- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2011

Page 2 of 2

Vinningshafa VGA 2011 hátíðinnar

Á Laugardagskvöldið var haldi Video Game Award hátið Spike Tv og Gametrailers í beinni útsendingu og gátu við hérna á landi því miður ekki séð útsendinguna en létum okkur næga að fylgjast með á Twitter og á netinu í staðinn og má finna umfjöllun á Facebook síðu okkar um helgina og slatta af myndböndum.

Sigurveigarar kvöldsins voru The Elder Scrolls V: Skyrim sem fékk leikur ársins og RPG leikur ársins ásamt stúdíó ársins. Portal 2 greip, best PC leikur ársins, besta fjölspilun, besta DLC og bestu kvenn og karl raddir. Batman: Arkham City fékk verðlaun sem besti Xbox 360 leikurinn, Jókerinn fyrir leikjapersónu ársins og fékk leikurinn síðan verðlaun sem besti byggður á öðru efni.

Hérna eru helstu verðlaun kvöldsins tekin saman;

Leikur ársinsThe Elder Scrolls V: Skyrim
Stúdíó ársins – Bethesda Game Studios, The Elder Scrolls V: Skyrim
Leikja persóna ársins – The Joker, Batman: Arkharm City
Leikja Guð – Blizzard Entertainment
Frægðahöllinn – Shigeru Miyamoto, The Legend of Zelda
Besti Xbox 360 leikurinn- Batman: Arkham City
Besti PS3 leikurinnUncharted 3: Drake’s Deception
Besti Wii leikurinnThe Legend of Zelda: Skyward Sword
Besti PC leikurinnPortal 2
Besti Lófa leikurinnSuper Mario 3D Land
Besti SkotleikurinnCall of Duty: Modern Warfare 3
Besti Hasar og ævintýra leikurinnBatman: Arkham City
Besti Hlutverka leikurinnThe Elder Scrolls V: Skyrim
Besti Fjölspilunar leikurinnPortal 2
Besti Einstaklings íþróttaleikurinnFight Night Champion
Besti Aksturs leikurinnForza Motorsport 4
Besti Slagsmála leikurinnMortal Kombat
Besti Hreyfiskynjunar leikurinnThe Legend of Zelda: Skyward Sword
Besti Indí leikurinnMinecraft
Besti Leikur byggður á öðru efniBatman: Arkham City
Besta Lag notað í leik – “Setting Sail, Coming Home (End Theme)” by Darren Korb, Bastion
Besta Frumsamda tónlistinBastion
Besta GrafíkinUncharted 3: Drake’s Deception
Besta Frammistaða Karlmanns – Stephen Merchant as Wheatley, Portal 2
Besta Frammistaða Kvennmans – Ellen McLain as GLaDOS, Portal 2
Besti Niðurhals leikurinnBastion
Besta DLC (Niðurhals efni)Portal 2 – Peer Review
Efstirsóttasti leikur næsta ársMass Effect 3
GameTrailers.com Trailer ársinsAssassin’s Creed: Revelations, E3 2011 Trailer

Svo hvernig fannst ykkur verðlaunahafar kvöldsins? Einhver sem var hlunfarinn eða einhver leikur sem kom betur út en þið bjuggust við?

Kv.
GameTíví

Grand Theft Auto 3 kemur 15 Desember

Biðin eftir Grand Theft Auto 3 fyrir iOS og Android tæki er alveg að vera búin, og á Rockstar blogginu fyrir stuttu, Rockstar sagði að 10 ára afmælis útgáfa leiksins sem gjörbreytti GTA og Rockstar muni koma út á Apple App Store og Android Marketplace þann 15. Desember og á flottu verði $4.99.

Nýtt myndbrot fyrir leikinn kemur út í næstu viku og ætti að gefa nánari hugmynd hvernig leikurinn mun koma út í útliti og spilun. Hérna fyrir neðan eru tvenn skjáskot úr útgáfunni.

Úr iOS útgáfunni

Í nýjum fréttum þá hefur verið staðfest að GTA 3 mun styðja eins kjarna tæki sem var ekki víst í byrjun. Hérna fyrir neðan eru studd tæki sem geta keyrt leikinn.

