- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for September, 2011

I Am Alive kemur á PSN og XBLA í vetur

Það er ekki annað hægt að segja að leikurinn I Am Alive frá Ubisoft hafi gengið í gegnum erfiða fæðingu síðan við sáum hann í fyrsta sinn árið 2009. Leikurinn hefur upplifað margar tafir og verið endurhannaður oftar enn einu sinni í erfiðri framleiðslu sinni.

Heimsendar leikurinn mun núna koma út næsta vetur fyrir Xbox Live Arcade og PlayStation Network að sögn Ubisoft, nema auðvitað að hann lendi í einhverri seinkun á ný.

“We know people have been waiting for this game to arrive, and we believe it’s going to be worth the wait,” said Adam Novickas, Director of Marketing at Ubisoft. “I Am Alive presents a unique take on the post-apocalyptic, survival genre by creating more complex and emotional situations for the player. Xbox LIVE Arcade and PlayStation Network are the perfect platforms to leverage the mature and challenging experiences of the game.”

Hérna er síðan fyrsta sýnishornið úr leiknum

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

Gog.com nær árángrinum og gefur frían leik

Á Miðvikudaginn sögðum við ykkur frá sölutilboðinu sem vefþjónustan Gog var með í gangi og við vorum varla búnir að sleppa orðinu þegar að þeir náðu þeim árángri að hafa selt 6. Miljón staka leik á vef þeirra.

Í tilefni þess eins og þeir lofuðu þá er frítt eintak af  Broken Sword: Shadow of The Templars Director’s Cut í boði fyrir alla. Eitt sem þarf að hafa í huga að þetta er tímabundið tilboð og gildi bara til 11:59 í dag!

Last week, during CD Projekt Fall 2011 Conference, we’ve launched a counter on the main page which indicated the number of unique games downloaded at GOG.com. Today that counter hit 6 million unique game downloads, and to celebrate this fact and to thank all of you at GOG.com, together with Revolution Software, we’re lowering the price for first part of the acclaimed Broken Sword series to “free”! In order to receive the free copy of Broken Sword: Shadow of the Templars free, go to the gamecard and click on “download now”, at which point the game will be added to your game shelf.

The special offer for Broken Sword is valid until October 1, at 7:59 a.m. EDT (11:59 a.m. GMT), so be sure to grab it by then and don’t forget to share the news with all your friends!!!

Ef að þið versluðu ykkur leik á Gog sölutilboðinu endilega segið okkur hérna fyrir neðan hvað þið fenguð ykkur.

Kv.
GameTíví

Journey svífur til vors 2012

Jenova Chen frá thatgamecompany hefur staðfest að PSN leikurinn Jorney frá hönnuðum flOw og Flower muni ekki koma út á þessu ári heldur næsta vor frekar.

Chen þakkaði fyrir viðtökurnar og stuðningin sem Beta leiksins fékk á síðustu vikum. Fyrirtækið hefur hingað til ekki tjáð sig mikið um væntanlegan útgáfudag, þrátt fyrir ófáar spurningar.

“Eins og allir leikir okkar, þá er Journey upplifun. Að lokum er það ykkar álit sem skiptir mestu máli. Við erum glöð að geta staðfest að Journey mun koma út næsta vor.”

Við erum mjög hrifnir að leikjunum sem thatgamecompany hannar og eru þeir mjög ólíkir því sem er almennt á markaðnum.

Kv.
GameTíví

Heimild: PlayStation Bloggið EU

Gog.com með sölutengt tilboð

Gog.com þjónustan er í mikklu uppáhaldi hjá okkur, hún leyfur okkar að spila gamla klassíska PC leiki á nýjum PC vélun án marga þeirra vandræða sem oft þarf að eiga við. Oft getur verið erfitt að koma 5-10+ ára leikjum upp á t.d. Windows 7 vél og með leik sem vill ekki trúa að það sé til neitt annað en DOS stýrikerfið sáluga.

Í tilefni þess að Gog er að nálgast 6 Miljónasta leik niðurhalað frá þeim þá eru þeir með tilboð í gangi á vef þeirra, sá sem nær þeim árangri að vera viðskiptavinur nr. 6. Miljón fær alla leiki á þjónustu Gog frítt! Það er ekki slæmur pakki sama hvernig er litið á það og inniheldur hann marga af betri leikjum síðari ára ásamt leik eins og The Witcher 2 sem kom út í Maí á þessu ári og er eimmit hannaður af móðurfyrirtækinu CD Project Red sem á Gog þjónustuna.

Að auki við að gleðja einn viðskiptarvin einstaklega vel, þá munu allir þeir sem eiga aðgang af gog.com fá möguleikann að sækja Broken Sword: Shadow of The Templars Director’s Cut algerlega frítt í 48 tíma eftir að árangrinum hefur verið náð.

Athugið að það telst ekki með að sækja aftur leiki sem þið hafið verslað áður á þjónustunni, en þetta ætti að vera skemmtilegur hvati að skoða þessa frábæru þjónustu ef að þið hafið ekki gert það nú þegar.

