- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Author Archive for gametivi

Ace Attorney að fá fimmta leikinn ásamt HD endurútgáfum

Aðdáendur Phoenix Writght geta glaðst, það er von á fimmta leiknum í Ace Attorney seríunni frá Capcom, serían er eimmit að halda uppá 10 ára afmæli sitt eins og er.

Ekkert var staðfest á hvaða vélar leikurinn kæmi út á, fyrstu 3 leikirnir munu fá endurútgáfu af iPhone 4 og iPad 2 ásamt Android síðar, í spes HD pakka.

Phoenix Wright, Justice for All, Trials and Tribulations – munu allir koma með nýrri háskerpu grafík. Leikmenn fá fyrstu kaflana fría og verður hægt að kaupa fleiri á um £5 miðað við Japanska verðið, það er síðan hægt að fá allt saman á £10. Þeir sem eiga fyrsta Phoenix Wright leikinn fyrir iOS eiga að geta fært árángur sinn yfir í nýju HD útgáfurnar.

Plönin fyrir útgáfu í N-Ameríku og Evrópu eiga eftir að verða staðfest uppá dagsetningar og munum við koma með fréttir um þau þegar nær dregur.

Annars geta þeir sem kunna Japönsku séð núna í Febrúar Phoenix Wright kvikmyndina, við vonumst til að hún skili sér hingað á næstu mánuðum með Enskum texta svo við getum notið þess líka.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

EA á góðri siglingu

Eitt stærsta tölvuleikja fyrirtækið í heiminum, EA er búið að gefa út tölurnar þeirra fyrir síðasta ársfjórðunginn. Það er nóg úr að moða í tölunum sem EA gaf út frá sér.

FIFA og Batlefield 3 eru bæði búin að selja í yfir 10. Miljón eintökum hver og svíns skins leikurinn Madden heillaði yfir 5. Miljón manns að grípa hann.

  • Origin þjónustan er með 9.3 Milljón notendur.
  • The Old Republic seldist í yfir 2. Miljónum eintaka og er þá meðtalið stafræn sala.
  • TOR er með um 1.7 Miljón virka notendur, og um 300 þúsund sem hafa ekki haldið áfram eða hætt.
  • Meirihluti þessara 1.7 Miljón eru fastir áskrifendur.
  • EA fór ekki útí alla sálma með TOR, en sagði að þeir hefðu forðast verstu spár sem sumir komu með og að leikurinn væri að skila hagnaði. Nánar kæmi í ljós síðar.
  • Það verður stór uppfærsla fyrir TOR í Mars sem verður talsvert stærri en sú fyrsta.
  • Forpantanir fyrir Mass Effect 3 eru á leið að verða hærri en fyrir Mass Effect 2 á sama tíma.
  • Battlefield 3 seldist í yfir 11. Miljón eintökum og meira DLC er á leiðinni.
  • EA sagðist hafa um 11% af skotleikja markaðnum fyrir útgáfu Battlefield 3, og segðist núna vera með um 23%.
  • Farsíma leikir eru yfir $100 Miljón dollara á ári markaður fyrir EA.
  • Fyrirtækið stefnir á að taka inn yfir $100 Miljón dollara frá FIFA Ultimate Team á næsta ári.
  • Stór “social” leikur, byggður á ókunnu efni en sem EA, á hefur verið seinkað um nokkra mánuði.
  • Það eru 5 nýjir Facebook leikir byggðir á EA efni á leiðinni, heiminum til mikillar gleði líklega.

Það er ljóst að Battlefield 3 er búin að reynast gott veðmál fyrir EA og Dice og þó að hann seldist ekki eins mikið og Call of Duty: Modern Warfare 3, minnsta kosti eins og er.

Leikir eins og Kingdoms of Amalur: Reckoning, Syndicate, SSX og Mass Effect 3 ættu að skila ófáum krónum í kassan hjá EA á næstu vikum síðan.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

Fall of the Samurai kemur í Mars

Staki aukapakkinn Fall of the Samurai fyrir Total War: Shogun 2 hefur fengið fastan útgáfudag og mun koma út í búðir og á Steam þann 23. Mars næsta að sögn Sega.

Fall of the Samurai segir frá upphafi iðnbyltingarinnar og áhrif þess á Japan á meðan Breskir, Bandarískir og Franskir herir hjálpa Japanska hernum að umbreyta sér frá Samurai yfir í að nota meira nútímavopn eins og byssur.

