
SEGA og Creative Assembly munu gefa út staka aukapakkann Fall of the Samurai fyrir Total War: Shogun 2 í Mars á næsta ári og mun ekki þurfa Shogun 2 til að spila hann.
Fall of the Samurai segir frá upphafi iðnbyltingarinnar og áhrif þess á Japan á meðan Breskir, Bandarískir og Franskir herir hjálpa Japanska hernum að umbreyta sér frá Samurai yfir í að nota meira nútímavopn eins og byssur.
Það verða sex ný klön til að spila, eins og Satsuma sem eru nútímavæddari og síðan Nagaoka sem halda fast í fortíðina. Það verður hluti af leiknum að eiga við Breta, Bandaríkjamenn og Frakka sem allir vilja fá bita af kökunni í Japan.
Kort leiksins hefur stækkað og verið bætt í átt til norður héraðanna. Það eru síðan ný tæknitré til að rannsaka, járnbrautir og sjóhernaður og möguleikinn að skjóta úr skipum inní land sem er að koma inn í seríuna í fyrsta sinn.
Það eru 39 nýjar land hersveitir, þar á meðan hin kraftmikkla Gatling byssa. US Marines herinn og British Royal Marines munu mæta á svæðið til að berjast innan leiksins.
Í tilefni þess að árið er 1863 þá hefur sjóhernaður aukið mikilvægi. Það eru 10 ný skip frá gufuskipum, tundurskeytabátum og járnklædd herskip. Það verður síðan gott að muna þó að þú getur skotið á strandir, og hernaðarmannvirki þá geta þau skotið til baka.
Að auki við viðbæturnar að ofan þá eru þrjár nýjar agent týpur, fjögur sagnfræðileg verkefni til að leysa, uppfærsla á fjölspilun leiksins ofl efni til að halda leikmönnum við efnið.
Kv.
GameT’íví
Heimild: Eurogamer












Nýleg comment