- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Archive for the 'Leikjadómar' Category

Torchlight dómur GameTíví.is

Kynning:

Fyrir stuttu síðan kom út á Xbox Live Arcade þjónustu Xbox 360, hasar og RPG leikurinn Torchlight frá Runic Games.

Fyrirtækið er samsett af Max og Erich Schaefer sem eru fyrrum starfsmenn Blizzard North og vöru hönnuðir af Diablo I og Diablo II og síðan Travis Baldree sem hafði áður gert leikinn Fate.

Torchlight er hægt að segja að sé leikur undir sterkum áhrifum af Diablo seríunni þar sem að allt snýst um að kanna dýflyssur fullar af skrímslum og auðvitað nóg af phat loot.

Leikurinn kom út fyrst á PC í Október 2009 og hálfu ári síðar á Mac. Xbox 360 útgáfan er straumlínulöguð útgáfa af leiknum og löguð einstaklega vel að því að spila leikinn með fjarstýringu uppí sófa að kála skrímslum. 360 útgáfan inniheldur nýjar brynjur, nýtt gæludýr og nýja tækni sem Runic Games hefur notað við að búa til Torchlight II sem er ætlað að koma út í sumar.

Spilun og stjórnun

Þegar er hoppað inní leikinn er hægt að velja þrjá klassa;

Destroyer sem er Warrior týpa sem þykir ekkert betra en að vaða inní hasarinn vopnaður tveimur öxum og ganga frá öllum.

Alchemist sem er galdratýpan sem getur kastað frá sér eld og eldingar göldrum úr fjarlægð til að grilla óvinina, að auki er hægt að kalla til sýn dýr og vélmenni til aðstoðar.

Vanquisher er kvenn-ynja sem þykir ekkert betra en að nota boga og gildrur gegn óvinum hennar.

Blái X takki fjarstýringarinnar fær líklega mesta vinnuna þar sem að hann er notaður til að berja á óvinunum, síðan er hægt að mappa hægri og vinstri gikkinn fyrir galdra ásamt B og Y takkanum. LB og RB axlar takkarnir eru notaðir til að drekka snöggvast heilsu eða mana drykki í miðjum bardögunum.

Sagan sem slík í leiknum er ekki mikil og hreinlega þarf ekki að vera það í svona leik. Leikurinn dregur nafn sitt af bænum Torchlight sem er ekki búin að eiga góða daga og námurnar sem vinna hið dýrmæta Ember og ævintýramenn og fjárstjóðsleitendur fylkjast til bæjarins í leit að skjótfengnum gróða og aðdáun annara.

Leikmenn eru fengnir af Syl galdrakonu sem er að leita af meistara hennar Alric sem hefur horfið ofan í námurnar. Það er síðan hægt að fá fleiri verkefni frá bæjarbúum sem munu öll leiða leikmenn dýpra ofan í námurnar þar sem að þeir munu kafa dýpra og dýpra niður og sjá leyfar fornar siðmenningar og heilan helling af skrímslum sem vilja öll hafa þig í kvöldmatinn. Að lokum rekast leikmenn á Alric sem hefur spillst af Ember efninu í grjótinu og síðan skrímslið Ordrak sem er orsök alls sem hefur gerst áður.

Allt þetta er þó bara skemmtileg afsökun fyrir að vaða í gegnum ótal dýflyssur fullar af skrímslum og gulli. Runic Games hefur náð frekar vel Diablo formúlunni að fara djúpt ofan í iður jarðarinnar drepa fullt af skrímslum og fá fullt af flottu dóti og nota galdrabragð að hoppa aftur í bæinn eins og í gamla Diablo og fara aftur niður og endurtaka þetta aftur, og alveg eins og í Dibalo eru óvinirnir handhófskennt raðað aftur í leikinn til að gera reynsluna hálf endalausa.

