- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Author Archive for Daníel Rósinkrans

Q.U.B.E. umfjöllun

Nú hefur janúar mánuður tekið enda og útgáfudagar á nýjum leikjum hefur farið fækkandi upp á síðkastið til þess að jafna út allan þann leikjaunað sem streymdi yfir okkur seinni partinn síðasta árs. Enda er upphaf hvers árs glæsilegur tími til þess að ná sér niður og renna yfir í gegnum þá leiki sem menn eiga eftir að ljúka við og eiga betra skilið.

Ekki eru allir leikjaframleiðendur á því máli og nýta kannski mánuðinn til þess að ná góðum árangri á meðan leikjarisarnir undirbúa árið 2012 fyrir eitthvað mikilfenglegt. Indí fyrirtækið Toxic Games nýttu sér þann kost að minnsta kosti og gáfu út leikinn Q.U.B.E., eða Quick Understanding of Block Extrusion. Þeim hefur tekist að ná góðum árangri og hefur leikurinn nú þegar skilað inn hagnaði og gert upp kostnaðarverðið sem tók að búa til leikinn.

Hérna er fín kynning á leiknum frá Giantbomb síðunni sem dekkar hann sæmilega vel

En hvað er Q.U.B.E.?

Q.U.B.E. tilheyrir flokki þrautaleikja þar sem leikurinn fær fólk til þess að brjóta heilann og leysa hinar ýmsar þrautir til þess að komast á leiðarenda. Aðgerðirnar eru mjög einfaldar í hugsun þar sem leikurinn skartar einungis 5-6 kubba sem þjóna allir mismunandi hlutverki. Kubbunum er gefið ákveðin lit sem leiðbeina manni hvaða kubbur gerir hvað. Sem dæmi er blár kubbur notaður til þess að gefa persónu þinni stökkkraft til þess ná ákveðnum hæðum á meðan gulur býr til einhverns konar stiga á þrjá mismunandi vegu.

Q.U.B.E. minnir mikið á Portal frá Valve, nema hvað að hér fá spilendur önnur verkfæri í hendurnar sem þeir þurfa að notast við. Physics vélin er helsti óvinur spilarans að þessu sinni og hefðu Toxic Games mátt eyða meiri tíma í að gera hana betri. Leiknum er skipt niður í nokkur svæði sem gerir leikinn örlítið fjölbreyttan. Það má segja að 85% af leiknum sé unnið úr svörtu og hvítu en samt sem áður tekst framleiðendunum að skapa skemmtilegt umhverfi og sem gefur leiknum einstakt andrúmsloft, ólíkt flestum leikjum nú til dags. Þó varir leikurinn aðeins í 3-4 klukkustundir en hann réttlætir þó allan þann tíma fyrir frumleika sinn.

Það er óhætt að mæla með Quick Understanding of Block Extrusion frá Toxic Games og fæst leikurinn eingöngu á Steam vefversluninni eins og er á aðeins $14.99. Þeir sem vilja skemmtilegan og fjölbreyttan þrautaleik ættu að tékka á Q.U.B.E., allavega á sýnishorni leiksins.

- Daníel Rósinkrans

David Hasselhoff kynnir Burnout Crash

Þegar David Hasselhoff birtist á skjáinn í auglýsingum kemur hann manni ávallt í gott skap, eða næstum því alltaf.

Nú á dögum fór af stað lítil auglýsingarherferð við tilkomu Burnout Crash og var Hasselhoff fenginn í að leika aðalhlutverkið í einni af auglýsingum þeirra.

En eins og flestir vita að þegar Hasselhoff kemst í gírinn fá engin orð honum lýst, líkt og myndbandið hér fyrir neðan gefur greinilega til kynna.

Hvað segir þetta ykkur, á að skella sér á Burnout Crash?

Kv.
GameTíví

Eru þetta tölvuleikir framtíðarinnar?


Hvernig ætli tölvuleikir líti út eftir sirka 20-30 ár?