Það verða sex ný klön til að spila, eins og Satsuma sem eru nútímavæddari og síðan Nagaoka sem halda fast í fortíðina. Það verður hluti af leiknum að eiga við Breta, Bandaríkjamenn og Frakka sem allir vilja fá bita af kökunni í Japan.

Kort leiksins hefur stækkað og verið bætt í átt til norður héraðanna. Það eru síðan ný tæknitré til að rannsaka, járnbrautir og sjóhernaður og möguleikinn að skjóta úr skipum inní land sem er að koma inn í seríuna í fyrsta sinn.

Það eru 39 nýjar land hersveitir, þar á meðan hin kraftmikkla Gatling byssa. US Marines herinn og British Royal Marines munu mæta á svæðið til að berjast innan leiksins.

Í tilefni þess að árið er 1863 þá hefur sjóhernaður aukið mikilvægi. Það eru 10 ný skip frá gufuskipum, tundurskeytabátum og járnklædd herskip. Það verður síðan gott að muna þó að þú getur skotið á strandir, og hernaðarmannvirki þá geta þau skotið til baka.

The Binding of Isaac fær flotta útgáfu

Hinn skemmtilega sýrði og litríki Indie leikur The Binding of Isaac fær hefðbundnar útgáfu í Bretlandi þann 16. Mars og verður gefin út af Merge Games.

Hin flotta útgáfa sem má sjá hérna að ofan kallast Unholy Edition og inniheldu DRM fría útgáfu af leiknum, frían Steam lykil til að gefa vinum og vandamönnum, hryllilegt plakat og 40 blaðsíðna blað.

Ekkert verð hefur enn verið gefið upp, en leikurinn er að seljast á stafrænt á £3.99/$4.99 á stafrænum þjónustum eins og Steam.

The Binding of Isaac er hugarfóstur Edmund McMillen og Florian Himsl og unnu þeir af Super Meat Boy leikum ásamt öðrum sem kom út 2010. Leikurinn fær viðbótar pakkann The Wrath of the Lamb sem er um 50% að stærð aðal leiksins og ætti að koma síðar á árinu.

Bæði The Binding of Isaac og Super Meat Boy eru hrikaalega erfiðir enn skemmtilegir leikir sem minna mikið á leikina eins og voru áður gerðir þar sem var eins gott að eiga stóran skammt af þolinmæði og fjarstýringum sem þola smá hörku.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

Nintendo mæta loks til leiks á netinu

Samkvæmt fréttum frá IGN þá ræddi Satoru Iwata við fjárfesta um framtíðarplön Nitendo í netmálum og staðfesti að Nintendo Network myndi fara í loftið í Japan þann 16. Febrúar.
“Ólíkt Nintendo Wi-Fi Connection, sem einblýndi á vissa þætti og hugmyndir, þá stefnum við að búa til platform þar sem að hinar ýmsu þjónustur í kerfi okkar munu tengjast saman í gegnum Nintendo Network þjónustuna”.
Helstu einkenni þjónustunnar verða;
Personal Accounts for Wii U – Nintendo will now allow personalized accounts for its next home console, which will allow multiple users per system. Online profiles will no longer be system-based. “We will also be able to construct and offer the [personal account system] by combining a variety of different services and content,” Iwata said.
Digitally Distributed Packaged Software -Nintendo is exploring the idea of selling full retail games through the Nintendo 3DS and Wii U. The company is not willing to say when this program will start, but it now has the full ability to do so. Iwata noted Nintendo would need to consider retailer relationships first. He also noted SD card space limitations would be another factor. “The significance of this business field will increase,” said Iwata.
Paid Downloadable Content – As we’ve heard previously, publishers will now be able to offer paid DLC for different games, starting with Square’s Theatrhythm Final Fantasy, which will allow players to purchase new songs for the rhythm-based game. The title releases in Japan on February 16
Með þessum plönum er ljóst að Nintendo vill keppa nánar við Sony og Microsoft og stafrænu þjónustur þeirra sem bjóða fólki uppá litla og stóra leiki ásamt DLC fyrir þá ofl efni.
Þegar að Wii U leikjavél Nintendo kemur út líklega síðar á þessu ári mun netkerfi hennar svipa eitthvað til kerfi samkeppninnar, það er ekki leiðinlegt að hugsa til þess að sjá Nintendo gefa út DLC efni í sama gæðaflokki vonandi og leikir þeirra í Mario og Zelda seríunum.

