smáatriði, svo sem hljóð og svipbrigði sem tengir þig mun betur inn í sjálfa söguna. Fullt af óvæntum uppákomum eru jafnvel bættar við sem við látum kjurrt liggja, ef þið skylduð vilja grípa í leikina áður en haldið er í þriðja gripinn.

 Örlitlar breytingar frá fyrri leiknum, eða hitt og heldur

Upplifunin er alveg einstök og er nokkuð ljóst að Remedy höfðu eitthvað að segja með velgengni seríunnar, ásamt Rockstar sem eru ekkert annað en fagmenn þegar kemur að gerð tölvuleikja. En í dag, nánartiltekið 18. maí kemur svo út þriðji gripurinn í seríunni sem á eflaust eftir að gleðja hjörtu harðkjarna Max Payne aðdáendur sem virðast vera ófáir þarna úti. Biðin hefur verið löng og ströng til dagsins í dag og hjálpaði ekki til þar sem leiknum hafði verið frestað nokkrum sinnum. En hvað þarf Max Payne 3 að skarta til þess að uppfilla þær kröfur sem gerðar eru til hans?

Graffíkin spilar mikið hlutverk í þessu framhaldi enda eru liðin þó nokkuð mörg ár frá síðustu innkomu kappans. Líkt og áður verður vonandi mikil áhersla lögð á „bullet time“ sem hefur gefið seríunni sérstakan svip hingað til, enda verður fátt betra en njóta þeirrar spilun í frábærum gæðum. Hins vegar buðu fyrri leikirnir ekki upp á maður á mann spilun þar sem hnefar voru beittir á loft. Ekki væri verra ef að Max Payne tæki upp á því að nota þá til þess að sýna óvinum í tvo heimanna, þ.e.a.s. ef þannig kringumstæður koma upp á.

Sverrir Bergmann mættur til leiks?

Andrúmsloftið hefur hingað til verið alveg sérstakt og má þakka noir kikmynda stílnum fyrir þau afbrigði. Það væri ekki verra ef Rockstar keyrðu söguna áfram á svipuðum hátt og Remedy gerðu áður fyrr með hjálp „cut-scenes“ í þokkabóti. Ekki sem minnst á frábæran söguþráð sem situr lengi og vel í manni eftir á. Fjölspilunin er annars vegar algjört aukaatriði til þess að lengja spilun leiksins, enda eiga eflaust margir eftir að missa sig yfir henni á einhvern hátt eða annan. Það hafa ekki mörgum tekist að keppa við fjölspilunarrisana sem eru þarna úti nú þegar, hver veit nema að hann eigi eftir að koma fólki í opna skjöldu og ná góðri velgengni? Nei, ætli það nokkuð..

Það er eflaust hægt að telja upp ótæmandi lista af frábærum atriðum sem búist er við í Max Payne 3, bæði af efni sem hefur nú þegar verið kynnt til sögu eða það sem á enn eftir að koma í ljós. Hvert stefnir til dæmis sagan með Max Payne að þessu sinni? Þetta er aðeins brot af því sem okkur datt í hug til þess að miðla með ykkur. Nú eru það Rockstar Games sem taka algjörlega við stjórnvölinn og það verður afar fróðlegt að sjá hvernig þeim tekst að útfæra sína útgáfu af Max Payne. Við höldum þó fast í vonina að allt gangi upp og við tökum breytingum með opnum örmum ef farið er rétt að þessu öllu saman.

Nú er ekkert annað í stöðunni en að skella sér út í búð og næla sér í gripinn. Ýtarleg Max Payne 3 umfjöllun er svo væntanleg á næstunni á vefnum okkar GameTíví.is.

- Daníel Rósinkrans

 

Umfjöllun: Dinner Date

Á stefnumóti með sjálfum mér.

Á degi Valentínusar var kjörið tækifæri til þess að taka því rólega, spila góðan leik eða tvo og njóta þessar stundar sem manni gefst svo sjaldan, eða þannig var það allavega hjá mér.

Valve ákvöðu að gera gott úr deginum og bjóða notendum sínum leik á sérstöku tilboði í tengslum við daginn. Leikurinn nefnist Dinner Date og kostaði einungis 317-krónur. Aldrei hafði ég áður heyrt getið til gripsins og hafði enga hugmynd að slíkur leikur varðandi stefnumót væri í raun og veru til. Fyrir forvitnis sakir ákvað ég að verða úr því að spila leikinn út í gegn og deila þeirri reynslu með ykkur.

Í stuttu máli snýst leikurinn, ef tölvuleik skyldi kalla, um komandi stefnumót sem ákveðinn aðili hefur lagt mikið á sig að undirbúa fyrir sig og hans heittelskuðu. Allt er nú þegar til reiðu, þ.e.a.s. forrétturinn kominn á borðið, rauðvínið klárt til drykkju og súpan alveg að verða til. Að einhverju hluta vegna er hún sein og okkar maður heldur fast í vonina að hún láti sjá sig í bráð. Þú gerir voðalítið sjálfur sem spilari annað en að ýta á örfáa takka á lyklaborðinu til að fá hann til þess að framkvæma ýmsar aðgerðir, svo sem fylgjast með tímanum, fá sér bita af brauði eða jafnvel laga bindið af og til svona 3-4 sinnum. Hins vegar ef þú neitar að gera einn skapaðan hlut gerir gervigreindin sér lítið fyrir og ákveður eitthvað sjálf með slembi aðferðum.

