- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Assassin’s Creed 3 staðfestur, væntanlegur 30. október

Ubisoft hafa svo sannarlega verið uppteknir upp á síðkastið við að hanna Assassin’s Creed leiki og lítur allt út fyrir það að því fari ekki að linna í bráð. Þeir gerðu nefnilega sér lítið fyrir í dag og sviptu hulinni af Assassin’s Creed 3 sem er kemur í verslanir þann 30. október 2012.

Lítið hefur verið sagt til um leikinn að svo stöddu annað en að hann verði sá flottasti í seríunni til þessa og hefur gripurinn verið í þrjú ár í framleiðslu nú þegar. Þeim hefur alltaf tekist að standa við sitt og hafa þeir alltaf litið betrur og betrur út með hverju ári sem líður, þess má geta að þeir eru nú þegar fjórir talsins.

Assassin’s Creed aðdáendur ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum þegar fimmti leikurinn í seríunni lendir síðar á þessu ári fyrir Playstation 3, Xbox 360, PC og hina umtöluðu Nintendo Wii U.

Heimildir: Eurogamer

- Daníel Rósinkrans

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4 Responses to “Assassin’s Creed 3 staðfestur, væntanlegur 30. október”


Comments are currently closed.