- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Fleiri persónur mæta til leiks í Street Fighter X Tekken

Það líður ekki langur tími þar til að við getum loksins útkljúfað þær deilur um hvort Street Fighter eða Tekken slagsmálahundarnir séu í raun betri en hin í leiknum Street Fighter X Tekken. Hins vegar er ekki alveg ljóst hvaða persónur verða til staðar frá upphafi þegar leikurinn verður gefinn út í byrjun mars.

Því nýjustu fregnir hljóða svo að 5 vaskir kappar hafa bæst í hópinn og eru þeir alls ekki á verri kanntinum, þeir Akuma og M. Bison úr Street Fighter og svo Jin, Xiaoyu og Ogre úr Tekken teyminu. Hvernig Capcom tekst að útfæra leikinn verður spennandi að sjá, því þeir eiga svo sannarlega hrós skilið fyrir áætlanir sýnar í bardaga geiranum.

Eftirfarandi bardagamenn hafa verið staðfestir fyrir útgáfu leiksins:

Street Fighter: Ryu, Ken, Guile, Abel, Chun-Li, Cammy, Sagat, Dhalsim, Poison, Hugo, Ibuki, Rolento, Zangief, Rufus, Balrog, Vega, Juri, M. Bison og Akuma.

Tekken: Kazuva, Nina, King, Marduk, Bob, Julia, Hwoarang, Steve, Yoshimitsu, Raven, Kuma, Heihachi, Lili, Asuka, Law, Paul, Xiaoyu, Jin, Ogre

- Daníel Rósinkrans

 

2 Responses to “Fleiri persónur mæta til leiks í Street Fighter X Tekken”


Comments are currently closed.