Dinner Date er drifinn áfram með hugsunum mannsins og allt það sem kviknar upp í kollinum á honum á meðan hann bíður eftir japönsku stúlkunni. Í raun og veru þrætir hann einungis við sjálfan sig hvort hún muni láta sjá á endanum eða hvort þetta hafi tóm þvæla eftir allt saman að bjóða henni í mat. Allt lítur út fyrir að þetta gæti verið raunverulegir atburðir í hvers dags lífi manns, en engu að síður eru skilaboð leiksins langt frá því að teljast spennandi.

Drekktu súpuna, hrærðu í henni eða einfaldlega leggðu skeiðina frá þér. Þitt er valið!

Þessi örstutta saga tekur sirka 20 mínútur að keyra í gegn og svo verður ekkert aftur snúið eftir það. Meiri að segja er leiknum skipt niður í fimm kafla, þ.e.a.s. ef þér skyldi nokkuð tímann detta það í hug endurspila leikinn. Hugmyndin á bak við hann er nokkuð áhugaverð samt sem áður. Það má líkja Dinner Date við einhvers konar stuttmynd í formi tölvuleiks þar sem framleiðandinn er að reyna koma einhverju til skila í gegnum spilarann sem einhvern veginn tekst voða illa allt saman. Grafík leiksins er líka voða óspennandi, þrátt fyrir að vera árs gamall leikur. Einnig er hægt að búa til nokkra notendur fyrir leikinn, ef þú vilt ekki að vinur þinn spili á þínu svæði. Ég hins vegar bæti stóru spurningar merki þar við, sé engan tilgang við þá hönnun.

Í lokin að þá mæli ég alls ekki með leiknum hvað sem hann kostar og er hann klárlega ekki  634 krónur virði, hvað þá með 50% afslætti. Sannir leikjaunnendur vita að sjálfsögðu betur þegar kemur að leikjakaupum. Ekki láta ykkur detta þessa dellu í hug, eyðið frekar pening í blómi eða góðu konfekti handa ástinni.

- Daníel Rósinkrans

Og já, hún lét aldrei sjá sig…

Q.U.B.E. umfjöllun

Nú hefur janúar mánuður tekið enda og útgáfudagar á nýjum leikjum hefur farið fækkandi upp á síðkastið til þess að jafna út allan þann leikjaunað sem streymdi yfir okkur seinni partinn síðasta árs. Enda er upphaf hvers árs glæsilegur tími til þess að ná sér niður og renna yfir í gegnum þá leiki sem menn eiga eftir að ljúka við og eiga betra skilið.

Ekki eru allir leikjaframleiðendur á því máli og nýta kannski mánuðinn til þess að ná góðum árangri á meðan leikjarisarnir undirbúa árið 2012 fyrir eitthvað mikilfenglegt. Indí fyrirtækið Toxic Games nýttu sér þann kost að minnsta kosti og gáfu út leikinn Q.U.B.E., eða Quick Understanding of Block Extrusion. Þeim hefur tekist að ná góðum árangri og hefur leikurinn nú þegar skilað inn hagnaði og gert upp kostnaðarverðið sem tók að búa til leikinn.

Hérna er fín kynning á leiknum frá Giantbomb síðunni sem dekkar hann sæmilega vel

En hvað er Q.U.B.E.?

Q.U.B.E. tilheyrir flokki þrautaleikja þar sem leikurinn fær fólk til þess að brjóta heilann og leysa hinar ýmsar þrautir til þess að komast á leiðarenda. Aðgerðirnar eru mjög einfaldar í hugsun þar sem leikurinn skartar einungis 5-6 kubba sem þjóna allir mismunandi hlutverki. Kubbunum er gefið ákveðin lit sem leiðbeina manni hvaða kubbur gerir hvað. Sem dæmi er blár kubbur notaður til þess að gefa persónu þinni stökkkraft til þess ná ákveðnum hæðum á meðan gulur býr til einhverns konar stiga á þrjá mismunandi vegu.

Q.U.B.E. minnir mikið á Portal frá Valve, nema hvað að hér fá spilendur önnur verkfæri í hendurnar sem þeir þurfa að notast við. Physics vélin er helsti óvinur spilarans að þessu sinni og hefðu Toxic Games mátt eyða meiri tíma í að gera hana betri. Leiknum er skipt niður í nokkur svæði sem gerir leikinn örlítið fjölbreyttan. Það má segja að 85% af leiknum sé unnið úr svörtu og hvítu en samt sem áður tekst framleiðendunum að skapa skemmtilegt umhverfi og sem gefur leiknum einstakt andrúmsloft, ólíkt flestum leikjum nú til dags. Þó varir leikurinn aðeins í 3-4 klukkustundir en hann réttlætir þó allan þann tíma fyrir frumleika sinn.

