
PlayStation Network leikurinn Journey frá framleiðendum flOw og flOwer hefur lokið framleiðslu að sögn framleiðandans ThatGameCompany.
Leikurinn er búin að vera í vinnslu í um þrjú ár. Sagði Jenova Chen á Twitter “þrjú ár eru langur tími og þegar að þú ert búin, spyrðu þig, hvað hef ég gert síðustu þrjú árin?”
Chen sagði við Twitter fylgjendur hans að Sony væri að vinna að útgáfudegi fyrir leikinn, en það væru stórar útgáfur framundan og að Sony væri að leita af réttum tíma.
Journey er einn af forvitnilegri PSN leikjum sem við höfum séð og eftir að hafa spila fyrri leiki fyrirtækisins erum við mjög spenntir fyrir þessum leik sem við vitum á sama tíma ekki mikið um.
Kv.
GameT’iví



0 Responses to “Journey lýkur ferð sinni fljótlega”