
Fyrir nokkrum dögum sögðum við ykkur frá að PlayStation Network leikurinn Journey sem væri búin að vera um 3 ár í vinnslu væri tilbúin og ætti bara eftir að fá útgáfudag. Núna er sá dagur komin á hreint og er 14. Mars næsti í Evrópu að sögn Sony útgefanda leiksins.
Journey kemur frá thatgamecompany sem gerði síðan Flow og Flower sem komu einnig út á PSN þjónustu Sony.
Lítið er vitað um leikinn í raun og sögu hans, annað en að hann á að vera gagnvirk dæmisaga um hvernig líf fólks er og hvernig það skerst á við aðra, semsagt sæmilega djúpar pælingar hérna.
Jenova Chen skrifaði á PlayStation blogginu fyrir helgi um vinnuna á bakvið leikinn og þá erfiðleika sem þau upplifðu að búa leikinn til og hvernig það hafði jákvæð á áhrif á þau.
“Our team is very close to our own mountaintop; we are just a few short weeks away from letting the world experience what we’ve poured our hearts and souls into these last three years. I can’t describe how eager we are to let everyone finally play the game and hear about your experiences with it.”
Fyrir þá sem hafa ekki spilað leiki frá thatgamecompany þá mælum við að kíkja á þá, þeir eru talsvert öðruvísi en það sem fólk er kannski vant að spila.
Í Flower síðasta leik fyrirtækisins þá var t.d spilað sem eitt blað af blómi sem sveif um heiminn og þú gast bætt öðrum við þangað til að það voru þúsundir blóma blaða af svífa um í vindinum og þú endaðir með að gefa öllu umhverfinu í kringum þig líf.
Við erum spenntir að sjá hvað í raun Journey mun fjalla um og hvaða pælingar liggja að baki leiksins, það er rétt um mánuður að við komust af því loksins.
Kv.
GameTíví



Þessi lítur alveg fáránlega vel út.
Þessi er einn af fáum sem er must have í safnið.
Er ekki tilvalið að gera keppni til að geta unnið sér þennan leik?