Það er óhætt að mæla með Quick Understanding of Block Extrusion frá Toxic Games og fæst leikurinn eingöngu á Steam vefversluninni eins og er á aðeins $14.99. Þeir sem vilja skemmtilegan og fjölbreyttan þrautaleik ættu að tékka á Q.U.B.E., allavega á sýnishorni leiksins.

- Daníel Rósinkrans

E3 Kynning Nintendo

Þá er síðustu stóru E3 kynningunni lokið og Nintendo er nýbúið að kynna sitt efni fyrir árið og það sem koma skal á næsta ári.

Það fyrsta sem við fengum var sinfoníuhljómveit sem flutti lög úr Zelda leikjum síðustu 25 ára, Shigeru Miyamoto steig á sviðið og ræddi hvernig þeir myndu fagna þessum áfanga með leikjum á vélar Nintendo yfir árið. Það verður tónleikaröð um heiminn í haust ásamt tónlist sem verður gefin út á geisladiski.

The Legend of Zelda: Link’s Awakening verður fyrsti Game Boy Color leikurinn sem kemur út fyrir 3DS eShop búðina í lok dagsins í dag. The Legend of Zelda: Four Swords kemur út á DSware í Október og verður frír. Klassíski leikurinn Excitebike fær 3D útgáfu og verður frítt niðurhald í eShop 3DS vélarinnar. The Legend of Zelda: Skyward Sword kemur út fyrir Nintendo Wii í lok ársins.

Satoru Iwata forseti Nintendo kynnti leiki sem eru á leiðinni fyrir 3DS sem eru; Mario Kart, Star Fox 3D, Super Mario Bros 3D, Kid Icarus og Luigi’s Mansion 2. Leikirnir koma út á þessu ári. Kid Icarus inniheldur 3 móti 3 fjölspilun og stuðning við “augmented reality” spilin sem 3DS getur notast við.

3rd Party leikja demó var sýnt og innihélt leiki eins og; Resident Evil. Mario & Sonic Olympics. Ace Combat 3D. Tetris Online. Cave Story 3D. Another Resident Evil. Driver Renegade. Pac-Man & Galaga. Tekken 3D. Metal Gear Solid Snake Eater 3D.

Gæti þetta orðið að nýjum The Legend of Zelda leik fyrir Wii U?

Reggie Fils-Aime steig á sviðið og staðfesti að næsta leikjavél Nintendo héti Wii U, nafnið kom mörgum talsvert á óvart sem bjuggust við nýju nafni. Nýjar fjarstýringin var sýnd og leyfir leikmönnum að færa leikinn úr sjónvarpinu þegar aðrir vilja nota það og yfir á fjarstýringuna beint til að spila. Það eru tveir analog takkar, kross,  framan verðir takkar, axlar takkar ásamt öðrum. Skjárinn er 6.2 tommur og er með snertimöguleikum, það er ekki multitouch eins og á tækjum Apple. Hægt er að nota stylus penna á skjánum.

Wii U virkar með öllum Wii motes, Wii Balance brettinu og öðrum tækjum, það er titringur, hraðamælir, míkrafónn, hátalarar. Wii U mun spila alla Wii leiki. Wii leikirnir munu þó ekki verða uppfærðir í HD eða uppskalaðir í þá upplausn. Reggie sagði í viðtali við Gametrailers að það væri útaf mismuninum á vélbúnaði í Wii U.

Spekkar: Við vitum að vélin mun nota sitt eigið háskerpudiska kerfi, styður 1080p, 1080i, 720p, 480p upplausnir, notast við HDMI ásamt Composite og Component skjátengjum, sex rása PCM linear output hljóð í gegnum HDMI. Verður með innbyggt flash minni ásamt möguleika að bæta við í gegnum SD minniskort og utanliggjandi USB harðan disk. CPU vélarinn keyrir á IBP Power byggjum örgjafa. Það eru 4 USB 2.0 raufar á vélinni.

Tæknilegt demó sem sýndi Japansk landslag með fuglum, blómum og fiskum átti að sýna tæknilega og grafíska getu vélarinnar og ef að marka má Twitter færslu Mark Rein hjá Epic þá keyrði það á Unreal 3 grafík vélinni.

Saturu Iwata staðfesti að Masahiro Sakurai er að vinna að nýjum Smash Bros leik fyrir 3DS og Wii U.

Reggie staðfesti New Super Mario Bros. Mii og LEGO City stories.

Næst var sýnt myndband af þekktum leikjahönnuðum frá öllum helstu stúdíóum og útgefundum þar sem að þeir ræddu nýju tæknina og að búa til leiki fyrir það.

