- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for October, 2011

MGS HD safninu seinkar til Feb á næsta ári

Núna í lok Október stendur leikjaútgáfan einna hæst og stórir leikir að koma út í hverri viku, á þeim tíma er ekki óeðlilegt oft að einhverjir af þeim af ýmsum ástæðum ná ekki upprunalega útgáframma þeirra.

Einn slíkur er Metal Gear Solid HD safnið sem átti að koma út núna í Nóvember á PS3/Xbox 36o og á að innihalda fimm klassíska Metal Gear leiki.

Í stað Nóvember útgáfu hefur safnið núna fengið nýjan útgáfudag sem er 3. Febrúar 2012 sem færir pakkann úr þeytingnum sem er Okt/Nóv útgáfan og yfir í rólegri tíma eftir áramótin sem þessi pakki getur kannski fengið meiri athygli sem hann á klárlega skilið.

Í pakkanum eru nokkrir eldri Metal Gear leikir ásamt Metal Gear Solid 2, Metal Gear Solid 3 og Metal Gear Solid Peace Walker allir í HD útgáfum og með stuðning fyrir Tropy’s/Achievements. Útgáfurnar MGS2 og MGS3 eru Substance og Subsistance sem innihalda talsvert aukaefni og MGS3 græðir stórt eimmit með glænýrri myndavélar stjórnun sem gjörbreytti spilun leiksins á sýnum tíma.

Xbox 360 eigendur munu fá að prufa alla leikina nema Metal Gears Solid 2 í fyrsta sinn. MGS2 hafði áður komið út fyrir upprunalegu Xbox leikjavélina.

Kv.
GameTíví

Steam útsalan hafinn


Hin Ameríska hrekkjavaka er núna um helgina og í tilefni þess eru Valve menn sem eru á bakvið Half-Life, Portal 1 og 2, Team Fortress 2 ofl leiki og síðan hina gríðalega vinsælu Steam stafrænu leikjaþjónustu með tilboð á Steam í tilefni þess.

Halloween is almost here, and we know a lot of you are pretty scared. Normally, our advice would be to try to keep it together and just ride this thing out. But this year, we have a better idea: let Steam be your safe harbor from the terror that will probably be haunting your, say, house, for instance.

With that in mind, from now through October 31st, we’re offering discounts on a bunch of great games. Oh, these discounts will be shocking. Though they won’t be scary in any meaningful way. Let these insane – but deliberately, rationally insane – deals be the one good, pure thing you cling to throughout the dark days ahead. Not sold? What if we told you that for every game you buy, we promise to try to kill a monster. Like maybe a skeleton. In fact, that’s our Steam Halloween pledge to you: Sensible savings and we are going to murder a skeleton.

Hægt er að gera góðan díl á leikjum eins og;

  • Borderlands á hlægilegu verði 5$(um 570.kr) 4 eintök á $15 fyrir þig og vinina ásamt að kaupa Borderlands Game of the Year Edition leikinn með öllu DLC á $7.49 og 4 pakkann á $22.49,
  • Dead Space 1 og 2 á 17$,
  • Hinn hrikalega og við meinum það, hrikalega hryllings leik Amnesia á 4$.
  • Left4Dead $6.79, Left4Dead 2 $6.79.
  • Allir S.T.A.L.K.E.R leikirnir þrír á $8.74.
  • Upprunalegi BioShock sem er einn besti leikur síðustu ára á aðeins $5.
  • Cthulhu Saves the World á 2$.

Þetta er bara brot af því sem er í boði og er um að gera að kíkja nánar og sjá hvort að eitthvað heilli ykkur í tilefni hinnar Amerísku hrekkjavöku sem er um helgina.

Kv.
GameTíví

RAAM’s Shadow DLC kemur í Des fyrir Gears of War 3

Gears of War 3 eigendur eiga af von á góðu ar sem að Microsoft og Epic Games have hafa kynnt nýjan DLC pakka að nafni RAAM’s Shadow, sem bætir við nýjum sögu parti við leikinn.

