Það eru fáar tölvuleikjaseríur sem komast með tærnar þar sem Monster Hunter hefur hælana… í Japan. Monster Hunter leikirnir eru ávanabindandi hasarhlutverkaleikir þar sem leikmenn eiga að berjast við skrímsli, safna hlutum, bæta persónu sína, berjast við skrímsli, safna hlutum bæta per… þið náið þessu líklega. Vandinn er hins vegar að Monster Hunter serían hefur ekki verið neitt sérstaklega vinsæl á vesturlöndum. Þessu ætlar Capcom hins vegar að breyta.
Capcom hafa heitið því að beita sér fyrir frekari útbreiðslu Monster Hunter seríunnar utan Japans og ætla sér að nota nýstárlega aðferð til þess að láta fleiri vita að serían er til og nýtur vinsælda: Markaðssetningu. Það vantaði nefnilega svolítið upp á auglýsingaherferðir og slíkt fyrir fyrri leiki.
Monster Hunter serían er búin að stökkva niður af PlayStation stallinum og seinna á þessu ári mun Monster Hunter 3 koma út fyrir Nintendo Wii. Vonast Capcom til þess að ná að fanga hug og hjörtu og einkalíf leikjaspilenda með beittri auglýsingaherferð og sterkari markaðssetningu en áður.
Þá stefnir fyrirtækið á að gefa út Monster Hunter Freedom Unite, en það er vestræna útgáfan af Monster Hunter Portable 2nd G sem kom út í Japan og naut svo mikilla vinsælda að ekki mátti stíga upp í lest með PSP vél án þess að annar maður í sama vagni heimtaði að fá að spila með manni.
Heimildir: Edge Online
Kveðja,
GameTíví











Nýleg comment