
Eitt stærsta tölvuleikja fyrirtækið í heiminum, EA er búið að gefa út tölurnar þeirra fyrir síðasta ársfjórðunginn. Það er nóg úr að moða í tölunum sem EA gaf út frá sér.
FIFA og Batlefield 3 eru bæði búin að selja í yfir 10. Miljón eintökum hver og svíns skins leikurinn Madden heillaði yfir 5. Miljón manns að grípa hann.
- Origin þjónustan er með 9.3 Milljón notendur.
- The Old Republic seldist í yfir 2. Miljónum eintaka og er þá meðtalið stafræn sala.
- TOR er með um 1.7 Miljón virka notendur, og um 300 þúsund sem hafa ekki haldið áfram eða hætt.
- Meirihluti þessara 1.7 Miljón eru fastir áskrifendur.
- EA fór ekki útí alla sálma með TOR, en sagði að þeir hefðu forðast verstu spár sem sumir komu með og að leikurinn væri að skila hagnaði. Nánar kæmi í ljós síðar.
- Það verður stór uppfærsla fyrir TOR í Mars sem verður talsvert stærri en sú fyrsta.
- Forpantanir fyrir Mass Effect 3 eru á leið að verða hærri en fyrir Mass Effect 2 á sama tíma.
- Battlefield 3 seldist í yfir 11. Miljón eintökum og meira DLC er á leiðinni.
- EA sagðist hafa um 11% af skotleikja markaðnum fyrir útgáfu Battlefield 3, og segðist núna vera með um 23%.
- Farsíma leikir eru yfir $100 Miljón dollara á ári markaður fyrir EA.
- Fyrirtækið stefnir á að taka inn yfir $100 Miljón dollara frá FIFA Ultimate Team á næsta ári.
- Stór “social” leikur, byggður á ókunnu efni en sem EA, á hefur verið seinkað um nokkra mánuði.
- Það eru 5 nýjir Facebook leikir byggðir á EA efni á leiðinni, heiminum til mikillar gleði líklega.
Það er ljóst að Battlefield 3 er búin að reynast gott veðmál fyrir EA og Dice og þó að hann seldist ekki eins mikið og Call of Duty: Modern Warfare 3, minnsta kosti eins og er.
Leikir eins og Kingdoms of Amalur: Reckoning, Syndicate, SSX og Mass Effect 3 ættu að skila ófáum krónum í kassan hjá EA á næstu vikum síðan.
Kv.
GameTíví
Heimild: Giantbomb



Ömurlegt að Mass Effect 3 komi ekki á Steam.