Pakkinn á að koma út þann 13. Desember og inniheldur margar persónur sem leikmenn seríunnar ættu að kannast vel við. “RAAM’s Shadow” mun innihalda um 3 tíma spilun og gerist saga hans á undan atburðum fyrsta Gears of War leiksins. Það verða síðan sex nýjir fjölspilunar karakterar, the Chocolate Weapon Set (súkku hvað) ásamt 250 Gamerscore.

“RAAM’s Shadow” mun kossta 1,200 Microsoft puntka á Xbox Live Marketplace en er frír fyrir þá sem versluðu Season Passann fyrir leikinn sem var fáanlegur fyrir nokkrum vikum þegar að leikurinn kom út.

“When we announced the ‘Gears 3’ Season Pass, we immediately started getting hundreds of questions from fans about what the game add-ons would be,” said Epic Games Design Director Cliff Bleszinski. “We’re really excited to be lifting the curtain on the first two releases, first with the ‘Horde Command Pack’ and now with ‘RAAM’s Shadow,’ which gives fans a new perspective on the ‘Gears’ universe and is also the biggest DLC release we’ve ever made.”

“RAAM’s Shadow” drops players into the events of Sera post-Emergence Day, as Zeta Squad is enlisted to evacuate Ilima City and protect the citizens against a Locust Kryll storm. Taking on the infamous Locust leader from “Gears 1,” General RAAM, Zeta is led by Michael Barrick (from “Gears of War” comics fame) and comprised of familiar faces such as Lt. Minh Young Kim (“Gears 1”) and Tai Kaliso (“Gears 2”), and also includes a new female comrade, Alicia Valera.

In addition to fighting as a new squad of Gears, players will step into the boots of RAAM himself, and for the first time storm the human stronghold from the perspective of one of the series’ most legendary bosses.

“RAAM’s imposing size and strength, along with his Kryll shield, make him one of the most powerful and daunting foes in the ‘Gears’ universe,” said Bleszinski. “We think fans are going to have a blast unleashing hell upon the poor humans for the first time in a campaign setting.”

Með tilkomu RAAM’s Shadow í Desember og Horde Commander fjölspilunar pakkans þann 1 Nóvember sem bætir við nyjum borðum, karakterum, vopna skinnum, achievements ofl þá er ekki vitlaust að skoða Season passann fyrir leikinn nánar. Hann er á 2400 Ms Punkta og inniheldur fyrstu 4 DLC pakkana á meira en 30% afslætti.

Hvernig fór Gears of War 3 í ykkur Xbox 360 unnendur? Eruð þið að rúlla í gegnum söguna með vinum í Co-op? Eða er búið að sökkva sér djúpt í fjölspilun leiksins?

Kv
GameTíví

Vélbúnaðarkröfurnar fyrir Batman: Arkham City á PC

PC eigendur þurfa að bíða um tæpan mánuð eftir að fá leikinn Batman: Arkham City og eins og við sögðum ykkur frá í síðustu viku þá er leikurinn að fá glimmrandi dóma á PS3 og Xbox 360.

Warner Bros hefur staðfest á fyrstu viku leiksins hafa um 4.6 Miljón eintök af leiknum farið í umferð fyrir PS3/Xbox 360 um allan heim og er það gott stökk yfir árángur fyrri leiksins á sama tíma.

Leikurinn mun koma út þann 18. Nóvember á PC og hafa vélbúnaðar kröfurnar fyrir leikinn verið gefnar út og er ekki vitluast og rýna í þær til að sjá hvernig PC vélin ykkar kemur út.

Lágmarks vélbúnaðar kröfur:

Operating System: Microsoft Windows XP, Vista or 7
CPU: Dual-Core CPU 2.4 Ghz
RAM: 2GB
Graphics Card: NVIDIA 8800 or ATI 3800 with 512MB of VRAM
Sound: Microsoft Windows XP/Vista or 7 compatible sound card (100% DirectX 9.0c-compatible)
DVD-ROM: Quad-speed (4x) DVD-ROM drive
Hard Drive: 17.5GB free disk space
Input Devices: 100% Windows XP/Vista or 7 compatible mouse and keyboard