Kv.
GameTíví

Heimild: Evilavatar

Insomniac munu ekki gera fleiri Resistance leiki

Í nýlegu viðtali við vg247 vefinn staðfesti Ted Price forstjóri Insomniac Games að Resistance 3 yrði þeirra síðasti leikur í seríunni og að önnur stúdíó myndu koma að næsta leik.

Insomniac eru á fullu að vinna að 4 manna co-op leiknum Overstrike fyrir EA sem mun verða þeirra fyrsti leikur sem kemur út bæði fyrir PlayStation 3 og Xbox 360. Það má búast við að sá leikur innihalda ótal fjölda af skemmtilegum vopnum og litríkar leiðir til að nota þau ef að má marka fyrri leiki fyrirtækisins.

Hérna er myndband frá Ted Price þar sem að hann staðfestir fréttirnar og ræðir um framtíðina.

Insomniac hefur einnig opnað “Social Games” arm af fyrirtækinu sem kallast Insomniac Click sem er ekki mikið vitað um eins og er, nema að takmark hans er að búa til “djúpa heima, sterka sögu og aðgengilega spilun.”

“Klárlega yfir næstu árin, þá munum við sjá stóra aukningu á grafík á þessum leikjum,” sagði Price. “Það er útaf aukinni tækni sem það er gerlegt, ásamt netvöfrum sem eru að verða betri og betri. Það er síðan útaf því að leikjaframleiðendur sem eru vanir að búa til stóra leiki hafa fært sig þangað yfir og byrjað að búa til nýja leiki.”

Þó að Insomniac Games eru á kafi í öðrum verkefnum er Reistance serían engan vegin búin, það er í vinnslu leikur fyrir PlayStation Vita vélina og er ekki ólíklegt að við heyrum síðar um Resistance 4 frá Sony.

Kv.
GameTíví

Heimild: VG 24/7

Xbox Live House Party dagskráin kynnt

Microsoft hefur kynnt línurnar fyrir Xbox Live House Party kynninguna fyrir þetta árið. Fyrir þá sem kannast ekki við hvað House Party er þá snýst þetta um kynningu á stafrænum smærri leikjum í gegnum Xbox Live Arcade þjónustuna á Xbox 360.

Microsoft er búið að stilla sæmilega þéttri dagskrá sem hefst um miðja Febrúar mánuð með útgáfu leiksins Warp frá EA.

Hérna er útgáfan í tímaröð og með verðinu, 800 Ms punktar eru 10$ og 1200 eru 15$ til að gefa betri verðhugmynd fyrir fólk sem er óvant þessu kerfi.

Warp – 15. Febrúar | 800 Microsoft Points
Alan Wake’s American Nightmare – 22. Febrúar | 1200 Microsoft Points
Nexuiz – 29. Febrúar | 800 Microsoft Points
I Am Alive – 7. Mars | 1200 Microsoft Points

Leikirnir sem heilla flesta einna mest verða Alan Wake’s American Nightmate sem er smærra framhald af Alan Wake leiknum á Xbox 360. Seinni leikurinn er I Am Alive frá Ubisoft sem hefur gengið í gegnum erfiða fæðingu en er búin að endurfæðast sem smærri niðurhals leikur.

Hvernig líst ykkur á þessa útgáfu?

Kv
GameTíví

Skyrim 1.4 plástur lagar PS3 bögga ofl

Bethesda hefur uppfært blogg síðuna þeirra með fréttum af næsta plástri fyrir leikinn sem verður 1.4 og vinnuna að hönnunartólum leiksins á PC.

Creation Kit og Steam Workshop er næstum því tilbúið og eru þeir að vinna með Valve sem reka Steam og fólki innan moddunar samfélagsins til að fínpússa og prufa útgáfuna fyrir væntanlega útgáfu í lok mánaðarins.

Skyrim 1.4 uppfærslan er í prófunum fyrir PC/PS3/Xbox 360 og mun innihalda lagfæringar og fínpússannir á algengustu vandamálum notenda leiksins og er hægt að sjá listann í heild sinni neðar í fréttinni. Bethesda er að stefna að senda plásturinn inn til prófanna á PS3 og Xbox 360 ásamt að gefa hann út á PC fyrst.

Hægt verður núna að fá Beta útgáfur af plástrunum í gegnum Steam fyrir þá sem vilja ekki bíða og eru óhræddir við að prufa sig áfram. Hægt er auðveldlega að hoppa úr því aftur þó í gegnum Steam.

