
Á stefnumóti með sjálfum mér.
Á degi Valentínusar var kjörið tækifæri til þess að taka því rólega, spila góðan leik eða tvo og njóta þessar stundar sem manni gefst svo sjaldan, eða þannig var það allavega hjá mér.
Valve ákvöðu að gera gott úr deginum og bjóða notendum sínum leik á sérstöku tilboði í tengslum við daginn. Leikurinn nefnist Dinner Date og kostaði einungis 317-krónur. Aldrei hafði ég áður heyrt getið til gripsins og hafði enga hugmynd að slíkur leikur varðandi stefnumót væri í raun og veru til. Fyrir forvitnis sakir ákvað ég að verða úr því að spila leikinn út í gegn og deila þeirri reynslu með ykkur.
Í stuttu máli snýst leikurinn, ef tölvuleik skyldi kalla, um komandi stefnumót sem ákveðinn aðili hefur lagt mikið á sig að undirbúa fyrir sig og hans heittelskuðu. Allt er nú þegar til reiðu, þ.e.a.s. forrétturinn kominn á borðið, rauðvínið klárt til drykkju og súpan alveg að verða til. Að einhverju hluta vegna er hún sein og okkar maður heldur fast í vonina að hún láti sjá sig í bráð. Þú gerir voðalítið sjálfur sem spilari annað en að ýta á örfáa takka á lyklaborðinu til að fá hann til þess að framkvæma ýmsar aðgerðir, svo sem fylgjast með tímanum, fá sér bita af brauði eða jafnvel laga bindið af og til svona 3-4 sinnum. Hins vegar ef þú neitar að gera einn skapaðan hlut gerir gervigreindin sér lítið fyrir og ákveður eitthvað sjálf með slembi aðferðum.
Dinner Date er drifinn áfram með hugsunum mannsins og allt það sem kviknar upp í kollinum á honum á meðan hann bíður eftir japönsku stúlkunni. Í raun og veru þrætir hann einungis við sjálfan sig hvort hún muni láta sjá á endanum eða hvort þetta hafi tóm þvæla eftir allt saman að bjóða henni í mat. Allt lítur út fyrir að þetta gæti verið raunverulegir atburðir í hvers dags lífi manns, en engu að síður eru skilaboð leiksins langt frá því að teljast spennandi.
Drekktu súpuna, hrærðu í henni eða einfaldlega leggðu skeiðina frá þér. Þitt er valið!
Þessi örstutta saga tekur sirka 20 mínútur að keyra í gegn og svo verður ekkert aftur snúið eftir það. Meiri að segja er leiknum skipt niður í fimm kafla, þ.e.a.s. ef þér skyldi nokkuð tímann detta það í hug endurspila leikinn. Hugmyndin á bak við hann er nokkuð áhugaverð samt sem áður. Það má líkja Dinner Date við einhvers konar stuttmynd í formi tölvuleiks þar sem framleiðandinn er að reyna koma einhverju til skila í gegnum spilarann sem einhvern veginn tekst voða illa allt saman. Grafík leiksins er líka voða óspennandi, þrátt fyrir að vera árs gamall leikur. Einnig er hægt að búa til nokkra notendur fyrir leikinn, ef þú vilt ekki að vinur þinn spili á þínu svæði. Ég hins vegar bæti stóru spurningar merki þar við, sé engan tilgang við þá hönnun.
Í lokin að þá mæli ég alls ekki með leiknum hvað sem hann kostar og er hann klárlega ekki 634 krónur virði, hvað þá með 50% afslætti. Sannir leikjaunnendur vita að sjálfsögðu betur þegar kemur að leikjakaupum. Ekki láta ykkur detta þessa dellu í hug, eyðið frekar pening í blómi eða góðu konfekti handa ástinni.
- Daníel Rósinkrans
Og já, hún lét aldrei sjá sig…












Nýleg comment