Mælt með til að njóta leiksins til fulls:

Operating System: Microsoft Windows 7
CPU: Dual-Core CPU 2.5 GHz
RAM: 4GB
Graphics Card: NVIDIA GeForce GTX 460 or ATI Radeon HD 6850 with 768MB+ of VRAM (DirectX 11 compatible)
Sound: Microsoft Windows XP/Vista or 7 compatible sound card (100% DirectX 9.0c-compatible)
DVD-ROM: Quad-speed (4x) DVD-ROM drive
Hard Drive: 17.5 GB free disk space
Input Devices: 100% Windows XP/Vista or 7 compatible mouse and keyboard or Xbox 360 Controller for Windows

Miðað við þennan lista þá ætti að vera ágætis mál að rúlla leikinn á fjölbreyttum vélum enda keyrir leikurinn á Unreal Engine 3 eins og síðasti leikur.

Kv.
GameTíví

GTA V staðfestur, trailer á leiðinni í næstu viku

Það er búin að vera pínu löng bið eftir framhaldinu af Grand Theft Auto IV sem kom út vorið 2008 og síðan þá hefur lítið sem ekkert heyrst frá Rockstar framleiðendum seríunnar um væntanlegt framhald.

Núna í morgun kom loksins eftir langa bið staðfesting á að Rockstar væri í raun að vinna af framhaldinu af GTA IV sem seldist vægast sagt vel og fékk mjög góða dóma. Leikurinn heitir Grand Theft Auto V og kemur það í raun engum á óvart. Það hafa bara 2 leikir í seríunni ekki verið með númer og það voru Grand Theft Auto: Vice City og Grand Theft Auto: San Andreas.

Við vitum nærri ekkert um GTA V annað en orðróma sem hafa dúkkað upp annað slagið á síðustu árum. Lógóið af leiknum hérna fyrir ofan er nokkuð forvitnilegt, sérstaklega það sem að Rómverska talan V sem táknar 5 er í stíl eins og letur sem er notað í Bandarískum peningarseðlum.

Rockstar staðfesti í raun bara eitt fyrir utan tilveru leiksins og það er að þann 2. Nóvember næsta mun fyrsta sýnishornið af leiknum sjást. Ef að það verður eitthvað í líkinum við það fyrsta sem við sáum úr GTA IV þá ættu við að eiga von á mjög góðu.

Núna er síðan bara að vona að þessi leikur verði gefin út á næsta ári :)

Kv.
GameTíví

L.A. Noire: The Complete Edition á leiðinni fyrir PS3/360

Rockstar Games hefur sent frá sér fréttatilkynningu sem staðfestir að L.A. Noire: The Complete Edition komi út fyrir PlayStation 3 og Xbox 360 í næsta mánuði og muni innihalda allt aukaefnið sem hafði áður komið út á PS3/Xbox 360 sem DLC (niðurhalsefni) og með PC útgáfunni sem er nýlega komin út.

Similar to its PC counterpart, L.A. Noire: The Complete Edition on consoles will feature all of the previously released downloadable content for L.A. Noire, including the “Nicholson Electroplating” Arson case, “Reefer Madness” Vice case, “The Consul’s Car” Traffic case, “The Naked City” Vice case , “A Slip of the Tongue” Traffic case, The Badge Pursuit Challenge, and all weapons and outfits released to date.

Developed by Team Bondi in conjunction with Rockstar Games, L.A. Noire is a crime thriller set in post-World War II Los Angeles. As Detective Cole Phelps, players must search for clues, interrogate suspects and chase down criminals to solve a series of cases inspired by real world incidents. As he rises through the ranks of the LAPD, Phelps comes face-to-face with the corrupt heart of Los Angeles: from fallen starlets to double-dealing police officers and the vast reaches of the criminal underworld – and finally, the darkness of his own personal demons.

Utilizing a brand new type of facial capture technology called MotionScan, L.A. Noire breathes unprecedented life into character performances and was honored as an official selection of the 2011 Tribeca Film Festival.

For more information, log onto www.rockstargames.com/lanoire.

Gripurinn kemur út þann 15. Nóv í N-Ameríku og 18 annars staðar í heiminum.