PlayStation 3 eigendur sem hafa lennt í talsverðum vandræðum með að vera komin langt inní leikinn og lennt í leiðindar hökkti ofl ættu vonandi núna að sjá þau vandamál hverfa og geta sökkt sér almennilega í leikinn á ný.

Með að smella á more hérna fyrir neðan er hægt að sjá lagfæringar listann í heild sinni.

Kv.
GameTíví

Continue reading ‘Skyrim 1.4 plástur lagar PS3 bögga ofl’

EA eyddi yfir $200 Miljónum í að þróa SW: The Old Republic

Samkvæmt fréttum frá LA Times þá er kostnaður EA á bakvið hönnum Star Wars: The Old Republic MMO leik þeirra og BioWare um $200 Miljón dollara.

Sú tala er auðvitað hækkandi með vinnu að nýju efni fyrir leikinn ásamt uppfærslum og viðhaldi sem mun halda áfram næstu árin. Það voru um 800 hundruð manns sem unnu að leiknum þegar mest var að sögn fréttarinnar og er sæmilegur hluti enn að vinna að leiknum og hefur BioWare sagt eimmit að upprunalegi hópurinn sem hannði leikinn er enn að vinna að honum og að skapa nýtt efni.

The Old Republic sem kom út fyrir síðustu jól er stórt veðmál fyrir EA og hluti af þeirra verkefni að koma með netleik sem gæti keppt við jötuninnn sem er World of WarCraft frá Blizzard fyrirtækinu sem hefur hreinlega átt MMO markaðinn síðan að hann kom út í lok árs 2004 í Bandaríkjunum.

Greinin hjá LA Times er góð lesning og má margt sjá úr henni eins og að EA skoðaði Lord of the Rings, A Game of Thrones og verkefni frá Marvel teiknimyndafyritækinu.

Það styttist í að við sjáum hvernig veðmál EA og BioWare mun koma út, fyrsti mánuðurinn er liðinn og þeir 30 fríu dagar sem fólk fékk með leiknum eru að ljúka og þá kemur í ljós hve mikið af því fólki sem verslaði leikinn mun halda áfram að spila hann. Miðað við viðtökur leiksins og sölu bendir allt til að leikurinn eigi mjög góða framtíð fyrir sér.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

Bioshock Infinite mun innihalda 1999 mode

Irrational Games og 2K hafa sagt að BioShock Infinite muni innihalda nýja erfiðleika stillingu sem kallast “1999 Mode” sem hefur verið hönnuð til að reyna á leikmenn og hæfileika þeirra.

Þeir sem hafa gaman af góðri áskorun og finnst tölvuleikir vera frekar auðveldir í dag ættu að vera einstaklega hrifnir af þessari nýju viðbót við leikinn.

Ken Levine aðalhönnuður leiksins sagði “Okkur langar að gefa okkar elstu og hörðustu aðdáendum möguleikann að fara aftur til okkar róta, í 1999 mode, mæta leikmenn varanlegur afleiðingum gjörða þeirra og hvernig þeir spila leikinn. Leikmenn þurfa að sérhæfa sig og fókusa á það til að lifa af.”

“I’m an old school gamer. We wanted to make sure we were taking into account the play styles of gamers like me. So we went straight to the horse’s mouth by asking them, on our website, a series of questions about how they play our games. 94.6 percent of respondents indicated that upgrade choices enhanced their BioShock gameplay experience; however, 56.8 percent indicated that being required to make permanent decisions about their character would have made the game even better.”

Að auki við þessa varanlegu ákvarðanir, þá mun 1999 mode innihalda kröfuharðari vopn, krafta og heilsu kerfi enn leikmenn eru vanir. Nýja týpan tekur síðan harðar á hvernig leikmenn geta komið tilbaka inní leikinn ef þeir deyja og sendir þá beint í “Game  Over” skjáinn ef að þeim skortir nægilega hluti til að koma tilbaka. Semsagt ekki fyrir þá veikburða eða sem vilja skemmta sér og njóta leiksins og sögunnar án þess að öskra á skjáinn í pirringi.

Leikurinn er nú þegar einn af þeim stærri og mest spennandi í útgáfunni 2012 á PC/PS3/Xbox 360 og þetta eykur bara á það að okkar mati. Hvernig líst ykkur á þetta?

Kv.
GameTíví