
Orðrómar um að The Elder Scrolls Online MMO netleikur hafi verið í vinnslu er búin að vera þráðlátur og höfum við sagt ykkur fréttir af því áður. Eins og oft er þá eiga orðrómar til að vera réttir og núna er engin undantekning.
Júní hefti Gameinformer mun innihalda fyrstu upplýsingarnar um The Elder Scrolls Online og er hægt að sjá kápu þeirra hérna fyrir neðan.

Leikurinn er unnin af Zenimax Online Studios og mun færa leikmönnum í þúsundavís þá fjölbreytni og könnum á heimum sem Elder Scrolls serían er þekkt fyrir. Leikmenn kanna nýjan kafla í sögu Elder Scrolls sem gerist þúsund árum fyrir atburði The Elder Scrolls V: Skyrim og segir frá því þegar Daedric prinsinn Molag Bal reynir að ná völdum yfir allri Tamriel.
“Það verður ótrúlega gaman að geta loksins kynnt hvað við höfum verið að vinna að síðustu árin,” sagði Matt Frior sem leiðir verkefnið og er vel vanur MMO bransanum og hafði áður unnið hjá Mythic að Dark Age of Camelot. “Allt liðið er sameinað í að búa til besta mögulega MMO leik fyrr og síðar – og þann sem stendur sem best undir The Elder Scrolls nafninu”.
Júni hefti Gameinfomer mun innihalda upplýsingar um hluti eins og einmennings ævintýri, dýfflissur og PvP spilun leiksins sem leikmenn munu keyra áfram. Það verða þrjár fylkingar til að velja á milli í baráttunni um Cyrodiil og hásæti Keisarans sjálfs.
Við munum síðan uppfæra fréttina þegar að Gameinformer munu verða með fyrsta sýnishornið úr leiknum ásamt skjáskotum úr honum.
Leikurinn verður líklega vel kynntur á E3 2012 eftir nokkrar vikur og er síðan áætlaður að koma út 2013 fyrir PC og Mac.
Kv.
GameTíví
Heimild: Gameinformer


Diablo III mun leyfa leikmönnum að spila á móti öðrum um allan heim í gegnum Global Play hluta leiksins að sögn Blizzard hönnuða leiksins








Nýleg comment