Þú hækkar í level eins og í svo mörgum RPG leikjum, stigin sem þú færð hækka þetta klássíska eins og styrk, galdra, heilsu ofl, að auki við þetta færðu stig sem er hægt að raða í hæfileikatré eins og aftur í Diablo og velja sér hæfileika og bónusa sem leikmenn telja að komi að góðum notum. Þegar þú telur þig vera búin að ná öllu sem er hægt að gera, er hægt að setja gömlu hetjuna á eftirlaun og búa til nýja hetju sem verður afkomandi hennar og fær bónusa frá henni.

Eitt af því sem leikurinn gerir nýtt frá Diablo seríunni er gæludýrið og hvernig það virkar í leiknum, það kannast margir við að vera á kafi í svona leik og með fulla poka af dóti og það droppar feitt galdrasverð sem er með fjólubláum lit og gerir það Epic (eitthvað sem Wow leikmenn ættu að kannast við), og geta ekki tekið það vegna þess maður hefur ekki plássið. Svo þá vanalega var eina leiðin að skokka í bæinn sjálfur og selja draslið eða fleygja því á gólfi og taka upp það nýja og tapa peningunum á geta selt hið gamla.

Í Torchlight er auðveldlega hægt að ýta á back takkan á fjarstýringunni og setja dótið í poka gæludýrisins hvenær sem er og þegar greyjið getur ekki haldið á meiru þá er það bara sent tilbaka og selur góssið og kemur stuttu síðar hlaupandi tilbaka með gullið á sama tíma ert þú búin að vera að drepa kvikyndi vinstri hægri.

Ending leiksins er fín miðað við verð. Á Steam kostar leikurinn í dag 15$ og á Xbox Live Markerplace 1200 Ms puntka sem er jafn mikið. Ekki mikið myndi ég segja fyrir leik sem skarta um 8-10 spilun í fyrstu og er með sæmilega góða endingamöguleika. Ekki slæmt fyrir niðurhals leik, og á sama tíma eru það leikir útúr búð sem kostar kannski 11 þúsund krónur sem geta varla fært sambærilega lengd fyrir talsvert meiri pening. Það eru síðan leaderboards sem er hægt að bera sig saman við vini sýna og hvernig þeim hefur gengið, og auðvitað metist á ef að þér er búið að ganga betur að kála og græða en þeim.

Það er auðvellt að mæla með þessum leik, ég sat uppí sófa í þægindunum og spilaði þennan leik yfir nokkurn tíma og endaði í kringum 9 tíma spilaða í fyrstu umferð með minn Destroyer og hafði dritað niður yfir 7214 skrímsli af hinum ýmsu gerðum og unnið mér inn um 160 þúsund gullpeninga sem ættu að koma að góðum notum í ellini.

Ég mæli með þessu fyrir þá sem vilja fá smá Diablo fílinginn uppí sófa, ekki verður síðan verra ef að leikurinn gengur vel þá fáum við kannski Torchlight II á Xbox 360 og kannski hver veit PlayStation 3 líka.

Leikurinn fær frá mér þétta 8 í einkun af 10 mögulegum.

Skrifað af:Bumbuliuz © Sveinn A Gunnarsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.

Mín upplifun á DC Universe Online á PS3 #1


Persónurnar mínar í DCU í augnablikinu. Bumbuliuz Hetjan mín fremstur í flokki.

Í síðustu viku kom út netleikurinn DC Universe Online fyrir PC og Playstation 3. Markar leikurinn viss tímamót fyrir PS3 að vera fyrsti slíki netleikurinn að koma á markaðinn og hvernig honum mun ganga gæti haft áhrif á aðra slíka leiki sem eru í vinnslu eins og Final Fantasy XIV, The Agency ofl sem hafa ekki fengið neinn fastan útgáfu tíma.

Pæling mín í sambandi við þetta er að skrifa um mína upplifun spila leikinn og hvað mér þótti standa uppúr og ekki og er hugmynd að gera pistil um þetta nokkrum sinnum á næstu 2-3 vikum. Þetta er og verður líklega ekki beint gagnrýni um leikinn, enda er mjög erfitt að gagnrýna slíka leiki án þess að gefa sér nokkrar vikur í alvöru spilun til að geta gefið leiknum réttmætan séns og spilun. Líklega þó þegar upp verður staðið verður kannski hægt að kalla þetta óformlega gagnrýni af leiknum.