  • Apple iOS Devices: iPad 1 & 2, iPhone 4 & 4S, iPod touch 4th Generation
  • Android Phones: HTC Rezound, LG Optimus 2x, Motorola Atrix 4G, Motorola Droid X2, Motorola Photon 4G, Samsung Galaxy R, T-Mobile G2x
  • Android Tablets: Acer Iconia, Asus Eee Pad Transformer, Dell Streak 7, LG Optimus Pad, Motorola Xoom, Samsung Galaxy Tab 8.9 and 10.1, Sony Tablet S, Toshiba Thrive

Úr Android útgáfu leiksins

Það verður ekki leiðinlegt að geta rúllað í gegnum þennan leik aftur á símum og töflum og upplifa leik sem gjörbreytti leikjaiðnaðinum.

Kv.
GameTíví

Betan fyrir Star Wars: The Old Republic gekk vonum framar

Ný afstaðin Beta prófun fyrir Star Wars: The Old Republic frá EA og BioWare laðaði að 2. Miljón sjálfboðaliða að sögn útgefandans.

Eric Brown staðfesti þessa tölu á Global Media and Communications ráðstefnunni í New York, hann bætti við að 725,000 leikmenn skráðu sig inn um þakkargjörðar hátíðar helgina, og hver leikmaður spilaði að meðaltali um 12 tíma yfir þriggja daga tímabil.

Brown sagði á þegar hæðst var “var rétt yfir 250,000″ notendur spilandi leikinn á sama tíma.

Ein af leikmönnum okkar GameTíví manna sem við spiluðum í betunni.

Fyrr á árinu hafði, John Riccitiello sagt að leikurinn sem kemur út þann 20. Desember, að hann þyrfti bara 500,000 borgandi áskrifendur til að gera leikinn arðbærann. Miðað við forpöntunar tölur leiksins og áhugann á Betunni og leiknum sjálfum.

Hvernig líkaði ykkur sem náðu að prufa betuna? Á að fá sér leikinn og spila um jólinn? Eða er World of WarCraft enn með fast tak á ykkur?

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

Resistance 3 fær Brutality DLC pakka

Skotleikurinn Resistance 3 var að fá nýja viðbót í formi Brutality DLC pakkans sem er komin út á PlayStation Network búðinni. Pakkinn bætir við Co-op spilun þar sem að tveir leikmenn berjast við flóð af Chimera geimverum, ekki ósvipað Horde mode í Gears of War leiknum og öðrum.

Fyrir $3.99 í Bandaríkjunum og £3.19/€3.99 í Evrópu, fá leikmenn skinn af Mick Cutler, Sledgehammer vopn í öllum leikja týpum og Warden Static þemu skinn fyrir PS3.

Hasarinn gerist í grófari útgáfu af Wales fjölspilunarborðinu, og inniheldur sjö lög af ýmsum plötum með rokkhljómsveitinni Mastodon, sem ætti að gera skemmtunina að kála Chimera geimverunum enn betri.

Hægt er að skoða nánar um pakkan í myndbandinu hérna fyrir ofan og á PlayStation Blogginu. Þessi pakki hleypir vonandi smá lífi í fjölspilun Resistance 3 leiksins á PS3.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

 

Notch fær langþráð frí og færir stjórn á Minecraft

Markus “Notch” Persson hefur staðfest á  blogginu hans  að Jens Begensten er núna yfirhönnuður Minecraft leiksins. Bergensten mun núna hafa lokaorðið á hönnun leiksins, og Notch mun fá langþráða pásu í nokkurn tíma.

Við erum búnir að vera vinna saman að Minecraft í um ár, og ég er undrandi hve samstilltir við erum í hönnun leiksins. Jafnvel þegar við erum ekki samála, þá ræðum við það og oft kemur út betri niðurstaða fyrir vikið. Hann er frábær manneskja að vinna með, og ég á mjög auðvellt að færa stjórnina yfir til hans á Minecraft.

Hægt er að ná á honum á á Twitter @jeb_ eða senda honum póst á jeb@mojang.com

Ég ætla að fá mér góða hvíld nýna, og koma til baka endurnærður og tilbúin. Ég mun halda áfram að aðstoða við Minecraft, en á sama tíma hefja vinnu að nýju verkefni.

