- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for January, 2012

The Binding of Isaac fær flotta útgáfu

Hinn skemmtilega sýrði og litríki Indie leikur The Binding of Isaac fær hefðbundnar útgáfu í Bretlandi þann 16. Mars og verður gefin út af Merge Games.

Hin flotta útgáfa sem má sjá hérna að ofan kallast Unholy Edition og inniheldu DRM fría útgáfu af leiknum, frían Steam lykil til að gefa vinum og vandamönnum, hryllilegt plakat og 40 blaðsíðna blað.

Ekkert verð hefur enn verið gefið upp, en leikurinn er að seljast á stafrænt á £3.99/$4.99 á stafrænum þjónustum eins og Steam.

The Binding of Isaac er hugarfóstur Edmund McMillen og Florian Himsl og unnu þeir af Super Meat Boy leikum ásamt öðrum sem kom út 2010. Leikurinn fær viðbótar pakkann The Wrath of the Lamb sem er um 50% að stærð aðal leiksins og ætti að koma síðar á árinu.

Bæði The Binding of Isaac og Super Meat Boy eru hrikaalega erfiðir enn skemmtilegir leikir sem minna mikið á leikina eins og voru áður gerðir þar sem var eins gott að eiga stóran skammt af þolinmæði og fjarstýringum sem þola smá hörku.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

Nintendo mæta loks til leiks á netinu

Samkvæmt fréttum frá IGN þá ræddi Satoru Iwata við fjárfesta um framtíðarplön Nitendo í netmálum og staðfesti að Nintendo Network myndi fara í loftið í Japan þann 16. Febrúar.
“Ólíkt Nintendo Wi-Fi Connection, sem einblýndi á vissa þætti og hugmyndir, þá stefnum við að búa til platform þar sem að hinar ýmsu þjónustur í kerfi okkar munu tengjast saman í gegnum Nintendo Network þjónustuna”.
Helstu einkenni þjónustunnar verða;
Personal Accounts for Wii U – Nintendo will now allow personalized accounts for its next home console, which will allow multiple users per system. Online profiles will no longer be system-based. “We will also be able to construct and offer the [personal account system] by combining a variety of different services and content,” Iwata said.
Digitally Distributed Packaged Software -Nintendo is exploring the idea of selling full retail games through the Nintendo 3DS and Wii U. The company is not willing to say when this program will start, but it now has the full ability to do so. Iwata noted Nintendo would need to consider retailer relationships first. He also noted SD card space limitations would be another factor. “The significance of this business field will increase,” said Iwata.
Paid Downloadable Content – As we’ve heard previously, publishers will now be able to offer paid DLC for different games, starting with Square’s Theatrhythm Final Fantasy, which will allow players to purchase new songs for the rhythm-based game. The title releases in Japan on February 16
Með þessum plönum er ljóst að Nintendo vill keppa nánar við Sony og Microsoft og stafrænu þjónustur þeirra sem bjóða fólki uppá litla og stóra leiki ásamt DLC fyrir þá ofl efni.
Þegar að Wii U leikjavél Nintendo kemur út líklega síðar á þessu ári mun netkerfi hennar svipa eitthvað til kerfi samkeppninnar, það er ekki leiðinlegt að hugsa til þess að sjá Nintendo gefa út DLC efni í sama gæðaflokki vonandi og leikir þeirra í Mario og Zelda seríunum.

Kv.
GameTíví

Heimild: Evilavatar

Insomniac munu ekki gera fleiri Resistance leiki

Í nýlegu viðtali við vg247 vefinn staðfesti Ted Price forstjóri Insomniac Games að Resistance 3 yrði þeirra síðasti leikur í seríunni og að önnur stúdíó myndu koma að næsta leik.

Insomniac eru á fullu að vinna að 4 manna co-op leiknum Overstrike fyrir EA sem mun verða þeirra fyrsti leikur sem kemur út bæði fyrir PlayStation 3 og Xbox 360. Það má búast við að sá leikur innihalda ótal fjölda af skemmtilegum vopnum og litríkar leiðir til að nota þau ef að má marka fyrri leiki fyrirtækisins.

Hérna er myndband frá Ted Price þar sem að hann staðfestir fréttirnar og ræðir um framtíðina.