DCU eins og að hann er kallaður er hannaður af Sony Online Entertainment í samvinnu við WB Games og DC Comics og undir leiðsögn teiknarans Jim Lee sem sá um allt útlit leiksins og hönnun persónanna. Leikurinn keyrir á Unreal 3 grafíkvélinni sem keyrir leiki eins og Mass Effect seríuna, Gears of Wars, Bioshock 1-2 og Enslaved Oddysey to the West ásamt svo mörgum fleiri leikjum.

Fyrir þá sem vita ekki mikið um leikinn er þetta netleikur eingöngu þar sem þarf að borga fast áskriftargjald eftir 30 fría daga og þar sem að fólk getur búið til sýna útgáfu af hetju eða óþokka og gert verkefni, byggt persónuna upp og unnið sér inn verðlaun ásamt að spila með vinum og á móti þúsundum annara leikmanna á sama netþjóni og er þetta ekki ólíkt World of WarCraft leiknum þó að sögusviðið ofl sé annað. Það er viðbúið að þeir sem hafa gaman af söguheimi DC teiknimyndablaðana og halda t.d uppá Superman og Batman ofl ættu að finna eitthvað fyrir sig í þessum leik.

Alltaf gaman að geta flogið, littla dýrið mitt er þarna við hliðina á mér. Spurning að finna gælu nafn á hann?

Ég ákvað að spila leikinn á Playstation 3 til að sjá hvernig kemur út að spila svona leik með pinna í hendinni uppí sófa fyrir framan stórt stjónvarp. Ég þurfti að taka aðeins til á harða disk PS3 vélarinnar minnar, enda ennþá rúllandi vél síðan Mars 2007 og með 60GB hörðum diski sem hefur aldrei verið uppfærður. Fyrsta verkefnið var að sópa til og losa um nokkur GB til að vera yfir þeim 25GB sem kápan af leiknum tók fram að þyrfti. Síðan var smellt disknum í drifin og sóttur 130mb plástur af netinu, á meðan varð ég fyrst stressaður eftir að hafa talað við vin minn sem sagði að næst biði 11GB niðurhal í viðbót og þá leist mér ekkert á. Til allrar lukku miskildi hann eitthvað og það kom í ljós að þau voru keyrð á harða disk PS3 vélarinnar beint af Blu-Ray disknum sem leikurinn er á. Eftir það var komið inn beið tæplega 3GB plástur í viðbót til að sækja af netinu og þá var ég loksins tilbúin að spila. Fyrir þá sem eru ekki kunnugir þá er þetta mjög algeng upplifun á PC að setja uppá MMORPG leik. Eins og staðan er núna tekur leikurinn um 15GB af harða disk PS3 vélarinn minnar, stærri talan er líklega gefin upp í gegnum við uppfærslur og viðbætur af leiknum sem mun koma með tímanum enda vaxa svona leikir ávallt í stærð.

Núna var ég búin að gera allt klárt, Föstudagskvöld og öll helgin framundan og ískápurinn fullur og ég laus og liðugur þessa helgi og lítið annað að gera en að spila. Það var bara einn hlutur eftir að gera og það var að reyna að svara stóru spurningunni sem við spyrjum okkur svo oft, ertu Hetja eða Skúrkur? Fyrir þá sem ætla að spila eitthvað að viti þá mæli ég með góðu headsetti með míkrafóni og eða Usb eða Bluetooth lyklaborði. Það tekur alltof langan tíma að reyna að tjá sig án þessa tveggja hluta.

Að berjast við djöfla á húsþökum í Metropolis borg.

Ég ákvað að velja að búa til hetju í byrjun og auðvitað fékk hann nafnið Bumbuliuz og var með Superman sem kennarann sinn, hann er galdra týpa sem getur flogið. Ég byrjaði á PvP netþjóni. Fyrir þá sem ekki vita þá þýðir PvP=Player Vs. Player sem táknar að það er ávallt gott að láta augu vaxa í hnakkanum á sér þar sem að það leynast hættur all staðar. Það er síðan hægt að velja PvE netþjón sem táknar Player Vs. Enviroment (þá er ekki hægt að ráðast á þig af öðrum leikmönnum) og bjó ég til einn kvenn karakter þarna sem heitir Valean og er Hetja með Batman sem kennara.