Það er ekki annað hægt að segja en að þetta er búin að vera rosalegur tími hjá Notch og bjóst örugglega enginn við þeirri velgengni sem að Minecraft náði. Ekkei slæmur árángur hjá einum manni í byrjun og sýnir hvað er hægt að ná langt með góða hugmynd og smá forritunar kunnáttu.

Kv.
GameTíví

Heimild: VE3D

South Park RPG leikur í vinnslu

Obsidian fyrirtækið sem hefur unnið að leikjum eins og Alpha Protocol, Dungeon Siege III, Fallout: New Vegas og Neverwinter Nights 2 ofl eru að vinna hörðum höndum að hlutverka leik byggðan á South Park teiknimyndaþáttunum fyrir PlayStation 3 og Xbox 360.

Gameinformer hefur staðfest að Trey Parker og Matt Stone höfundar þáttanna eru að skrifa handrit leiksins og eru með puttana í framleiðslu hans á meðan THQ mun gefa leikinn út.

Notendur NeoGAF vefsins eru búnir að fara í gegnum nýjasta hefti Gameinformer og fara í gegnum helstu atriði leiksins.

Leikmenn fara í spor hljóðlátar aðalpersónu sem er nýji krakkinn í bænum og er að reyna að passa í hópinn. Það verður hægt að sérsníða karakterinn sinn, og er hægt að velja úr fimm klössum – Wizard, Paladin, Adventurer, Rouge og ónefndan klass sem er búin til að af Cartman í byrjun leiksins. Bardakerfi leiksins er líkt við Paper Mario leikina.

Leikurinn mun keyra á Dungeon Siege III grafíkvélinni og verður í sama 2D stíl og sjónvarpsþátturinn. Samkvæmt fréttum lítur skjákot úr leiknum eins og það ætti vel heima í þættinum.

Kv.
GameTíví

Er Resident Evil 6 á leið til Kína?

Það er ekki annað hægt að segja en að Japanska fyrirtækinu Capcom gengur ílla að halda leyndu að þeir séu að vinna að Resident Evil 6, orðrómar um leikinn eru búnir að leka út reglulega allt árið.

Hvað sem fólki finnst um Resident Evil 5 og það var ýmislegt af honum þá seldist hann mjög vel, sem hjálpar auðvitað til að Resident Evil 6 skili sér í hendur leikmanna.

PlayStation síðan The Silent Chief hefur grafið upp tvennar upplýsingar um leikinn, leikonan Milla Jovovitch sem leikur í Resident Evil myndunum átti erfitt með að neita tilvist leiksins á meðan hún var að leika í nýjustu myndinni Resident Evil: Retribution og síðan að raddleikona sem skráði RE6 sem eitt af verkefnum hennar.

Leikonan Wendy Mok er með á ferilskránni að hafa unnið að True Crime Hong Kong, Dead Island og sem Kínverskur þorpsíbúi og síðan uppvakningur.

Resident Evil serían byrjaði að færast frá uppvakningum með Resident Evil 4 og er spurning hvort að þeir komi sterkir til leiks í næsta leik. Eitt af því sem RE5 var eimmit gagnrýndur fyrir var að skorta hryllings augnablikin enda frekar erfitt í heitri sólinni í Afríku.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

 

Hönnuður Ico og Shadow of Colossus mögulega að yfirgefa Sony

Samkvæmt fréttum frá Eurogamer þá hefur hönnuðurinn Fumito Ueda sem hefur verið að vinna að The Last Guardian á PlayStation 3 hætt hjá fyrirtækinu og haldið áfram að vinna að verkefninu sem lausráðinn starfsmaður.

Ueda sem er þekktastur að vinna að hinum djúpu og stórgóðu Ico og Shadow of Colossus sem fengu eimmit háskerpu uppfærslu núna í haust á PS3 og eru enn í dag taldir með betri PlayStation leikjum fyrr og síðar.

Sony hefur ekki viljað tjá sig um þennan orðróm annað en að segja klassísku línuna að þeir tjái sig ekki um orðróma, það er þó samt skrítið ef að Ueda er enn að vinna hjá Sony að þeir skuli ekki kála þessum orðrómi strax.

The Last Guardian hefur verið seinkað nokkrum sinnum en á vonandi að koma út á næsta ári, og við vonum að þessar fréttir þó réttar eða ekki hafi ekki áhrif á útgáfuna.

Kv.
GameTíví