Næst kom það stóra og leikir eins og Darksiders II, Dirt, Aliens: Colonial Marines, Tom Clancy’s Ghost Recon Online, Metro: Last Light, Tekken, Ninja Gaiden 3: Razor’s Edge og Batman: Arkham City munu allir koma út á nýju vélina og sýna að harðari og blóðugri leikir snúa aftur á Nintendo leikjavélina. Það var þó tekið fram eftir á að þessir leikir í vídeóinu voru tekin úr Xbox360/PS3 útgáfum leikjanna.

John Rccitiello forstjóri EA steig á sviði og ræddi um þá möguleika að færa stóru titla EA yfir á Wii U, hann staðfesti þó enga fasta leiki.

Reggie Fils-Aime mætti svo á sviðið á ný og þakkaði fólki fyrir viðbrögðin og sagði að þeir myndu kynna meira á E3 sýningunni sjálfri.

Þetta var nokkuð góð sýning hjá Nintendo og það eina sem var skrítið var að þeir voru í raun ekkert að sýna vélina heldur bara nýju fjarstýringuna, engin útgáfudagur eða verð var heldur rætt. Spurning að við þurfum að bíða til E3 2012 eftir þeim fréttum?

Kv.
GameTíví

E3 Kynning Sony

Sony steig síðast á sviðið í kvöld og endaði fyrsta daginn á E3 þó að opinberlega telst hann ekki byrja fyrr en á morgun. Það er búið að bíða mikið eftir þessari kynningu, sérstaklega í tilefni alls þess sem hefur gengið á undan.

Jack Trenton mætti á sviðið og byrjaði að ræða niður tíma PlayStation Network og hve þakklátir þeir væru fyrir allan stuðninginn.

Evan Wells og Christophe Balestra frá Naughty Dog komu á sviðið og sýndu Uncharted 3: Drake’s Deception sem leit rosalega vel út. Það var staðfest að það yrði full fjölspiluna prufa en ekki takmörkuð Beta. Leikurinn kemur síðan 1.11.2011.

Næstu á sviðið var Markus Smith frá Insomniac Games og sýndi hann Resistance 3 skotleikinn sem kemur út í byrjun September.

Sony sýndi God of War PSP leikina sem fá HD uppfærslu á PS3. ICO og Shadow of the Colossus kemur í September og verður í HD fíling ásamt að styðja 3D.

NBA 2K12 var kynntur og Kobe Bryant frá Los Angeles Lakers var á sviðinu til að spila leikinn.

Medieval Moves: Deadmund’s Quest var sýndur og er galdra þemaður Move leikur í honum er hægt að berjast með boga, sverðum og kasta stjörnum.

inFamous 2 var sýndur og er eimmit að koma í búðir í vikunni um allan heim. Uppfærsala er í vændum sem styður PlayStation Move hreyfitæknina. LittleBigPlanet 2 fær einnig Move uppfærslu í haust.

Starhawk leikur Lightbox Interactive fyrrum hönnuða Warhawk var kynntur og er hægt að segja að þessi sé hálfgerð framtíðar útgáfa þess leiks, en sem skartar raunverulegri sögu og endurbættri fjölspilun.

Sly Cooper 4: Thieves in Time kemur út 2012.

Eitt af því sem kom okkur skemmtilega á óvart var að sjá Hilmar Pétursson frá CCP fyrirtækinu koma á sviðið og staðfesta að skotleikur þeirra Dust 514 muni eingöngu koma út á PlayStation 3. Dust mun tengjast við EVE-Online netleikinn í einn stóran netleik. Einn heimur, eitt stríð. Dust 514 mun styðja PlayStation Move tæknina og tenging við nýju lófavél Sony. Heimasíða leiksins er hérna.

Bioshock Infinite sýndur og Ken Levine hönnuður leiksins mætti á sviðið. Hann var pínu vandræðalegur þegar að hann útskýrði að hann hefði ekki verið mikill stuðningsmaður Move tækninnar en eftir símtal frá Sony hafði það breyst. Leikurinn styður Move, mun fá sýna eigin útgáfa á lófavél Sony og PS3 útgáfan mun innihalda upprunalega Bioshock á Blu-Ray disknum.

Saint’s Row: The Third og nýji Star Trek leikurinn munu styðja Move. Nýji Star Trek leikurinn var sýndur í Alpha formi.

EA staðfesti að SSX muni fá fjallið Fuji eingöngu á PS3, Need for Speed: The Run inniheldur súperbíla og Battlefield 3 kemur með Battlefield 1943 á disknum.

Kazuo Hirai kom á sviðið og kynnti nýja nafn NGP lófavélarinnar og arftaka PSP. Vélin mun heita PlayStation Vita. Það eru tvær myndavélar, tveir snertiskjáir. Verður hægt að fá Wifi útgáfu á 249$ og 3G/Wifi útgáfu á 299$.

Það voru sýndir leikir fyrir Vita eins og; Uncharted: Golden Abyss. sem leit meiriháttar út, Ruin sem er RPG leikur og leyfir þér að færa árangurinn á milli Vita og PS3. Streetfighter x Tekken og mun hann innihald Cole McGrath úr inFamous.