Ég er búin að vera að rúlla í gegnum verkefni leiksins og prufað að spila með öðrum bæði sem hetja og skúrkur. Skúrkurinn minn heitir Rockefeller og er Lex Luthor kennarinn hans og fyrirmynd og lítur það grey vægast sagt ílla út og mun seint vinna neina fegurðarsamkeppni. Ég er komin með hann uppí Lvl. 10 líka en býst við að spila meira sem hetjan enda heillar það mig meira og minn stíl. Ég er að reyna að búa til mismunandi karaktera og prufa leikinn til að sjá sem mest af honum og hafa gaman af.

Smá hugsanir í lokin á þessu fyrsta parti á leiknum. Hann nær stíl DC Comics vel og persónunum og ekki sakar að fá raddleik frá leikurum eins og Adam Baldwin sem Superman, Kevin Conroy sem Batman, Mark Hamil sem Jókerinn og ofurnördinn Wil Wheaton sem Robin. Það má eimmit nefna að Conroy og Hamil raddsettu hinn frábæra Batman Arkham Asylum. Það er skemmtilegt að sjá að eftir að viss verkefni eru kláruð koma teiknuð leikin atriði sem minna á teiknimyndablöðin og eru hönnuð af Jim Lee sjálfum.

Ég tók eftir því að byrjunin á leiknum er ávallt sú sama óháð hvort að hetja eða skúrkur er valin. Þegar þú sleppur af skipi Braniacs byrjar þetta að breytjast pínu og endar þú í Metropolis eða Gotham útfrá hvaða hetju eða óþokka þú valdir að fylgja. Leikurinn er meira hasar en strategía oft og er stundum nóg að vera snöggur á að ýta á rétta takka á Dualshock 3 pinnanum en að pæla mikið á undan, en það virkar ekki alltaf. Það er samt augljóst að leikurinn hefur verið hugsaður með leikjavélarnar í huga og einfaldaður niður í kjarnann.

Eins og er í leiknum er hægt að ná hæðst Lvl.30 eins og er og eru margir sem ég sá komnir í 20+ þegar þetta er skrifað. Hvað gerist þegar að fyrstu 30 dagarnir eru búnir? Munu margir vera búnir að skella í toppinn? Þetta er það sem fylgir MMO leikjum og hefur Sony lofað að vera duglegir að gefa út efni fyrir leikinn og mun það koma út á sama tíma á PC og Playstation 3 að þeirra sögn. Það sem kannski angraði mig pínu í byrjun var hve stutt virtist vera á milli byrjunarsvæða hetja og skúrka og að maður virtist oft vera að rekast á þá frekar snemma þegar maður var að gera verkefni og oft þau sömu og þeir, og það var oft frekar algengt því miður að vera tekinn í bakaríið af einverjum sem var kannski 5-10+ lvl. hærra en þú sem er stundum súrt svona snemma í leiknum.

Eins og ég sagði, augu í hnakkanum myndu koma að góðum notum.

Jæja ég læt þetta duga um mínar pælingar á fyrstu dögunum að spila DC Universe Online. Ef að þið eruð að spila leikinn á Playstation 3 endilega sendið mér vinabeiðni á PSN og innan leiksins. Það er Bumbuliuz á báðum stöðum og við getum kannski spilað saman. Við höfum opnað þráð á spjallinu okkar fyrir leikmenn leiksins á PC og PS3 og er þar hægt að spjalla um leikinn og skipuleggja hitting ofl.

Afsakið myndgæðin, ég tók myndirnar með iPhone símanum mínum, mér langaði að hafa myndir af persónunum mínum þarna frekar en myndir frá útgefandanum.

Hafið augun opin fljótlega fyrir part #2 líklega í næstu viku :)

P.S. GameTíví bræður munu dæma dýrið í næsta þætti þann 27. Janúar Kl.19:15 í opinni dagskrá á Skjá Einum.

