
Gog.com þjónustan er í mikklu uppáhaldi hjá okkur, hún leyfur okkar að spila gamla klassíska PC leiki á nýjum PC vélun án marga þeirra vandræða sem oft þarf að eiga við. Oft getur verið erfitt að koma 5-10+ ára leikjum upp á t.d. Windows 7 vél og með leik sem vill ekki trúa að það sé til neitt annað en DOS stýrikerfið sáluga.
Í tilefni þess að Gog er að nálgast 6 Miljónasta leik niðurhalað frá þeim þá eru þeir með tilboð í gangi á vef þeirra, sá sem nær þeim árangri að vera viðskiptavinur nr. 6. Miljón fær alla leiki á þjónustu Gog frítt! Það er ekki slæmur pakki sama hvernig er litið á það og inniheldur hann marga af betri leikjum síðari ára ásamt leik eins og The Witcher 2 sem kom út í Maí á þessu ári og er eimmit hannaður af móðurfyrirtækinu CD Project Red sem á Gog þjónustuna.
Að auki við að gleðja einn viðskiptarvin einstaklega vel, þá munu allir þeir sem eiga aðgang af gog.com fá möguleikann að sækja Broken Sword: Shadow of The Templars Director’s Cut algerlega frítt í 48 tíma eftir að árangrinum hefur verið náð.
Athugið að það telst ekki með að sækja aftur leiki sem þið hafið verslað áður á þjónustunni, en þetta ætti að vera skemmtilegur hvati að skoða þessa frábæru þjónustu ef að þið hafið ekki gert það nú þegar.
Hægt er að fylgjast með þeim á Twitter og Facebook til að fá nýjustu fréttirnar beint í æð.
Kv.
GameTíví



0 Responses to “Gog.com með sölutengt tilboð”