- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Activision rakar inn aurunum

Við höldum áfram kæru lesendur að færa ykkur fjárhagstölur leikjafyrirtækjanna (enda vitum við hvað þið elskið þær) og næst er á dagskrá fyrirtækið Activision og þeirra umdeildi leiðtogi Bobby Kotick.

Skylanders kom öllum á óvart og var einn af stærri leikjum þeirra og það seldust um 20. Miljón leikföng í fyrra.

Eins og við má búast þá verður meira af Call of Duty og Skylanders á þessu ári ásamt gaf Activision út tölur fyrir síðustu mánuðina þeirra.

Dialbo III seinkar um nokkra mánuði sem kemur kannski ekki á óvart, en á sama tíma höfum við ekki haft í raun neina dagsetningu annað en þá sem okkur hefur dreymt um sem er auðvitað hið allra fyrst.

Hérna er það helsta sem stóð uppúr kynningu Activision:

  • Activision tók inn $1 biljón dollara í fjármangstekjum í gegnum 2011.
  • World of Warcraft hefur 10.2 Miljón áskrifendur.
  • Það er ekki minnst á Star Wars: The Old Republic eða Battlefield 3.
  • Skylanders er sería sem þeir hafa mikkla trú á og vonast til mikklu af á næstu árum.
  • Call of Duty Elite skartar 1.5 miljón borgandi kúnnum, og er eitt stærsta áskriftar netsamfélagið, og raðar sér í hóp með World of WarCraft og Xbox Live.
  • Það verður nýr Call of Duty leikur síðar á árinu, engar nánari upplýsingar voru gefnar út.
  • Activision heldur áfram að fjárfesta í nýja heiminum sem Bungie er að skapa og verður grunurinn af stórri nýrri seríu fyrir fyrirtækið sem verður af mikilvægri tekjulind.
  • Activision vildi ekki spá mikið í hvernig Wii U leikjavél Nintendo myndi ganga.
  • Í Desember 2011 þá voru um 40 Miljón notendur að spila síðustu fimm leiki.
  • Call of Duty Elite 2.0 er á leiðinni með nýjum og spennandi vibætum sem koma við sögu í næsta leik.
  • Blaðamanna kynning fyrir World of WarCraft: Mists of Pandaria aukapakkann verður í næsta mánuði.
  • Blizzard stefnir á að gefa út nokkra leiki á þessu ári, en vill ekki taka fram hvaða leikir það eru.

Þrátt fyrir álit fólks á Activision og formanni fyrirtækisins þá heldur það áfram að taka inn peninga, en það verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir munu bregðast við aukinni samkeppni.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

2 Responses to “Activision rakar inn aurunum”


  • það er nú lágmark ef þið ætlið að standa í því að stela greinum að muna að hreinsa út allan gamla textann ;)

  • Það er ekkert slíkt í gangi, stór hluti frétta kemur erlendis frá og eru þýddar og upplýsingar fengnar þaðan. Það sem er mjög mikilvægt í slíku tilefni er að gefa upp heimilidir og tengla á viðeigandi aðila til að hann fái að njóta þess til fulls.

Comments are currently closed.