Skrifað af: Bumbuliuz ©
Sveinn A Gunnarsson
Öll afritun á texta og myndum er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.

Alpha Protocol Gagnrýni GameTíví.is

ap_ps3_final_fop_18-02-10_uk2

Kynning:

Alpha Protocol er nýr leikur frá hinu vel þekkta RPG stúdíói Obsidian Entertainment sem hefur gert leiki eins og Star Wars: Knights of the Old Republic II, Neverwinter Nights 2 ásamt 2 aukapakka og eru að vinna að Fallout: New Vegas sem kemur í haust og að lokum Dungeon Siege III sem kemur út 2011 á PC, Xbox 360 og PS3.

Semsagt nóg að gera hjá þessu stúdói í augnablikinu. Stóra spurningin er síðan hvernig tekst þeim upp með nýja leik sinn Alpha Protocol sem er nýlega komin í búðir á PC, PS3 og Xbox 360 og er RPG njósnaleikur þar sem að áhrif frá Jack Bauer úr 24 þáttunum, James Bond of njósnaranum og síðan Jason Bourne ofutöffaranum svífa öll yfir í leiknum og eiga þau samkvæmt Obsidian að gefa leikmönnum valkostina til að spila leikinn eftir sínu höfði.

Þú velur hvaða leið þú ferð, hvað þú segir og hvort að þú hleypur inn með allar byssur á lofti eða laumast inn bakdyramegin og tekur rafmagnið af plássinu og laumast í gengum skuggana og brýtur nokkra hálsa eða bara laumast framhjá öllum í áttina að takmarki þínu.

Spurning er svo bara hvernig kemur þetta allt saman út?

alpha-protocol-nudity
Hin dularfulla SIS. Vinur eða óvinur?

Saga:

Þú spilar sem ofurnaglinn Micheal Thornton og bakgrunnur þinn og reynsla miðað við hvaða valkosti þú velur í byrjun leiksins. Er hann harður nagli sem hefur barist í stríðum um víða veröld? Er hann Spec-ops gaur sem er vanur að gera það sem venjulegum hermönnum er ekki ætlað? Er hann silkimjúkur kvennabósi sem notar tæknina og sjarmann til að koma sér áfram? Allt þetta og meira hefur áhrif á persónuna þína og í statta á karakternum þínum.

Hvaða valkosti sem þú velur í byrjun þá endar þú í höfuðstöðvum Alpha Protocol sem er leynileg deild innan Bandaríkjanna sem fæstir vita af, þessi deild sér um að gera þau verk sem enginn vill viðurkenna að séu framkvæmd af neinum.

Eins og í mörgum klassískum njósnamyndum fer ýmislegt úrskeyðis í fyrsta verkefni Michael Thorntons. Fer hann á eftir grunuðum hryðjuverkamanni í Arabíu og endar á að vera brenndur af sínu eigin fólki. Á flótta undan öllum löggæslum heimsins þarf hann að hafa sig allan við að sanna sakleysi sitt og komast af því hver stendur á bakvið plottið gegn honum og í leiðinni stöðva að þriðja heimstyrjöldin fari í gang.

Á leiðinni í gegnum söguna hittir Thornton margar persónur og bregðast þær mismunandi við hvernig valkosti þú velur í samtölunum. Ákveðnar persónur heillast af daðri, ákveðni, fagmennsku eða stundum bara smá kjafti. Allt hefur þetta mismunandi áhrif á fólk og það spilar inní hvort að þú getur gert óvinina að þínum bandamönnum eða ekki. Það getur munað mikið t.d að fá vopn, upplýsingar og aðstoð í sumum verkefnunum þegar þú hefur vingast við vopnasala borgarinnar. Það eru 13 mismunandi hópar sem þú getur unnið með eða á móti og safnað upplýsingum um. Allt frá CIA, G22, Al-Shamad, Kínverska leynilögreglan, VCI, NSB(arftaki KGB), Rússneska mafían ofl og öll hafa þau sín eigin takmörk.

