- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Author Archive for admin

Page 2 of 43

Blizzard afhjúpar Diablo III notendaviðmótið

Fyrir stuttu síðan kom út áttundi þáttur hlaðvarps Blizzard Entertainment, BlizzCast, á internetið þar sem Diablo III var aðal umræðuefnið. Eitt helsta umræðuefni þáttarins var stjórnunarviðmót leiksins, en eins og má sjá á skjáskotinu hér fyrir neðan er það talsvert öðruvísi en það sem við eigum að venjast úr Diablo leikjunum.

Búið er að breyta bakpokanum algjörlega, svo að í stað þess að mixa öllu saman í graut eru þrír flipar: einn fyrir stóra hluti, annar fyrir litla hluti, og sá þriðji er fyrir hluti sem eru tengdir verkefnum leiksins. Þá er búið að fjarlægja bakpokatetris úr leiknum og í staðinn er búið að pulla World of WarCraft á þetta allt saman með því að skella inn “ein-stær-fyrir-allt” kerfi.

Þá er einnig búið að gera skill kerfið líkara talent kerfinu úr World of WarCraft. Það eru því ekki hægt að dæla 20 punktum í hvern einasta eiginleika í trénu heldur hefur hver og einn eiginleiki í trénu ákveðin takmörk fyrir því hversu oft er hægt að betrumbæta hann.

Allt stefnir í það að Diablo III verði einn rosalegasti hasarhlutverkaleikur sem sést hefur á PC einkatölvur og það ekki að ástæðulausu, enda hefur Blizzard Entertainment skilað af sér afbragðsleikjum í gegnum tíðina og ætti því enginn að búast við neinu minna en fullkomnum leik frá þeim.

Hægt er að hlusta á BlizzCast og skoða öll skjáskotin hér.

Kveðja,
GameTíví

Mega64: Metal Gear Solid tekinn fyrir

Þeir hjá Mega64 hafa verið uppteknir upp á síðkastið við að gera annað myndband tengt tölvuleik. Að þessu sinni fer Solid Snake með aðalhlutverkið og var  myndbandið tekið upp á meða GDC sýningin stóð yfir. Sá sem getur nefnt annan frægan leikjaframleiðanda sem birtist í myndbandinu fær stafrænan túkall!

Mega64: Gamalt og gott hjá Super Mario bræðrum

Þetta myndband er frekar gamalt en það er vel þess virði að minnast á hana aftur. Hér má sjá Super Mario bræður hoppandi og skoppandi að leika sér um göturnar þar til að þeir hitta skaparinn sinn, Shigeru Miyamoto. Skoðið myndbandið til þess að sjá hvernig það fer allt saman.

Smá getraun…

Engin verðlaun að þessu sinni,
bara heiðurinn að vera fyrstur til að svara rétt 8)

Úr hvaða leik er þetta:

Kv. Game Tíví.

Ratchet & Clank mæta aftur í nýjum leik í haust

Á síðasta ári gáfu Insomniac Games út litla viðbót fyrir Ratchet & Clank seríuna eða Quest for Booty sem var beint framhald á eftir Tools of Destruction. Leikurinn skartaði 3-4 klukkustunda spilun og þótti frekar stuttur miðað við aðra leiki í seríunni en var seldur á vægu verði fyrir það. Í lok leiksins mátti sjá mynd sem á henni stóð „ævintýrið heldur áfram í haust 2009“ og þeir munu standa við það.

Í kvöld tilkynntu þeir væntanlegan leik sem heitir að þessu sinni Ratchet & Clank: A Crack in Time og hefur hann sögu sína á eftir Quest for Booty. Þú ferð með hlutverkið sem Ratchet þar sem hann er einn á báti að berjast fyrir því að frelsa vin sinn Clank frá hinum illa Dr. Nefarious sem fór meðal annars með aðalhlutverkið sem óvinur þeirra í þriðja leiknum í þessari frábæru seríu.

Félagarnir okkar þurfa meðal annars að ferðast á milli tíma til þess að sigrast á Dr. Nefarious og er gaman að segja fá því að Ratchet og Clank munu báðir rekast á eldri útgáfur þeirra í fyrri leikjunum sem komu út á PS2. Það verður gaman að sjá hvernig það fer allt saman í PS3 grafíkinni en þeir félagar munu sem sagt koma út í Blu-Ray útgáfu næsta haust.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Call of Duty: Modern Warfare 2 væntanlegur í nóvember

Call of Duty: Modern Warfare 2, arftaki Call of Duty 4, er væntanlegur á PS3, Xbox 360 og PC 11. nóvember næstkomandi ef marka má stiklu sem skoða má á vefsíðu leiksins. Hana má einnig sjá hér að neðan, þökk sé Joystiq.

Call of Duty 4 er einn besti skotleikur sem gerður hefur verið og það verður gaman að sjá hvort Infinity Ward tekst að endurtaka leikinn með Modern Warfare 2.