Það veit svo sannarlega enginn með vissu en youtube stjarnan Freddie Wong, einnig þekktur sem Freddiew, hefur gefið út nýtt myndband sem gæti gefið til kynna hvert tölvuleikjaiðnaðurinn stefnir að.

Með smá hjálp frá Insomniac Games hefur honum tekist að búa til skemmtilegt myndbrot sem sýnir hvernig veröld okkar gæti haft áhrif á hvernig umhverfið verður mótað í leikjunum.

Hérna fyrir neðan er síðan skemmtilegt myndband sem sýnir hvernig myndbandið að ofan var búið til.

Ef þetta kynna að verða að veruleika tæki það að minnsta kosti fjölda ára bið áður en við fáum að spreyta okkur að þessari undrun.

Hægt er að sjá fleiri frábær myndbönd frá Freddiew og vinum hérna.

Kveðja,
Game Tíví

Heimild: Kotaku

Nintendo svipta hulinni af sérstakri útgáfu af Skyward Sword

Þann 18. nóvember næstkomandi kemur út nýji Zelda leikurinn fyrir Nintendi Wii, Skyward Sword sem margir aðdáendur leikjanna hafa beðið eftir. Nintendo hafa ákveðið að slá til og gefa út sérstaka útgáfu af leiknum sem verður eingöngu fáanleg fyrir þá sem kjósa að forpanta leikinn.

Um er að ræða pakka sem inniheldur sjálfan leikinn ásamt gylltri Wii fjarstýringu sem er merkt með hinum góðkunnuga þríhyrningi úr  Zelda leikjunum og innbyggðu Wii Motion Plus tækni. Einnig fylgir með geisladiskur með sinfóníu-hljómsveitinni sem fer bráðlega út í heim að spila þekkt lög úr leikjnum í tilefni 25 ára afmæli The Legend of Zelda seríunnar.

Sannir Zelda aðdáendur ættu ekki að láta þennan pakka fram hjá sér fara en nú þegar er hægt að panta gripinn af amazon.co.uk eða öðrum samskonar vefverslunum sem selja leiki. Þeir sem eiga ekki fjarstýringu með Motion Plus kubbnum ættu að kíkja á pakkann því Skyward Sword mun einungis geta notist við þeirra tækni sem kubburinn bíður upp á, þ.e.a.s. betri hreyfiskynjunar möguleika.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Portal 2 eigendur fá ný aukaefni frítt í næsta mánuði

Fyrr á þessu ári höfðu Valve lofað Portal 2 eigendum nýjum aukaefnum fyrir leikinn þeim að kostnaðarlausu sem þeir hyggðust ætla gefa út í sumar.

Valve eru ekki þekktir fyrir að svíkja loforð sín þó svo að þeir komist upp með að seinka þeim örlítið. Þeir létu hins vegar ógert að negla niður nákvæma dagsetningu fyrir komu pakkans en hægt verður að ná í hann í gegnum leikinn um miðjan næsta mánuð.

Aðdáendur leiksins mega þá búast við nýjum þrautum sem og áskorum til þess að dunda sér við, og best af öllu, algjörlega fítt.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

The Legend of Zelda: Skyward Sword fellur af skýjum ofan þann 18. nóvember

Hinn langþráði Zelda leikur, Skyward Sword sem hefur verið í bígerð síðan að Nintendo Wii kom fyrst út árið 2007 en fer loks að detta inn á leikjatölvuna. Nintendo staðfestu í gær að leikurinn verður fáanlegur í Evrópu þann 18. nóvember næstkomandi þannig að Zelda aðdáendur geta bætt við enn einum stórviðburði á dagatalið sitt.

Skyward Sword er jafnframt fyrsti Zelda leikurinn sem hefur verið hannaður með Wii fjarstýringuna í huga frá upphafi Wii leikjavélarinnar. Einnig er gaman að segja frá því að saga leiksins gerist á undan öllum öðrum Zelda leikjum svo það verður fróðlegt að sjá við hvað verkefni Link þarf að kljást í þessu spennandi ævintýri.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Spilaðu Brink á PC frítt yfir helgina

Það er fátt betra en að byrja góða helgi á því að spila leiki sem maður gefst frítt á að spila út alla helgina.