En á móti kemur, hvað ertu tilbúin að ganga langt til að ná hefndum og er þér sama á hvaða hátt?

alphaprotocskiltr
Hægt er að velja við hvert nýtt lvl. statta til að bæta sig og sérhæfa

Það sem mér fannst einna skemmtilegast við að spila í gegnum söguna var að mér fannst ég vera að hafa áhrif á hana og mínir valkostir höfðu eitthvað að segja, fólk gat dáið eða lifað útfrá hvað ég gerði. Leikurinn er mjög keimlíkur Mass Effect leik Bioware þegar að kemur að stíl og hvernig samtalskerfið virkað. Þú velur á milli 3-4 valkosta í samtölum og sérð ekki nákvæmlega hvað persóna þín segir heldur frekar stílinn, þegar er spilað í gegnum Recruit eða Veteran stillingarnar sem eru EKKI tengdar erfiðleikastillingunni sem slíkt þá opnast upp nýjir valkostir í samtölum. Ólíkt ME leiknum þá hefurðu takmarkaðan tíma til að velja hvað er sagt og setur það mann stundum í vanda þegar þú ert engan vegin viss um hvaða afleiðingar það getur haft og á spennandi augnablikum þar sem að allt er undir verður þetta bara enn erfiðara.

Umhverfi og spilun:

Leikurinn keyrir á Unreal 3 grafík vélinni sem hefur sést í svo mörgum leikjum í gegnum tíðina þar á meðal Mass Effect 1 og 2. Að mestu lítur leikurinn ágætlega út, en hann þjáist af því sem of margir Unreal leikir þjást af og það er “Texture poppin” sem þýðir að leikurinn þarf smá tíma til að hlaða sig inn, og getur það komið pínu asnalega út stundum.

Leikurinn fer víðsvegar um heiminn en gerist aðalega í Róm, Moskvu og Tapei og síðan í Bandaríkjunum. Í hverri borg er “safehouse” dulið frá Alpha Protocol sem Thornton dvelur í og er þetta hans griðarstaður til að safna upplýsingum frá vinum sem hann eignast, kaupa og selja vopn og upplýsingar. Einnig er hægt að breyta útliti hans og fötum hvenær sem er þarna.

Það sem er gott við leikinn er að þú hefur frelsi eftir fyrsta verkefnið að spila leikinn í þeirri röð sem þú villt og hvenær sem er á milli verkefna er hægt að hoppa frá Róm, Moskvu eða Tapei og tilbaka til tala við persónur eða taka aukaverkefni. Það er síðan gaman að sjá að persónur bregðast við þér síðar meir og kommenta á hluti sem þú hefur gert annar staðar í leiknum.

17949AP_Screenshot_20090807_03[1][3]
Það getur verið mikilvægt að velja rétt þar sem að tíminn er ávallt naumur

Ending:

Það mun taka flesta sem spila leikinn frá svona 12-25+ tíma að spila leikinn í gegn. Það fer mikið eftir hvort að þú gefur þér nægan tíma að skoða allt og gera öll aukaverkefnin eða hvort að það er hlaupið í gegnum leikinn. Stíllinn líka hvernig er spilað hefur áhrif á þetta og þeir sem nota byssuna sem mest eru líklega fljótari að spila leikinn. Óháð hve langan tíma tók að klára leikinn í fyrsta sinn mæli ég með að spila hann aftur og spila á annan hátt. Það er ekki vitlaust að velja Recruit fyrst og síðan Veteran upp að fá fjölbreytta spilun, þar er síðan hægt að sérsníða persónuna meira. Kosturinn við Veteran er að þú byrjar í lvl.3.

Lokarorð:

Eftir að hafa spilað leikinn núna 2 sinnum og prufað mismunandi stíla að fara í gegnum leikinn fannst ég verða var við skemmtilegan mun og það var gaman að sjá söguna breytast útfrá valkostum sem ég tók.

Alpha Protocol er metnaðarfullur leikur gerður af þekktu leikjastúdíói sem reynir að gera leik í anda leikja eins og Mass Effect frá Bioware og á mörgum sviðum tekst bara vel upp, það sem dregur leikinn niður eru villur í leiknum, texture poppið og aðrir vankantar sem gáfu til kynna að leikurinn hefði mátt vera aðeins lengur inn í leikjargerðarofninum.

Á sama tíma er þetta leikur sem er auðvellt að detta inní og fyrirgefa vankantana hans þar sem að hitt er mjög skemmtilegt fyrir þá sem hafa gaman að RPG leikjum og vilja fá valkosti og sjá afleiðingar þeirra í leiknum. Hann er ekki fullkominn og kannski ekki fyrir alla, en eins og svo margt í lífinu ef þú ert tilbúin að horfa framhjá nokkrum vanköntum og kannski 1-2 vörtum þá leynist þarna mjög fínn leikur sem er vel þess virði að kíkja á og stytta sér stundirnar þangað til að Fallout: New Vegas skilar sér í vetur.

GameTíví einkun: 7 af 10 Mögulegum

Skrifað af: Bumbuliuz
© Sveinn A Gunnarsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.

Bayonetta dómur Gametíví.is

bayonetta-mynd-1

Leður, stórar byssur, sverð, englar, djöflar, æsifengin hasaratriði og ýktir kvennmannskroppar allt er þetta hlutir sem leikmenn munu sjá þegar þeir fara í gegnum hinn svaðalega hasarleik Bayonetta frá Platinum Games sem hafa áður gert Okami, Vietfull Joe og Mad World.

Þú spilar sem hin undurfagra Norn Bayonetta sem er íklædd frá toppi til táar í þröngu leðri sem fær hjörtu leikmanna til að slá talsvert hraðar býst maður við, enda er ekki leiðinlegt að horfa á hana drita sig í gegnum skarann af skrímslum sem verða bara stærri og sýrðari þegar líður á leikinn.

Það er ekki hægt að kvarta undan hasarnum í leiknum og stoppar hann nær aldrei og eykst bara þegar líður á söguna.

bayonetta_lock

Þú rekst á óvini sem berja þig í hakk í byrjun og þú spyrð þig “hvernig kemst ég eiginlega framhjá þessum?” eftir smá hasar þá kemmstu yfir hann bara til að rekast  á 2-3 eins gaura á næsta horni! Þetta er algengt í leiknum og stigmagnast hann meira og meira og þummlarnir fá enga hvíld svo það er spurning hvort að það verði nauðsynlegt að vera með fötu af ís við hliðina á PS3 vélinni til vonar og vara.

Sagan segir frá Norn sem er haldinn minnisleysi sem ferðast um að reyna að uppgvöta sinn uppruna á meðan hún berst við óvini sem eru stundum það stórir að þeir ná yfir allan skjáinn. Hin klassíksa barátta á milli Ljósins og Myrkurs er háð og hægt og rólega uppgvötar Bayonetta sinn hluta í þeirri baráttu. Það er skemmtilegur húmor í leiknum að mestu þó stundum pínu skrítinn eins og Japönum einum sæmir.

Að stjórna leiknum tekur ekki langan tíma að læra, enn til að verða virkilega góður og gera geggjuðustu brögðin tekur smá tíma að læra á. Leikurinn skartar mörgum erfiðleikastillingum sem henta leikstíll nær allra og er jákvætt að sjá hvernig það er uppsett, sérstaklega fyrir þá sem eru ekki vanir að spila svona hraða leiki.

bayonetta1

Við viljum benda fólki á að endilega sækja plásturinn fyrir leikinn sem kom út um daginn sem bætir keyrsluna mikið og býður uppá þann möguleika að setja leikinn á harðadisk PS3 vélarinnar og bætir það leikinn mikið.

Ef að þú hefur gaman af leikjum eins og Devil May Cry, God of War eða Ninja Gaiden ættirðu að geta skemmt þér vel yfir þessari blóðugu og hasar mikklu ferð sem Bayonetta er.

bayonetta_butt

Við hérna á Gametíví.is gefum honum 7.5 af 10 og mælum með honum.