
Eitt af því sem er órjúfanlegur hluti tölvuleikja í dag er hið óumflýjanlega DLC eða niðurhalsefni sem vanalega kemur út í nokkrun tíma eftir að tölvuleikur kemur út og bætir við nýju efni við leikinn til að lengja líftíma hans.
Það kemur fáum á óvart að Rockstar Games hafa kynnt að hasar leikur þeirra Max Payne 3 sem kemur eimmit út þann 15. Maí muni fá þéttan stuðning af DLC á næstu mánuðum og vikum.
Frá og með í þessari viku geta þeir sem ætla að fá sér Max Payne 3 forpantað Season pass (ekki ólíkan þeim sem L.A. Noire og Gears of War 3 t.d fengu), og mun hann gefa 35% afslátt af heildar verðinu. Passinn mun kosta 2400 Ms punkta eða $29.99/£19.99 á PC og PlayStation 3.
Fyrsta viðbótin við Max Payne 3 mun koma út í Júní og heita Local Justice Map Pack og mun bæta við fjölspilun leiksins.
Rockstar menn eru ekkert að spara það og hafa gefið út útgáfu áætlunina og nöfn þeirra DLC pakka sem eru í vændum:
Sumar 2012
- Disorganized Crime Map Pack
- Deathmatch Made In Heaven Mode Pack
- Hostage Negotiation Map Pack
- New York Minute Co-Op Pack
Haust 2012
- Painful Memories Map Pack
- Trickle Down Economics Map Pack
Við vitum ekki alveg hvað mun vera sögutengt fyrir utan Co-op pakkan síðasta í sumar en vonandi er Painfull Memories pakkinn sögutengdur líka.
Það styttist óðum í að Max Payne 3 komi út og bendir allt til að Rockstar Games séu með hittara í formi Max Payne 3.
Kv.
GameTíví
Heimild: Giantbomb

Diablo III mun leyfa leikmönnum að spila á móti öðrum um allan heim í gegnum Global Play hluta leiksins að sögn Blizzard hönnuða leiksins










Nýleg comment