
Í gegnum árin hafa tölvuleikir sem byggja á efni eins og kvikmyndum, teiknimyndum eða teiknimyndarblöðum verið vægast sagt slakir og frekar sorgleg eintök af leikjum. Stór galli við þá hefur oft verið að þeir hafa verið bundnir við útgáfu kvikmyndar og eða hennar sögu og takmarkanna ásamt því að útgefandinn hefur oft ekki lagt mikinn tíma eða vinnu í að styðja þá.
Fyrsti leikurinn að margra mati sem náði að brjóta þennan múr og ef eitthvað vera betri en efni sem hann var byggður á var leikurinn The Chronicles of Riddick: Escape from Butcher Bay eftir Sænska fyrirtækið Starbreeze Studios sem kom út árið 2004 og árið 2009 í endurbættri útgáfu. Leikurinn skartaði umhverfi, sögu og spilun sem fólk hafði ekki fengið áður í slíkum leikum.
Næsti leikur sem náði sama árangri og margir segja toppaði það var Batman Arkham Asylum sem kom út árið 2009 og var hannaður af frekar óreyndu fyrirtæki sem kallast Rocksteady frá Bretlandi og hafði áður gert aðeins einn leik sem var Urban Chaos: Riot Response sem kom út árið 2006 fyrir PlayStation 2 og Xbox. Svo þegar heyrðist að þeir væru að vinna að Batman leik þá bjóst fólk ekki við mikklu af þeim eða leiknum, enda hafði leikur komið út árið áður byggður á myndinni Batman Begins og verið frekar slakur.
Batman Arkham Asylum kom öllum á óvart og sló út allar væntingar sem fólk gerði til hans, sem voru þá ekki mikklar og endaði sem einn af leikjum ársins það ár og fékk ófá verðlaun og endaði með um 9.2 í meðaleinkum.
Eftir þennan árángur hefur verið beðið eftir næsta leik frá þeim með mikilli eftirvæntingu og ef að má marka fyrstu dómana sem komu út í lok síðustu viku þá virðist leikurinn ætla að standa undir þeim og ef ekki toppa þær hreinlega.
IGN 9.5/10
–Batman: Arkham City isn’t just better than Batman: Arkham Asylum, it’s better than most games on the market.CVG 9.5/10
–Rocksteady elevated the status of the superhero game with Asylum to a place that commands respect from notoriously hard to please comic book fans.The Telegraph 5/5
–A wonderful, startlingly complete package tailored for the single player.Games Radar 10/10
–Batman: Arkham Asylum was the greatest superhero game of all time. The sequel, Batman: Arkham City, is five times bigger and about a billion times better. You do the math.1UP A
–From its memorable Bourne Identity-esque opening to its shocking ending, Batman: Arkham City secures its place as my favorite superhero game since Freedom Force.Eurogamer 9/10
–First they gave us a hero; now they’ve given us his ideal playground.G4 5/5
–You win, Rocksteady. You beat me. This game is perfect.Giant Bomb 5/5
– …it’s hard to imagine any fan of action games coming away from Arkham City disappointed.GameTrailers 9.3/10
– Simply put, if you admire painstakingly-realized worlds rich with secrets and game mechanics that never cease to surprise you, then you it to yourself to experience Arkham City.GameSpot 9/10
– …this is an unforgettable adventure that will keep you coming back to the cape and cowl long after you’ve seen the credits roll.IncGamers 9/10
– Don’t think of it as just another superhero game, think of it as one of the best action titles of this generation
Leikurinn er að koma út í þessari viku á PlayStation 3 og Xbox 360 og í Nóvember á PC.
Það stefnir allt í að þessi leikur verði einn sá stærsti á árinu og að okkar mati ætti að vera einn af topp 5 leikjum ársins þegar árið verður gert upp.
Kv.
GameTíví



SHIIIIIIIIIIIIIIIIIT, éééég áááá ekki eftir að líta dagsins ljós næstu mánuðina þegar þessi leikur kemur á PC. Arkham asylum var minn uppáhalds leikur fyrr og síðar eeen nú kemur þessi leikur, þessi leikur er allt sem ég þarf! allt sem ég þrái!!