Að þessu sinni er það fyrstu persónu skotleikurinn Brink, gerður af Splash Damage studio sem verður frír alla helgina í boði Bethesda í gegnum Steam vefverslunina.

Það eina sem þú þarft að eiga er Steam notanda og u.þ.b. 6 GB af auðu rými til þess að geta sótt leikinn.

Einnig eru þeir að bjóða fyrsta niðurhalað efnið fyrir leikinn, Agents of Change frítt fyrir þá sem kjósa að nýta sér fríhelgina. Leikurinn verður svo í boði á hálfvirði fyrir þá sem áhuga að spila leikinn enn lengur eftir að þessu magnaða tilboði líkur.

Ég veit ekki með ykkur, en ég er farinn að skjóta niður illmenni í Brink. Sjáumst vonandi á vígvellinum!

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

From Dust seinkar á PC þar til 17. ágúst

Þeir sem höfðu vonast eftir því að spila guðlega hermirinn, From Dust á PC þessa vikuna verða því miður að bíta í hið súra epli og bíða örlítið lengur eftir þeim leik.

From Dust gengur út á að skapa eða öllu heldur móta  umhverfi á lítilli eyju þar sem frumbyggjar reyna að berjast fyrir lífi sínu. Þar með hefur þú guðlegt vald og getur stjórnað bæði straumum vatnsins eða jafnvel eldgosi þar sem eynnar taka að myndast. Frumbyggjarnir taka svo á því að tilbiðja þig og þú einn ræður hverjar afleiðingarnar verða.

From Dust hefur verið nokkuð lengi í hönnun hjá Ubisoft og verður loksins gefinn út í vikunni á Xbox 360 í gegnum XBLA. PC menn þurfa því að bíða í þrjár vikur til viðbótar, nánar tiltekið þann 17. ágúst og PS3 eigendur þurfa að bíða enn lengur, þar til að settur útgáfudagur verður gefinn fyrir PSN búðina.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Resistance 3 inniheldur þrjú spilanleg demó

Sony hafa ákveðið að kynna nokkra af leikjum sínum betur með komu Resistance 3 sem er væntanlegur í haust.

Þar með mun Resistance 3 skarta ekki bara eitt, ekki tvö, heldur þrjú spilanleg demó!

Þeir leikir sem verða spilanlegir eru Killzone 3 ásamt þeim kosti að spila sýnishornið í þrívídd, inFamous 2 sem kom út fyrir stuttu og svo kappakstursleikurinn MotorStorm: Apocalypse.

Resistance 3 er svo væntanlegur þann 6. september næstkomandi eingöngu á Playstation 3

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Crysis eitt tekur óvænta stefnu í átt að leikjatölvunum

„Maximum Console!“

Leikurinn sem átti aldrei að spilast á leikjatölvum nú til dags vegna sakir lágu vélbúnaðarkrafa sem í þeim eru mun senn líta dagsins ljós á PS3 og Xbox 360. Með öðrum orðum höfðu Crytek lengi sagt að Crysis væri svo öflugur að leikjatölvurnar tvær væru ekki nógu öflugar til þess að höndla leikinn.

Samkvæmt nýjum heimildum hafa ESRB og kóreska leikja eftirlitið gefið grænt ljós á aldurs merkingar sem þarf til áður en leikurinn fengi útgáfu á almennum markaði. Allt bendir til þess að Crysis eitt verði gefinn út á PS3 og Xbox 360 á nýju CryEngine 3 vélinni sem var einmitt notuð til þess að útfæra Crysis 2 á bæði einkatölvunum og leikjatölvunum.

Hvorki Electronic Arts eða Crytek hafa tjáð sig um þetta mál að svo stöddu en við munum eflaust heyra hvað þeir hafa að segja um þetta á næstu dögum.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví