
Aðdáendur Phoenix Writght geta glaðst, það er von á fimmta leiknum í Ace Attorney seríunni frá Capcom, serían er eimmit að halda uppá 10 ára afmæli sitt eins og er.
Ekkert var staðfest á hvaða vélar leikurinn kæmi út á, fyrstu 3 leikirnir munu fá endurútgáfu af iPhone 4 og iPad 2 ásamt Android síðar, í spes HD pakka.
Phoenix Wright, Justice for All, Trials and Tribulations – munu allir koma með nýrri háskerpu grafík. Leikmenn fá fyrstu kaflana fría og verður hægt að kaupa fleiri á um £5 miðað við Japanska verðið, það er síðan hægt að fá allt saman á £10. Þeir sem eiga fyrsta Phoenix Wright leikinn fyrir iOS eiga að geta fært árángur sinn yfir í nýju HD útgáfurnar.
Plönin fyrir útgáfu í N-Ameríku og Evrópu eiga eftir að verða staðfest uppá dagsetningar og munum við koma með fréttir um þau þegar nær dregur.

Annars geta þeir sem kunna Japönsku séð núna í Febrúar Phoenix Wright kvikmyndina, við vonumst til að hún skili sér hingað á næstu mánuðum með Enskum texta svo við getum notið þess líka.
Kv.
GameTíví
Heimild: Eurogamer



OBJECTION!!!