Modnation Racers fær uppfærslu yfir á Vita og að sögn Sony er lagt talsvert í það, LittleBigPlanet fær einnig útgáfu og inniheldur mikið af hlutum úr LBP2.

Sony stóð sig bara mjög vel og á góðan möguleika að “vinna” E3 eins og er kallað. En við eigum reyndar Nintendo eftir sem eru kl. 16:00 í dag og það ætti að verða forvitnilegt að sjá.

Kv.
GameTíví

E3 Kynning Ubisoft

E3 kynningu Ubisoft fyrirtækisins lauk fyrir stuttu. Eftir mjög sýrða kynningu í fyrra sem var meira um nærri allt nema leikina í fyrra. Þeir sneru tilbaka þetta árið og fókusaði á það sem skipti mál og það eru gæða leikir.

Fyrstur á sviðið er leikurinn Rayman Origins og virðist ætla að verða skemmtilegur hopp og skopp leikur. Það verða nýjar persónur og borð sem hafa ekki sést áður. Kemur út næsta vetur á 3DS/Wii/Xbox360/PS3.

Driver San Fransico mun færa leikmönnum nýju fjölspilun og sögu sem ætti að halda leikmönnum vel upteknum tímunum saman. Þetta á að verða endur risa seríunnar eftir slaka 2 leiki áður.

FarCry 3 mætti á svæðið með mjög flott sýnishorn og snýr leikurinn aftur til grænna frumskógareyja. Sagan virðist vera mjög dökk og er áherslan lögð á að lifa af. Kemur 2012.

Randy Pitchford frá Gearbox Software mætti á sviðið og bjuggust margir við að hann myndi kynna framhaldið að Brothers In Arms: Hell’s Highway. Fólkið fékk svona hálfpartinn það, leikurinn sem hann kynnti var Brothers in Arms: Furious 4 sem verður pínu geggjaður seinni heimsstyrjaldar leikur í anda Inglorious Basterds myndar Quentin Tarantino. Leikurinn segir sögu fjögurra hermanna í Þýskalandi umkringda af Nasistum. Leikurinn á að koma á næsta ári.

Tom Clancy’s Ghost Recon: Future Soldier skotleikurinn var sýndur og hefur hann gengið í gegnum talsverða breytingu frá E3 í fyrra. 4 manna Co-Op spilun með taktísku ívafi. Ubisoft kynnti einnig Ghost Recon Online sem er frír netleikur á PC sem á að fara í loftið á næstunni og er hægt að skrá sig í Betuna núna.

Það er nýr kanínu leikur í vinslu fyrir Kinect hreyfitækni Xbox 360. Leikurinn heitir Raving Rabbids Alive & Kicking og inniheldur ótal mini leiki. Leikurinn styður Facebook stuðning og er hægt að senda myndir úr Kinect vélinni og deila með vinum.

Just Dance 3 var kynntur og mun halda æðinu áfram á Wii/PS3 og Xbox 360.

Rocksmith tónlistar leikurinn var sýndur og mun kenna fólki á að spila á gítar með því að stinga raunverulegum gítar í PS3 eða Xbox 360 til að læra að spila eins og gítarhetjan ykkar.

Your Shape: Fitness Evolved kemur í Nóvember með nýjum æfingum, þjálfunum sem eru sniðan að þörfum hvers og eins og góðar leiðir til að tengjast vinum þeirra og bera saman.

Það var síðan sýnd myndbrot úr TinTin (Tinna) leiknum sem leit virkilega vel út og síðan TrackMania 2 Canyon bílaleiknum.

Ubisoft endaði þetta síðan á Assassin’s Creed: Revalations, fyrst var sýndur CGI trailer sem var meiriháttar og má finna á Facebook síðunni okkar. Eftir það var sýnd spilun úr leiknum. Leikurinn virðist ætla að halda áfram að bæta seríuna með hverjum leik og mun líklega enda sögu Ezio með stæl og sýna hann á slóðum Altair einni af sögupersónu fyrsta leiksins.

Að mestu stóðu Ubisoft sig frekar vel og bættu upp fyrir ruglið sem var á kynningunni í fyrra, þrátt fyrir það var nokkur sérviska í gangi en það á ekki að koma á óvart þar sem að Ubisoft er Franskt fyrirtæki.

Kv.
GameTíví

E3 Kynning EA

E3 kynning EA lauk fyrir stuttu og lagði áherslu á 9 leiki sem þeir munu gefa út á næstu 12 mánuðum.

Fjörið byrjaði með kynningu á Mass Effect 3 sem lookaði hrikalega vel út og lítur út fyrir að verða epískur leikur. Jörðin liggur undir árás og þurfa Sheppard og vinir hans að gera allt til að bjarga henni. Kemur út 6. Mars 2012.

Star Wars: The Old Republic var sýndur á ný og lofar mjög góðu. Eina sem olli vonbrigðum var að þeir minntust ekkert á útgáfudag á honum eða Betuna.