Kv.
GameTíví

Football Manager 2012 dómar

Á Föstudaginn kom út líklega einn mest vanabindandi leikur (fyrir utan World of WarCraft) og það er auðvitað Football Manager 2012 sem gleður hjörtu ótal fótboltaunnenda og sér til þess að margir tímar munu tapast á næst vikum á mánuðum.

Leikirnir hafa ávallt verið mjög vinsælir hér á landi og selst mjög vel, enda ná rætur leiksins til gömlu Championship Manager seríunnar sem Sports Interactive gerðu á undan splitti þeirra við Eidos.

Við höfum verið að spila leikinn síðustu vikurnar og viðurkennum að það hefur reynst okkur erfitt að hætta að spila hann og við vorum tæpir á að mæta á Skjá Einn um daginn :)

Fólk virðist líka leikinn bara nokkuð vel ef að má marka dómana sem hann er byrjaður að fá og má sjá hérna fyrir neðan.

Daily Star – 5/5
Everyone.it – 9/10 – (Italy)
Videogamer – 9/10
Gaming Fix – 9/10
FM Greece – 5/5 – (Greece)
The Reticule - 4/5
Pressfire.no – 5/6 – (Norway)
Decades in a Digital World – 10/10
Spaziogames.it – 9.1/10 – (Italy)
Beefjack – 8.8/10
Digital Spy – 4/5
Strategy Informer – 9/10
Neoseeker – 9/10
Gamereactor - 7/10 – (Norway)
fmfreaks – 8.5/10 – (Denmark)
IGN – 9/10
Made2Game – 10/10
NRK – 5/6 – (Norway)
Gaming Daily – No rating, positive review
PC Only – 9/10 – (Dutch)
Soccernet – 4/5
VG Newspaper – 6/6 (Norway)
Eurogamer – 8/10 (Italy)
Italia Top Games – 9.5/10 (Italy)
Everyeye – 9/10 (Italy)
Gamesvillage – 8.5/10 (Italy)
Gamesurf – 8/10 (Italy)
Videogame – 10/10 (Italy)
CVG – 8/10 (Italy)
Gamedot – 9/10
FM Crew – 8.5/10 – (Serbia)
The Guardian – 5/5

Leikurinn er nú fáanlegur á PC/Mac og þarf að hafa í huga að það þarf að setja upp Steam til að notast við leikinn á netinu í byrjun og eftir það er hægt að spila utan netsins.

PSP og iPhone/iPod/iPad útgáfurnar koma út á næstu vikum fyrir þá sem vilja síðan vera meðfæranlegir í fótboltafíkn sinni :)

Kv.
GameTíví

Sony kynnir Fortune Hunters Club fyrir Uncharted 3

Uncharted 3 hefur fengið staðfest DLC season passa kerfi ekki ólíkt því sem Gears of War 3 og Forza 4 á Xbox 360 hafa nýlega fengið.

PlayStation Bloggið kynnti pakka nánar sem kallast The Fortune Hunters’ Club, sem inniheldur aðgang af fyrstu fjórum fjölspilunar pökkum ásamt fyrst þremur fjölspilunar útlits pökkum og á fyrsta viðbótinn við leikinn að koma út í Nóvember.

Að auki við þetta verður hægt að nálgast þemu og að fá tilkynningu beint á XMB (viðmót PS3 vélarinnar) þegar DLC er tilbúin að sækja.

Verðið er $24.99 fyrir fólk í Bandaríkjunum og samkvæmt Sony er heildarverðmæti DLC um $45.oo sem þýðir 45% afslátt. Hægt er að forpanta pakkann núna frá PlayStation Store

Eins og er hefur þetta bara verið staðfest í Bandaríkjunum en ekki er ólíklegt að við fáum þetta fyrir okkur í Evrópu líka fljótlega eða við vonum það :)

Kv.
GameTíví

Forpantanir fyrir BF3 ná 2.miljónum

Forpantanir fyrir skotleikinn Battlefield 3 hafa náð yfir 2. Miljón eintökum að sögn EA útgefanda leiksins og hafa bætta á sig aðeins síðan að vera í 1.5 Miljón í September.