Insomniac hefur einnig opnað “Social Games” arm af fyrirtækinu sem kallast Insomniac Click sem er ekki mikið vitað um eins og er, nema að takmark hans er að búa til “djúpa heima, sterka sögu og aðgengilega spilun.”

“Klárlega yfir næstu árin, þá munum við sjá stóra aukningu á grafík á þessum leikjum,” sagði Price. “Það er útaf aukinni tækni sem það er gerlegt, ásamt netvöfrum sem eru að verða betri og betri. Það er síðan útaf því að leikjaframleiðendur sem eru vanir að búa til stóra leiki hafa fært sig þangað yfir og byrjað að búa til nýja leiki.”

Þó að Insomniac Games eru á kafi í öðrum verkefnum er Reistance serían engan vegin búin, það er í vinnslu leikur fyrir PlayStation Vita vélina og er ekki ólíklegt að við heyrum síðar um Resistance 4 frá Sony.

Kv.
GameTíví

Heimild: VG 24/7

Xbox Live House Party dagskráin kynnt

Microsoft hefur kynnt línurnar fyrir Xbox Live House Party kynninguna fyrir þetta árið. Fyrir þá sem kannast ekki við hvað House Party er þá snýst þetta um kynningu á stafrænum smærri leikjum í gegnum Xbox Live Arcade þjónustuna á Xbox 360.

Microsoft er búið að stilla sæmilega þéttri dagskrá sem hefst um miðja Febrúar mánuð með útgáfu leiksins Warp frá EA.

Hérna er útgáfan í tímaröð og með verðinu, 800 Ms punktar eru 10$ og 1200 eru 15$ til að gefa betri verðhugmynd fyrir fólk sem er óvant þessu kerfi.

Warp – 15. Febrúar | 800 Microsoft Points
Alan Wake’s American Nightmare – 22. Febrúar | 1200 Microsoft Points
Nexuiz – 29. Febrúar | 800 Microsoft Points
I Am Alive – 7. Mars | 1200 Microsoft Points

Leikirnir sem heilla flesta einna mest verða Alan Wake’s American Nightmate sem er smærra framhald af Alan Wake leiknum á Xbox 360. Seinni leikurinn er I Am Alive frá Ubisoft sem hefur gengið í gegnum erfiða fæðingu en er búin að endurfæðast sem smærri niðurhals leikur.

Hvernig líst ykkur á þessa útgáfu?

Kv
GameTíví

Skyrim 1.4 plástur lagar PS3 bögga ofl

Bethesda hefur uppfært blogg síðuna þeirra með fréttum af næsta plástri fyrir leikinn sem verður 1.4 og vinnuna að hönnunartólum leiksins á PC.

Creation Kit og Steam Workshop er næstum því tilbúið og eru þeir að vinna með Valve sem reka Steam og fólki innan moddunar samfélagsins til að fínpússa og prufa útgáfuna fyrir væntanlega útgáfu í lok mánaðarins.

Skyrim 1.4 uppfærslan er í prófunum fyrir PC/PS3/Xbox 360 og mun innihalda lagfæringar og fínpússannir á algengustu vandamálum notenda leiksins og er hægt að sjá listann í heild sinni neðar í fréttinni. Bethesda er að stefna að senda plásturinn inn til prófanna á PS3 og Xbox 360 ásamt að gefa hann út á PC fyrst.

Hægt verður núna að fá Beta útgáfur af plástrunum í gegnum Steam fyrir þá sem vilja ekki bíða og eru óhræddir við að prufa sig áfram. Hægt er auðveldlega að hoppa úr því aftur þó í gegnum Steam.

PlayStation 3 eigendur sem hafa lennt í talsverðum vandræðum með að vera komin langt inní leikinn og lennt í leiðindar hökkti ofl ættu vonandi núna að sjá þau vandamál hverfa og geta sökkt sér almennilega í leikinn á ný.

Með að smella á more hérna fyrir neðan er hægt að sjá lagfæringar listann í heild sinni.

Kv.
GameTíví

Continue reading ‘Skyrim 1.4 plástur lagar PS3 bögga ofl’

EA eyddi yfir $200 Miljónum í að þróa SW: The Old Republic

Samkvæmt fréttum frá LA Times þá er kostnaður EA á bakvið hönnum Star Wars: The Old Republic MMO leik þeirra og BioWare um $200 Miljón dollara.