SSX snjótbrettaleikurinn var sýndur og lítur meiriháttar vel út. Heimurinn er unnin uppúr gögnum frá NASA geimferðastofnunni. Hægt verður að hoppa fram að klettum og opna flugbúninga. Kemur í Janúar 2012.

Need for Speed: The Run leikur Black Box og EA var sýndur og keyrir á Frostbite 2.0 grafíkvél DICE þeirri sömu og keyrir Battlefield 3. Autolog kerfið er byggt inní alla parta leiksins og leggur mikkla áherslu á sögu, sumir partar leiksins eru utan bílanna.

FIFA 12 var kynntur og lofar að halda áfram að betrumbæta bestu íþrótta seríuna á markaðnum í dag. Meðal nýjunga er; taktísk vörn, meir boltastjórnun, nýtt kerfi sem mælir áhrif leikmanna á hvern annan og býr til raunverulegri meiðsli og spilun (er búið að vera í hönnun í 2 ár), EA Sports Football Club er kynntur og er ný frí netþjónusta leiksins sem tengist við Facebook ofl.

Madden 12 var kynntur, þurfum við virkilega að ræða það eitthvað nánar?

The Sims Social er nýr Facebook leikur sem á að keppa við leiki eins og Farmville ofl.

Kingdoms of Amalur: Reckoning var sýndur. Leikurinn er nýr RPG leikur frá 38 Studios og skartar yfir 100 tímum í spilun og gerist í opnum heimi. Er hannaður af Ken Rolston einum af yfirhönnuðum The Elder Scrolls IV: Oblivion, R.A. Salvatore rithöfundi og síðan Todd Todd Mcfarlane hönnuði Spawn teikniblaða seríunnar. Kemur á PS3/Xbox 360 á næsta ári.

Insomniac Studios sem eru þekktastir fyrir Resistance og Rachet & Clank leiki þeirra fyrir PlayStation leikjavélarnar mættu á sviðið og kynntu Overstrike sem er þeirra fyrsti leikur fyrir Xbox 360 og PS3. Leikurinn er skemmtilegur og æsifenginn leikur þar sem að litrík og flott vopn og tæki koma við sögu í skemmtilegum leik.

EA endaði þetta á risaleiknum Battlefield 3 sem leit meiriháttar vel út og sýnir virkilega hvað Frostbite 2 grafíkvél DICE getur gert.

Everything in the environments can be destroyed
Huge landscapes with a massive draw distance
Amazing audio from real weapons, explosions and more
Multiplatform open Beta in September
PC gameplay demo of Tehran desert shown

  • Graphics and scale of the battlefield is lifelike and amazing
  • Massive tanks on tanks firefight
  • smoke and explosions fill the screen
  • Fighter jets and bombers fly over head

October 25th release date.

Það verður frítt tölfræðikerfi ekki ólíkt Call of Duty Elite kerfi Activision, en verður algerlega frítt.

Það verður að segjast að kynning EA var bara þrusugóð og eini vankanntur hennar var að það vantaði algerlega dagsetningu fyrir Star Wars: The Old Republic MMO netleik EA og BIoware.

Kv.
GameTíví

E3 kynning Microsoft

Þá er E3 byrjað með kynningu Microsoft fyrirtækisins sem er undanfari sýningarinnar sem byrjar á morgun. EA, Ubisoft og Sony verða með kynningar í kvöld sem við munum dekka að auki hérna á síðunni og á Facebook.

Við erum en pínu að melta kynninguna frá Microsoft og hvað okkur fannst um hana. Það voru margir spennandi leikir í boði, en í raun lítið sem var ekki vitað um áður. Kinect lék stórt hlutverk bæði í stóru leikjunum sem viðbót við þá og síðan í Kinect titlum sem eiga að höfða til víðs markhóps og koma inná sölu Wii og PlayStation Move leikja búumst við sterklega við.

Það sem vantaði að okkur mati voru þessi stóru AAA leikir sem koma eingöngu á Xbox 360 og keppa við stóru titla Sony, líkleg ástæða á skorti þeirra leikja má rekja til aukins fókus Microsoft á Kinect og að þeir lokuðu nærri öllum þeirra eigin stúdíóum fyrir nokkrum árum og núna erum við að sjá afleiðingar þess.

Hérna er það helsta sem var kynnt.