Eftirvænting eftir leiknum er mikil og er stór beta fyrir leikinn á PC/PS3/Xbox 360 nýlokið sem gekk að mestu mjög vel og skilaði stórum tölum þar sem að yfir 8.1 Miljón manns tóku þátt í henni og virðast hafa skemmt sér frekar vel ef að má marka tölurnar hérna fyrir neðan.

Kevin O’Leary sagði í viðtali við Fox Buisness; “Okkur gengur mjög vel, tölurnar lofa góðu og það eru enn smá tími eftir. Við erum mjög spenntir.”

“Við erum að horfa til lengri tíma, serían stefnir á stóran árangur og okkur gekk mjög vel með síðasta titil okkar, Battlefield: Bad Company 2 og við erum spenntir að færa ykkur Battlefield 3 og færa fleiri fólk þessa hernaðar reynslu.”

Battlefield 3 og Call of Duty: Modern Warfare 3 eru búin að berjast hart í fjölmiðlunum út árið og stefnir allt í að baráttu þessa leikja verði vægast sagt epísk.

Battlefield 3 kemur út 27. Október og Call of Duty: Modern Warfare mætir á svæðið 8. Nóvember.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

PlayStation Vita kemur út 22. Febrúar 2012

Sony hefur staðfest að nýjasta lófavél þeirra PlayStation Vita mun koma út í Evrópu, Afríku, Mið-Austurlöndunum og Ástralasíu þann 22. Febrúar 2012 sem er 2 mánuðum eftir útgáfuna í Japan.

Gripurinn mun kosta  €249.99 (RRP) [AUD$349.95 (RRP) /£229.99 RRP/ NZD$449.95 (RRP)] fyrir Wi-Fi útgáfuna og €299.99 (RRP) [AUD$449.95 (RRP) /£279.99 RRP/ NZD$549.95 (RRP)] fyrir 3G/Wi-Fi týpuna.

Verð á Íslandi ætti að skýrast þegar nær dregur útgáfu vélarinnar.

Hægt er að skrá sig á eu.playstation.com/psvita til að fá nýjustu fréttirnar og tilboð ásamt að fá Resistance Burning Skies þemu fyrir PS3 eða PSP.

Fyrr á þessu ári gaf Nintendo út 3Ds vél þeirra sem hefur ekki gengið eins vel og þeir höfðu óskað eftir, að auki hefur stækkandi farsíma markaður með tækjum eins og Android og iOS tækjum haft áhrif á markaðinn og hvernig Nintendo og Sony hafa brugðist við samkeppninni og hönnun véla þeirra.

PS Vita vélin er stórt útspil fyrir Sony og er ætlað að bæta fyrir suma vankanta PSP vélarinnar sem kom á undan og gekk ílla að keppa við Nintendo Ds lófavélina, stærsti hluti þess í margra huga var útaf því að margir leikirnir  sérstaklega í byrjun voru hálfgerðir PS2 leikir smellt á PSP og voru pínu ergjandi að spila útaf því að vélina var ekki með annan analog pinna og leikirnir margir voru ekki hannaðir með styttri spilunartíma í huga.

Einn af stærstu leikjunum sem kemur út með vélinni verður leikur í hinni vinsælu og stórgóðu Uncharted seríu Nagthy Dog fyrirtækisins og Sony sem heitir; Uncharted: Golden Abyss og lítur hrikalega vel út eins og má sjá hérna fyrir ofan.

Annar spennandi er Vita útgáfa af LittleBigPlanet sem má sjá myndband af fyrir neðan.

Með útgáfunni í Japan koma út 26 leikir en ekki enn hefur verið staðfest hvað við fáum í Evrópu og Ameríku en má búast við öllum helstu stóru leikjum sem eru ekki ætlaðir fyrir Japans markað.

Hérna fyrir neðan með að smella á more má sjá helstu tæknilegu upplýsingar um vélina.

Kv.
GameTíví

Continue reading ‘PlayStation Vita kemur út 22. Febrúar 2012′