Sú tala er auðvitað hækkandi með vinnu að nýju efni fyrir leikinn ásamt uppfærslum og viðhaldi sem mun halda áfram næstu árin. Það voru um 800 hundruð manns sem unnu að leiknum þegar mest var að sögn fréttarinnar og er sæmilegur hluti enn að vinna að leiknum og hefur BioWare sagt eimmit að upprunalegi hópurinn sem hannði leikinn er enn að vinna að honum og að skapa nýtt efni.

The Old Republic sem kom út fyrir síðustu jól er stórt veðmál fyrir EA og hluti af þeirra verkefni að koma með netleik sem gæti keppt við jötuninnn sem er World of WarCraft frá Blizzard fyrirtækinu sem hefur hreinlega átt MMO markaðinn síðan að hann kom út í lok árs 2004 í Bandaríkjunum.

Greinin hjá LA Times er góð lesning og má margt sjá úr henni eins og að EA skoðaði Lord of the Rings, A Game of Thrones og verkefni frá Marvel teiknimyndafyritækinu.

Það styttist í að við sjáum hvernig veðmál EA og BioWare mun koma út, fyrsti mánuðurinn er liðinn og þeir 30 fríu dagar sem fólk fékk með leiknum eru að ljúka og þá kemur í ljós hve mikið af því fólki sem verslaði leikinn mun halda áfram að spila hann. Miðað við viðtökur leiksins og sölu bendir allt til að leikurinn eigi mjög góða framtíð fyrir sér.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

Bioshock Infinite mun innihalda 1999 mode

Irrational Games og 2K hafa sagt að BioShock Infinite muni innihalda nýja erfiðleika stillingu sem kallast “1999 Mode” sem hefur verið hönnuð til að reyna á leikmenn og hæfileika þeirra.

Þeir sem hafa gaman af góðri áskorun og finnst tölvuleikir vera frekar auðveldir í dag ættu að vera einstaklega hrifnir af þessari nýju viðbót við leikinn.

Ken Levine aðalhönnuður leiksins sagði “Okkur langar að gefa okkar elstu og hörðustu aðdáendum möguleikann að fara aftur til okkar róta, í 1999 mode, mæta leikmenn varanlegur afleiðingum gjörða þeirra og hvernig þeir spila leikinn. Leikmenn þurfa að sérhæfa sig og fókusa á það til að lifa af.”

“I’m an old school gamer. We wanted to make sure we were taking into account the play styles of gamers like me. So we went straight to the horse’s mouth by asking them, on our website, a series of questions about how they play our games. 94.6 percent of respondents indicated that upgrade choices enhanced their BioShock gameplay experience; however, 56.8 percent indicated that being required to make permanent decisions about their character would have made the game even better.”

Að auki við þessa varanlegu ákvarðanir, þá mun 1999 mode innihalda kröfuharðari vopn, krafta og heilsu kerfi enn leikmenn eru vanir. Nýja týpan tekur síðan harðar á hvernig leikmenn geta komið tilbaka inní leikinn ef þeir deyja og sendir þá beint í “Game  Over” skjáinn ef að þeim skortir nægilega hluti til að koma tilbaka. Semsagt ekki fyrir þá veikburða eða sem vilja skemmta sér og njóta leiksins og sögunnar án þess að öskra á skjáinn í pirringi.

Leikurinn er nú þegar einn af þeim stærri og mest spennandi í útgáfunni 2012 á PC/PS3/Xbox 360 og þetta eykur bara á það að okkar mati. Hvernig líst ykkur á þetta?

Kv.
GameTíví

World of Darkness sækir í innblástur frá Vampire – Bloodlines

CCP í Bandaríkjunum er nú á fullu við vinnu að MMO netleiknum World of Darkness og gerist í heimi Varmpíra, Varúfla og annara skuggalegri hluta úr myrkrinu og mun hann bætast við Eve-Online leikinn sem er að mestu innin hérna á Íslandi.

