
Eflaust velta margir því fyrir sér hvað Nintendo ætlar að bjóða upp á þegar Nintendo 3DS kemur á markað. Eins og kunnugt er kynnti Nintendo til leiks glænýjan leik í Kid Icarus seríunni, en síðasti leikur í seríunni kom út á Game Boy fyrir hartnær 18 árum.
Kid Icarus verður þó ekki eini leikurinn sem 3DS mun bjóða upp á og á E3 voru sýndir nokkrir spennandi titlar sem munu koma út fyrir nýju leikjatölvuna. Meðal helstu titla eru:
Nintendogs + cats er ný útgáfa af gæludýraherminum vinsæla fyrir Nintendo DS. Grafíkin hefur verið bætt til muna, auk þess sem spilendur fá að leika sér við kelna kettlinga til viðbótar við krúttlegu hvolpana. Spilunin hefur ekki mikið breyst en við getum búist við að upplifunin sé önnur nú þegar þrívíddartæknin hefur bæst við og að dýrin muni reyna hvað best þau geta til þess að .


Metal Gear Solid 3D: Snake Eater er endurgerð af Metal Gear Solid 3: Snake Eater sem kom út á PlayStation 2 fyrir 5 árum. Einungis var stutt myndband úr leiknum sýnt á E3 þar sem notendur gátu lítið annað gert en stjórnað myndavélinni, en þeir sem hafa séð myndbandið hafa allir sagt að leikurinn líti jafnvel betur út á 3DS en hann gerði á PlayStation 3.


Kingdom Hearts 3D er annar af tveimur leikjum sem Square-Enix hefur sýnt skjáskot úr, en lítið hefur verið sagt um innihald hans. Hugsanlegt er að hann verði endurgerð af fyrsta Kingdom Hearts leiknum, með einhverjum breytingum, en einnig eru líkur á að hann verði glænýr…


Engin Nintendo vél væri fullkomin án Mario Kart og sýndi Nintendo brot úr Mario Kart fyrir 3DS á sýningunni. Ekki er vitað hvort hann muni koma út samhliða vélinni eða hvort hann muni koma út síðar meir, en hvenær sem það verður mun hann vekja ómælda hamingju fólks úti um allan heim enda hafa Mario Kart leikirnir alltaf notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina.


Aðdáendur Dead or Alive slagsmálaleikjanna geta fagnað því Koei-Tecmo vinnur hörðum höndum að nýjum Dead or Alive leik fyrir Nintendo 3DS. Leikirnir hafa þekktir fyrir skoppandi brjóst og líklegt er að þrívíddartæknin verði notuð til þess að sýna dýpt þegar þau skoppa.


Paper Mario hefur hingað til haldið sig við hefðbundnar leikjatölvur en Nintendo virðast staðráðnir að breyta því og hafa birt nokkur skjáskot úr Paper Mario fyrir 3DS. Leikurinn sver sig í ætt við Paper Mario fyrir Nintendo 64 og Paper Mario: The Thousand Year Door fyrir GameCube, þ.e.a.s. hlutverkaleikur í heimi þar sem allt er gert úr pappír.


Að lokum… hvað væri Nintendo án Zelda leiks? The Legend of Zelda: Ocarina of Time er löngu orðin klassík og á dagskrá Nintendo er að skella honum í þrívídd og gefa hann út á 3DS. Besti leikur allra tíma (samkvæmt GameRankings.com og Metacritic) fær loksins athyglina sem hann á skilið.


Þessir sjö leikir eru þó einungis nokkrir af mörgum leikjum sem eru í bígerð fyrir Nintendo 3DS. Tugir leikja frá 23 mismunandi framleiðendum eru í fullri framleiðslu svo líklega verður enginn leikjaskortur á fyrstu lífdögum vélarinnar.
Stóra spurningin er einfaldlega hvenær við fáum að líta gripinn augum!
zeldaoot3ds_ss01.pnger
Nýleg comment