  • Kicks off with Modern Warfare 3 trailer. Shows underwater footage and submarine. New York has been obliterated. Robert Bowling takes the stage. As mentioned previously, DLCs for MW3 will hit the 360 first. Next up is Tomb Raider.
  • Madden / EA Sports with Peter Moore. Four games will have Kinect support.
  • Ray Muyzka – Mass Effect 3 will have Kinect support. Trigger dialogue in the game with voice recognition.
  • XBLA is getting YouTube and Bing, Xbox Live TV, more voice command usage.
  • Gears of War footage shown, CliffyB hits the stage. Ice-T joins Cliff on stage. Very long gameplay trailer shown.
  • Crytek announced “Ryse” with a trailer. The game will be for Kinect. Looks like a first-person medieval RPG / combat game. Smokin’!
  • Forza 4
  • Peter Molyneux – Fable: The Journey Announced – Kinect support. Looks sweet.
  • Minecraft heading to XBLA.
  • Kinect Disneyland Adventures announced.
  • Kinect Star Wars looks spiff-o-licious, lots of flying but hand-to-hand combat looks a bit slow-paced. The guy demonstrating on stage is jumping and swinging. Looks like a whole lot of physically demanding hard work!
  • Tim Schafer- Double Fine / Warner Bros. title announced called “Once Upon A Monster”, Sesame Street type stuff. Father and son on stage playing a round. I see trouser snake.
  • Kinect Fun Labs announced, play with the latest Kinect gadgets from both developers and the community. Scan yourself to make an avatar which you can use in-game.
  • Dance Central 2, with voice commands and can import music from Dance Central 1, multiplayer dance-offs.
  • Voice search on 360, live TV, set for another record year to become #1 selling console globally.
  • Halo 4 announced for 2012.

Eins og má sjá var þetta frekar Kinect þungt, það sem stóð einna helst uppi að okkar mati var; Gears of War 3, Forza 4, Minecraft á Xbla, Dance Central 2, Halo: Combat Evolved HD endurgerð með Halo: Reach grafíkvélinni og Co-op í gegnum netið og síðan auðvitað Halo 4 næsta haust/vetur.

Við munum færa ykkur fréttir hérna og á fésinu af kynningum EA, Ubisoft og Sony í kvöld. Við vonum bara að kynning Ubi verði ekki eins slæm og blessaða byssu ruglið í fyrra.

Kv.
GameTíví

E3 dagskrá næstu daga

Í dag byrjar E3 fjörið, sýningin sjálf hefst á Þriðjudaginn en í dag eru fréttamannakynningar frá Microsoft, EA, Ubisoft og Sony og mun síðan Nintendo kynna sitt á Þriðjudags morgun að Bandarískum tíma.

Þessar kynningar eru einn stærsti hluti E3 sýningarinnar og það sem flestir í raun bíða eftir. Hvað leikir verða kynntir? Hvaða leikir missa af sýningunni? Verður Ubisoft kynningin jafn skrítin og í fyrra? Hvaða óvæntu hlutir gerast á sviðinu? Hver bombar á sviðinu og hver hreinlega stelur showinu? Þetta eru þessar klassísku spurningar sem koma árlega fram og við bíðum í eftirvæntingu eftir að vita svörin við.

Til að auðvelda ykkur að fylgjast með í beinni erum við með handhægan lista yfir helstu kynningarnar og hvenær þær fara fram ásamt tenglum á netstrauma ofl.

A.T.H. Eitt sem þarf að hafa í huga er að Vesturströnd Bandaríkjanna er 7 tímum á undan okkur í tíma. Svo á miðnætti hérna er klukkan bara 17:00 um daginn hjá þeim! Allar þær tölur sem eru hérna gefnar upp eru að Bandarískum tíma og þarf að muna 7 tíma muninn þegar er miðað við þær.

Hérna fyrir neðan á eftir Nintendo kynningunni er tímasetningar hjá E3 rás IGN E3 on YouTube af helstu leikjum og kynningum sem þeir munu kynna beint. Aftan við helstu kynningar er tengill til að horfa á þær beint frá viðeigandi aðilum, og Íslenskur tími á þær.

Mánudagurinn, 6. Júní

Microsoft Press Conference | 9:30am/16:30 Live Link
Electronic Arts Press Conference | 12:30pm/19:30 Live Link
Ubisoft Press Conference | 2:20pm/21:20 Live Link
Sony Press Conference | 5:00pm/24:00 Live Link

Þriðjudagurinn, 7. Júní

Nintendo Press Conference | 9:00am/16:00 Live Link
Mass Effect 3 | 1:00pm
Battlefield 3 | 1:30pm
Batman: Arkham City | 2:00pm
Resistance 3 | 3:00pm
Starhawk | 3:20pm
Twisted Metal | 3:40pm
Super Secret Sony Game | 4:00pm
Journey | 4:20pm
Uncharted 3: Drake’s Deception | 4:40pm
Gears of War 3 (Campaign) | 5:00pm
Super Secret Game #1 | 5:20pm
Super Secret Remake | 5:40pm
Super Secret Game #2 | 6:00pm
Modern Warfare 3 | 6:30pm

Miðvikudagurinn, 8. Júní

Spider-Man: Edge of Time | 11:00am
Dead Island | 11:20am
Gears of War 3 (Horde Mode) | 11:40am
Rage | Noon
Prey 2 | 12:20pm
The Elder Scrolls V: Skyrim | 12:40pm
Saints Row III | 1:00pm
Lord of the Rings: War in the North | 1:30pm
Ninja Gaiden III | 2:00pm
The Darkness II | 3:00pm
Street Fighter X Tekken | 3:20pm
Resident Evil: Operation Raccoon City | 3:40pm
Super Secret Sequel #1 | 4:00pm
Super Secret Sequel #2 | 4:20pm
Super Secret Sequel #3 | 4:40pm
WWE 12 | 5:20pm
Super Secret Sequel #4 | 5:40pm
Prototype 2 | 6:00pm
BioShock Infinite | 6:30pm

Hérna eru síðan aðrir straumar til að kíkja á það helsta sem er að gerast!

Að auki verða aðrar vefsíður með sitt eigið efni og strauma og munum við benda á það helsta.

GameTíví.is verður á vaktinni alla E3 sýningunna hérna á vefnum og á Facebook síðu okkar sem við verðum duglegir að setja inn fréttir og myndbönd af öllu því heitasta sem er að gerast á sýningunni. Svo það er um að gera að fylgjast með okkur á einni skemmtilegastu leikjaviku ársins.

Kv.
GameTíví

Heimild: VE3D

Hvaða leik ert ÞÚ að spila?

Okkur langar að prófa að bæta við nýjum lið hérna á GameTíví.is enn eina ferðina og felst hann í einni mjög einfaldri spurningu: Hvaða leik ert ÞÚ að spila þessa dagana? Sumarið er komið en það stöðvar ekki tölvuleikja spilunina, þó henni fer kannski örlítið minnkandi. :)

Hér fyrir neðan er smá texti um það sem við höfum verið að dunda okkur síðustu daga. Okkur langar hins vegar  til þess að heyra í ykkur hvað þið hafið verið spila undanfarna misserí, þannig endilega tjáið ykkar skoðun og setjið inn ummæli bæði hér á GameTíví.is og svo á Facebook síðunni okkar.

Dragon Age: Origins

Það er kannski smá skömmustulegt að detta inn í Dragon Age: Origins spilun loksins núna þegar Dragon Age 2 er nú þegar kominn út. Ég var því miður einn af þeim fáum sem lét þessa seríu fram hjá mér fara á tímabili þegar leikirnir komu út. En svo blasti við mér þetta frábæra tilboð, Dragon Age: Origins og Dragon Age: Origins – Awakening á $30 (sirka  3.500 kr.) á Steam á svo kallaðri EA viku og ég gat því miður ekki staðist það tilboð, enda sé ég ekki eftir neinni krónu sem ég spreðaði í þetta frábæra tilboð.

Í stuttu máli er Dragon Age: Origins frábær í spilun. Hann hefur elst mjög vel í gegnum tíðina og er óhætt að mæla með honum ef þú hefur ekki kynnst seríunni enn þá. Ég hef eytt núna tæpum 25 klukkustundum við spilun leiksins og er farinn að sjá fyrir enda leiksins, rétt aðeins núna. Rétt eins og allir aðrir BioWare leikir að þá er þessi enginn undantekning, þannig að ykkur er að sjálfsögðu óhætt að kaupa leik með því merki, það liggur við að aðeins það tryggir að leikurinn verður langur og frábær í spilun! Ég meina, hverjir eru ekki spenntir yfir Mass Effect 3 og Star Wars: The Old Republic?

- Daníel Rósinkrans

Operation Flashpoint: Red River

Fyrir stuttu síðan smellti ég mér á leikinn Operation Flashpoint: Red River og fékk ég mér hann á Xbox 360 eins og fyrri leikinn Operation Flashpoint: Dragon Rising. Eitt af því sem gerði fyrri leikinn svo góðan fyrir mér var að spila hann í Co-op í gegnum netið með þremur vinum. Það var reyndar oft hrikalega erfitt þegar að allir dóu og maður þurfti að endurtaka 45.mín aftur, en þess virði. Útaf þessum ástæðum hef ég beðið spenntur eftir Red River, ég er búin að rúlla í gegnum fyrstu tvö borð leiksins einn. Mér finnst oft gaman að spila einn fyrst í gegnum suma leiki áður en að ég spila með öðrum.

Það sem stendur uppi í leiknum hingað til er frábært lagaval þegar maður er í bílnum að fara á milli staða. Það er ekkert eins og að heyra tónlist með Pantera, Metallica og Megadeth til að koma manni í rétta gírinn. Það er aðgreinir OP: RR frá öðrum skotleikjum í Call of Duty gírnum er að hann fer í átt raunveruleikans en Hollywood kvikmyndar. Svo það er gott að passa upp á að laga sár hjá þér og 3 hermönnum sem gervigrein leiksins stjórnar. Það eina sem mér hefur fundið erfiðara við fyrri leik er umhverfið sem hann gerist í byrjun, í stað skóglendis þá er barist í opnum eyðirmerkum Mið Asíu þar sem er erfitt að fela sig og oft er barist úr langri fjarlægð og erfitt að sjá hvaðan skotin koma á þig í fljótu. Annars líst mér bara vel á leikinn og ég veit að hann verður bara enn betri með 3 vinum að spila í gegnum netið.

- Bumbuliuz

Continue reading ‘Hvaða leik ert ÞÚ að spila?’