Samkvæmt fréttum frá Strategy Informer vefnum og fengust uppúr viðtal við Chris McDonough og má finna myndband af því hérna fyrir neðan, þá er PC leikurinn Vampire: The Masquerade – Bloodlines innblástur að stórum hluta af vinnunni við Vampíru kafla leiksins.

Úr Bloodlines leiknum er dregið það andrúmsloft sem þeir vilja skapa í netleik þeirra, þar sem að hópar Vampíra berjast um völdin.

Það verður einn deildur heimur fyrir alla leikmenn eins og er með Eve-Online í dag.

Kv.
GameTíví

Heimild: StrategyInformer

PC undirskriftalistinn fyrir Dark Souls fær athygli Namco

Dark Souls leikurinn er einn af þeim harðari og miskunarlausari og þú þarft að leggja þig allan í að spila og læra á, en ef þú gerir það ertu verðlaunaður fyrir, hinir kasta fjarstýringunni út um gluggann.

Núna vilja PC eigendur bætast í hóp vina þeirra á PlayStation 3 og Xbox 360 sem hafa notið þessa harða leiks síðan í Nóvember í fyrra. Undirskriftarsöfnun tengt því að fá leikinn yfir á PC og við minntumst á fyrir nokkru á Facebook síðu okkar, er búin að fá um 70 þúsund undirskriftir á stuttum tíma.

Namco útgefandi leiksins hefur ekki varhluta við þessa beðini;

“Damn you are amazing! I honestly wasn’t expecting such a massive support. My boss(es) even came to talk to me about this, after it exploded all around the world. If you wanted to have the attention of Namco Bandai Games, now you have it. The future is in your hands, and I hope you will keep supporting this. I make a personal objective to make sure every relevant people in Namco Bandai Games is in touch with this formidable effort,” a Namco Bandai admin wrote on the publisher’s official forums.

Það verður að segjast frekar jákvætt að sjá einhvern frá Namco að minnast á þetta og að þeir viti af áhuga fólks að fá leikinn yfir á PC. Leikurinn fékk góða dóma þegar að hann kom út og fína sölu og ætti að hafa möguleika að bæta vel í það á PC ef að Namco skyldi færa leikinn þangað yfir.

Ef að þú hefur gaman af erfiðum leikjum (og við erum ekkert að grínast með erfiðum) þá bendum við ykkur að smella ykkur hingað og rita nafnið ykkar niður og hver veit, kannsku launar Namco fyrirtækið ykkur með útgáfu á PC.

Kv.
GameT’íví

Beta prófannir á Starhawk að fara að hefjast

 

Í Nóvember og Desember í fyrra fóru fram lokaðar fjölspilunar Beta prófannir af PlayStation 3 leiknum Starhawk sem við prufuðum eimmit og voru nokkuð skemmtilegar. Núna hefur Sony og LightBox framleiðandi leiksins kynnt opna Betu fyrir leikinn sem er að fara að hrökkva í gang í dag fyrir PlayStation Plus áskrifendur í Evrópu

Þeir hafa gefið út tímaátætlun fyrir hvernig Betan mun koma út:

 18. Janúar fyrir PS Plus áskrifendur og þá sem prufuðu leikinn í lokuðu betunni. A.T.H. það þarf að eiga upprunalega skrárnar á PS3 vélinni.

1. Febrúar fyrir þá sem fengu kóða með Uncharted 3 leiknum, það verður sendur út tölvupóstur tengdur því og leiðbeiningar um hvernig á að nota það.

22. Febrúar verður síðan opnað flóðgáttirnar fyrir alla PlayStation Network notendur.

Það verða síðan aðrar leiðir til að koma fyrr inn í betuna og þær verða kynntar síðar. Hægt er að fá nýjustu fréttirnar á leiknum á starhawkthegame.com vefsíðunni.

Hérna er nýjasta vídeó dagbókin úr framleiðslu leiksins.

Engin dagsetning hefur verið gefin út um lok Betunnar eða hvenær að Stahawk muni koma út. LightBox talar um að þeir ætli sér að gefa sér nægan tíma prufa leikinn sem mest. Sem er ekki skrítið þar sem að fjölspilun hans eins og með forvera hans Starhawk, muni spila stórt spil í vinsældum leiksins.

Kv.
GameTíví