- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


THQ skilar tapi og þéttir áherslurnar

Það eru mörg fyrirtæki í augnablikinu að gefa út fjárhagstölur fyrir síðasta ársfjórðunginn í fyrra og fyrir árið í heild. Við sögðum frá velgengdi EA í síðustu viku og núna er komið af THQ að gefa út þeirra tölur.

Tölurnar sem THQ gaf út eru ekki alveg eins góðar og EA og má skýra tapið að stórum hluta til stórs veðmáls sem þeir gerðu með uDraw fyrir PlayStation 3 og Xbox 360. uDraw hafði áður gengið mjög vel á Nintendo Wii og málið var að fylgja þessu eftir með enn stærri árangri. Það er ekki annað hægt að segja en að það hafi gengið ílla.

WWE 12 og Saint’s Row: The Third aftur á móti gengu mjög vel og náði sá síðar nefndi að seljast í nærri 4. Miljón eintökum og er enn að rúlla vel að sögn THQ.

THQ situr á um 1.4 Miljón óseldum uDraw töflum sem er um $80 Miljón dollarar í birgðum og þurtu þeir síðan að selja restina í umferðinni á lægra verði en þeir gerðu ráð fyrir og skilaði það sér í um $100 Miljón dollara heildar tapi fyrir þá.

Hérna er hægt að sjá samantek af kynningu THQ og afleiðingar þess á leiki í framleiðslu núna:

  • THQ tapaði um $30 Miljón dollurum á uDraw útgáfunni.
  • Vandinn með uDraw gerði það að verkum að THQ er að endurskoða mikið af þeirra verkefnum og áherslum.
  • THQ hefur hætt framleiðslu á uDraw vélbúnaði og stefnir í að losa sig við restina í gegnum sölu og hefur engin plön með meira uDraw.
  • Plön eru núna um að smækka THQ í sterkara og fjölbreyttara skemmtana fyrirtæki.
  • Stefnan er að gefa út ný verkefni á nýjum vélbúnaði.
  • Saints Row: The Third er stærsta sölu “IP” í sögu THQ
  • Darksiders upprunalega fékk ekki eins góðar markaðssetningu og mun THQ ekki klikka á því aftur með Darksiders 2. Vonir standa til að með meiri athygli skili það sér í stærri og vinsælli leik.
  • Metro: Last Light er flokkaður sem gæða leikur með takmarkaða getu og seikunin mun skila sér fullri getu gæða leiksins sem THQ telur hann vera, og auðvitað hærri sölu.
  • Homefront endaði með að setja um 3 Miljón eintök í umferð og selji 1. Miljón á fyrstu vikunni.
  • THQ sagði að netspilun Homefront hefði átt við tæknilega öðruleika fyrir notendur þess.
  • Warhammer 40,000: Dark Millenium Online er enn á borðinu, en THQ er að leita af samvinnu að klára hann þó.
  • THQ sér fram á lægri sölu og tekjur í framtíðinni.
  • Leikur Patrice Désilets sem kom til THQ frá Assasins’s Creed seríu Ubisoft, er enn í frumvinnslu og meiri upplýsingar koma síðar. THQ eru sáttir við árangurinn og stefnuna eins er.
  • Relic ásamt að vinna að MMO leiknum eru mjö fókusaðir á RTS leiki.
  • Volition eru fókusaðir á Saint’s Row seríuna. Semsagt ekki búast við öðrum Red Faction eða öðru frá þeim á næstunni.

Það er óneitanlega ávallt forvitnilegt að rýna í svona kynningar og tölur, það er ljóst að THQ tapaði stórt á uDraw ævintýrinu og það mun hafa áhrif í nokkurn tíma á fyrirtækið og leikina sem það er að búa til.

Það er gaman að sjá að THQ gerir sér grein fyrir að þeir stóðu ekki vel að markaðssetningu Metro 2033 né Darksiders, en á sama tíma er það pínu stressandi að sjá að þeir ætla sér að krukka í ófáa mánuði að Metro: Last Light til að láta hann höfða til stærri markhóps í stað þess að vera flotti og andrúmsloftsfulli leikur sem sá fyrri var. Maður verður óneitanlega pínu hræddur við að þeir ætli hreinlega að Call of Duty þetta bara.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

0 Responses to “THQ skilar tapi og þéttir áherslurnar”


Comments are currently closed.