Kveðja,
GameTíví

Borat: Vavavúva! – GameTíví: Nýr Zelda DS leikur væntanlegur!

Það fyrsta sem Borat Sagdiyev segir þegar hann les þessa færslu verður eflaust “VAVAVÚVA!” á meðan hann baðar út höndunum af gleði. Nintendo hafa nefnilega farið þvert á allar fullyrðingar um að nýr Zelda leikur yrði ekki afhjúpaður á Game Developers Conference sem nú fer fram í San Fransisco.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks var afhjúpaður af Satoru Iwata, forseta fyrirtækisins, á GDC nú fyrir skömmu, en leikurinn er væntanlegur á Nintendo DS seinna á árinu. Leikurinn fær listrænan innblástur frá Wind Waker á GameCube og Phantom Hourglass, en sjórinn hefur vikið fyrir grænni jörð og lestarteinum og risastórri fallbyssu.

Ef marka má stiklu sem sýnd var úr leiknum þá má búast við leik afar svipuðum The Phantom Hourglass. Sá leikur var næstum því fullkominn – að musteri sjávarkonungsins undanskildu, auðvitað.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks er væntanlegur á Nintendo DS seinna á þessu ári, ef vel viðrar í Evrópu.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

GDC09: Crytek sýna brot úr CryENGINE 3

Það er ekki hægt að neita því að Crysis þykir einn af flottari leikjum sem hafa komið út á einkatölvurnar hvað varðar grafík leiksins. Grafíkin er sögð vera það öflug að leikurinn gæti aldrei  verið spilaður á Xbox360 né Playstation 3 eins og hann leggur sig í PC útgáfunni. Crysis keyrir á CryENGINE 2 grafíkvélinni sem var hönnuð af Crytek fyrirtækinu en þeir eru alls ekki hættir að kreista getu vélbúnaðarins á þessu stigi.

Þessa vikuna fer fram GDC sýningin eða „Game Developers Conference“ þar sem leikjahönnuðir koma saman og sýna úr væntanlegum leikjum. Crytek tóku sig til og sýndu brot úr nýrri grafíkvél sem þeir hafa verið að þróa og heitir hún CryENGINE 3, sem er auðséð næsta skref á eftir CryENGINE 2. Þeir gáfu út myndband sem sýnir úr leik sem gæti verið Crysis 2 en er þó ekki staðfest.

Ef skoðað er myndbandið fyrir neðan að þá er þetta engin smá vél. CryENGINE 3 er núna þegar tilbúin og þurfum við aðeins að bíða eftir leik til þess að keyra vélina áfram. Gaman er að segja frá því að CryENGINE 3 mun styðja leiki á PC, PS3 og Xbox360.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Need For Speed: SHIFT kemur út um miðjan september

Það hefur verið hefð hingað til síðustu árin að gefa út nýjan Need For Speed leik í lok hvers árs og því verður auðvitað ekki breytt með þessu ári. EA hafa sett upp áætlaða dagsetningu fyrir komandi leik sem heitir að þessu sinni Need For Speed: SHIFT. Áætlað er að leikurinn komi út í Evrópu þann 18. september næstkomandi, fjórum dögum á undan Bandaríkjunum sem fær leikinn 22. september.

Að þessu sinni munu þeir einbeita sér að raunveruleikanum, það er að segja gera leikinn sem raunverulegastan. Need For Speed: SHIFT mun skarta gáfuðu “physics” kerfi sem lætur okkur finna fyrir hverju höggi. Einnig verður ökumaðurinn nákvæmari og mun hann bregðast betur við kringumstæðunum. EA vonast til þess að þetta muni draga okkur nær raunveruleikanum, með því að upplifa stjórnklefann á raunverulegan hátt.

Við hvetjum auðvitað Need For Speed aðdáendur að fylgjast vel með þessum þegar nær að dregur. Vonandi mun þessi leikur lífga upp á seríuna því það er alltaf eitthvað sem vantar upp á í leikina, þó þeir seljist mjög vel.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Wii Fit hefur selst betur en heitar lummur… og Halo 3

Þrátt fyrir að vera 30 dollurum dýrari og 8 mánuðum skemur á markaðnum en Halo 3 hefur Wii Fit tekist hið ótrúlega: Að seljast í meira en 6 milljónum eintaka og þar með skáka Halo 3, sem seldist í 5.9 milljónum eintaka.

Þessi velgengi Wii Fit undirstrikar ekki bara velgengi Nintendo Wii, heldur einnig hversu stór “casual” markaðurinn er. Það er augljóslega gríðarlegt fjármagn sem fólk er til í að reiða fram í þeim hluta geirans, þrátt fyrir að sá hópur kaupi færri leiki á haus en harðkjarna leikjaspilendur.

Það verður spennandi að sjá í hversu mörgum eintökum Wii Fit hefur selst þegar Nintendo Wii og leikurinn verða komin til ára sinna. Hver veit nema þau verði fleiri en 10 milljón?

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví