Aðeins lengur… hann fer alveg að koma!
Mikil eftirvænting ríkir yfir BioShock Infinite sem er í fullri framleiðslu þessa dagana undir handleiðslu Irrational Games sem bjuggu meðal annars til upprunalega BioShock leikinn sem margir kunnu að meta. Leikurinn átti upprunalega að koma út í október á þessu ári en þær leiðindar fregnir bárust frá Ken Levine í dag, aðalhönnuðum seríunnar, að leikurinn muni ekki ná þeim áfanga sem þeir stefndu á og verður útgáfudegi leiksins frestað þar til snemma á næsta ári
Aðal ástæðan á bak við seinkunina ku vera sú að þeir vildu enn frekari tíma til þess að gera leikinn enn þá betri en hann er nú þegar og bæta við fleira efni sem aðdáendur leikjanna eiga eftir að líka við.
Ken Levine hafði meðal annars þetta að segja til þess að kæta eftirvæntingafulla aðdáendur sína.
Við vorum nokkuð vongóðir með tímasetninguna þegar við tilkynntum útgáfudaginn fyrir BioShock Infinite síðastliðinn mars.
Ég er alls ekki að ýkja: BioShock Infintie er gríðarlega stór leikur, og við erum að gera hluti sem engin hefur hefur gert í fyrstu persónu skotleik. Við höfum haft svipaða reynslu með upprunalega BioShock, sem varð svo seinkað um nokkra mánuði þegar nær dróg að upprunalega útgáfudagins. Af hverju? Því að Stóru Feðurnir ( Big Daddies ) voru ekki þeir Stóru Feður sem þið þekkið og elskið í dag.
Hvað þýðir þetta fyrir ykkur? Þetta þýðir aðeins meiri bið, og það sem skiptir mestu máli, enn þá betri BioShock Infinite. Hið góða getur orðið betra, og við skuldum okkur sjálfum og aðdáendum okkar þessu tækifæri sem okkur gefst.
Seinkannir eru langt því frá að vera skemmtilegustu fréttir sem maður heyrir nú til dags, en með smá þolinmæði geta þær hins vegar marg borgað sig til lengdar svo að meistaraverkin líti enn betur út þegar loksins að þeim kemur. BioShock aðdáendur verða sem sagt að þrauka enn lengur þar til gripurinn loksins kemur þann 26. febrúar 2013.
En stóra spurningin er þessi.. Er þetta í raun og veru ástæðan fyrir seinkuninni? Hvað með Grand Thef Auto V, sem hefur ekki enn fengið staðfestan útgáfudag?
Michael nokkurn Pachter spáir GTA V í október!
Eins og flestir kannast nú við í dag eru aðrir með puttana í verkefnunum til þess að fjármagna þessi risastóru verkefni og sjá um að gefa út gripina þegar rétti tíminn gefst. Hingað til hafa flest allir GTA leikir, fyrir utan 4 sem var frestað fram í apríl á sínum tíma, verið gefnir út í október.
Það væri alls ekki svo vitlaus pæling að útgefandi beggja leikjanna, Take Two sjái betri kosti með því færa BioShock Infinite fram að næsta ári svo hann falli ekki í skugga undir GTA V sem, líkt og áður kom fram, hefur ekki enn fengið staðfestan útgáfudag.
Hver veit? En öllum þessum vangaveltum verður eflaust svarað þegar nær dregur að E3 sýningunni sem hefst í byrjun júní.
Heimildir: Eurogamer, Joystiq
- Daníel Rósinkrans
Nýleg comment