
Chris Priestly hjá BioWare fyrirtækinu hefur staðfest að PC útgáfa Mass Effect 3 leiksins muni krefjast Origin þjónustu EA og mun ekki koma út á Steam þjónustu Valve. Þetta er eitthvað sem ætti að koma fáum á óvart, enda eru Steam og Origin í beinni samkeppni í dag.
1) Mun þurfa Origin til að keyra allar útgáfur Mass Effect 3? (Stafrænar og eintök útúr búðum).
Já, það þarf Origin forritið fyrir allar PC útgáfur af Mass Effect 3, stafrænar og áþreifanlegar.2) Er nauðsynlegt að Origin sé stanslaust tengt við netið, eða er nóg að gera eina staka ræsingu á netinu til að virkja leikinn þegar að hann er settur upp. Eru takmörk fyrir hve oft er hægt að setja leikinn upp?
Mass Effect 3 þarf eina staka virkjun í gegnum netið fyrir einmennings part leikisns. Það eru engin fjöldatakmörkun á hve oft er hægt að setja leikinn upp. Til að spila fjölspilunar part Mass Effect 3 þarf virka nettengingu.3) Verður Mass Effect 3 fáanlegur á Steam?
Til að byrja með verður leikurinn fáanlegur í gegnum Origin þjónustuna og aðrar 3 aðila stafrænar dreifingar, en ekki á Steam eins og er. Steam setur takmörk á hvernig framleiðendur gefa út plástra fyrir leikinn og annað niðurhals efni (DLC). Við stefnum á að bjóða notendum Mass Effect bestu mögulegu reynsluna sama hvaðan leikurinn er verslaður og erum tilbúnir að vinna með öllum þjónustum sem takmarka ekki notendur leikja okkar.4) Er hægt að skrá sig eða afskrá fyrir fyrir söfnun gagna?
Notendur geta valið að tölfræði þeirra úr ME3 fari ekki frá þeim.5) Er Origin Spyware (njósna forrit)?
Origin er ekki njósna forrit, og setur ekkert slíkt upp í vél notenda. Til að leyfa Origin að virka sem best og innsetja og uppfæra leikina er nauðsynlegt að gefa Origin vissan aðgang að vélinni og að skrifa skrár í ProgramData/Origin möppunni í tölvunni.
Listinn fyrir ofan hérna er vonandi sæmilega þýddur
og útskýrir aðeins fyrir þeim sem stefna að kaupa leikinn á PC hvað þeir eiga von á. Í raun er þetta frekar einfallt, það þarf bara að vera með Origin forritið í tölvunni og ef að þið eruð ekki með það ætti það vera á Dvd diski leiksins.
Það er klárt að EA er að skjóta föstum skotum á Steam þjónustu Valve með textanum hérna fyrir ofan og hvernig þeim finnst þeir vera takmarkaðir. Það er erfitt að segja hve rétt það er, EA eru þekktir fyrir að vilja keyra sitt eigið efni (oft ekki á bestu vegu því miður) og ráða flæði gagna í allar áttir, svo það kemur ekki á óvart að sjá þá gera þetta.
Plús það sakar líklega ekkert að gróðra hlutdeild þeirra með að selja beint í gegnum t.d. Origin er aðeins betri en að selja í gegnum Steam. Óháð þessu öllu ætti þetta ekkert að koma veg í það að fólk upplifi epískan lokapart Mass Effect seríunnar.
Mass Effect 3 kemur út þann 6. Mars á PC/PS3/Xbox 360.
Kv.
GameTíví














Nýleg comment