Hægt er að fylgjast með þeim á Twitter og Facebook til að fá nýjustu fréttirnar beint í æð.

Kv.
GameTíví

Train Simulator 2012 að renna að stöðinni

Margir heillast mikið af lestum í æsku og heldur sá áhugi áfram út lífsleiðina, fyrir okkur hérna á klakanum er þetta aðeins öðruvísi og margir sem fara í gegnum lífið án þess nokkur tíman að stíga uppí lest.

Það skemmtilega við tölvuleiki er að það er til leikur fyrir næstum því sama hvað áhugamál eða upplifun sem höfðar til fólks. Svo lesta unnendur eru með eitthvað fyrir sig til að fá útrás fyrir sinn innri lestarstjóra í formi Railworks 3: Train Simulator 2012 sem kom út fyrir helgi á PC útí heimi og hefur verið gefið út mjög væmið sýnishorn úr leiknum sem á að toga í hjarta strengina.

Built-in tutorials help you get to grips with the controls and different driving techniques. The Cab Control interface makes it easy for beginners to drive straight away, while expert mode allows you to drive with accurate locomotive controls. Exhilarating scenarios allow you to put your skills to the test; you can even upload your score on the worldwide Steam leader board.With more than 70 scenarios to play, Train Simulator 2012 offers hours of driving pleasure. Drive a classic General Motors F7 diesel locomotive through the searing heat of the California desert, or experience high speed in the cab of the fantastic Hitachi Super Express. Drive a BR101 with a freight train through the German Alps, or shunt cattle wagons at Evercreech Junction with a Black 5 steam locomotive. And if your favourite locomotive or route is not included, we have the largest range of top-quality add-ons with more than 90 downloadable routes and locomotives to choose from, with more being added all the time.

Includes:

  • Cutting edge graphics and detail
  • 8 Realistic lines
  • 16 highly-detailed locomotives including Hitachi Super Express
  • More than 70 scenarios
  • Realistic weather and seasons
  • World Editor to modify and build routes
  • Career System leader board
  • Driving tutorials

Við getum ekki lofað að þessi skili sér endilega í búðarhillar hér á landi en við vitum að hann er til á helstu vefverslunum úti og mun líklega dúkka upp á stafrænum dreifinga þjónustum einnig.

Svo kitlar þetta áhugann hjá einhverjum?

Kv.
GameTíví

Heimild: VE3D

Star Wars: The Old Republic mætir í Jólapakkann

Bioware hefur staðfest að Star Wars: The Old Republic, muni rétt ná að koma út fyrir jólin og ætti þá að skila sér í ófáa jólapakkana þetta árið.

BioWare hefur einnig staðfest verðin sem verða á mánaðargjöldum leiksins eftir að 30 fríu dögunum líkur sem fylgja öllum eintökum af leiknum.

Öll eintök af  Star Wars: The Old Republic munu koma með 30 fríum dögum af spilunar tíma, eftir það verður hægt að lengja spilunar tímann með að leggja út fyrir fastri áskrift af leiknum sem er í nokkrum útgáfum og sambærileg við það sem aðrir leikir á markaðnum gera:

1 Mánaðar Áskrift: $14.99 (£8.99/€12.99)
3 Mánaðar Áskrift: $13.99 per month (stök greiðsla $41.97/£25.17/€35.97)
6 Mánaðar Áskrift: $12.99 per month (stök greiðsla $77.94/£46.14/€65.94)

Leikurinn á að koma út þann 20. Desember í Bandaríkjunum og þann 22. Desember í Evrópu, þeir sem forpanta leikinn mun eiga möguleika á “Early Game Access” sem leyfir fólki aðgang að leiknum fyrr, þó að það hefur ekki verið staðfest nánar hvernig verður staðið af því.

Það verður gaman að sjá hvernig EA og BioWare mun ganga á móti risanum sem er World of WarCraft sem hefur trónað á toppnum síðustu árin í MMO bransanum.

Kv.
GameTíví

David Hasselhoff kynnir Burnout Crash

Þegar David Hasselhoff birtist á skjáinn í auglýsingum kemur hann manni ávallt í gott skap, eða næstum því alltaf.

Nú á dögum fór af stað lítil auglýsingarherferð við tilkomu Burnout Crash og var Hasselhoff fenginn í að leika aðalhlutverkið í einni af auglýsingum þeirra.

En eins og flestir vita að þegar Hasselhoff kemst í gírinn fá engin orð honum lýst, líkt og myndbandið hér fyrir neðan gefur greinilega til kynna.

Hvað segir þetta ykkur, á að skella sér á Burnout Crash?

Kv.
GameTíví

Skífan heldur FIFA 12 mót

FIFA mót Skífunnar verður haldið þann 28.sept kl. 15.00 í verslun Skífunnar Kringlunni í tilefni af útgáfu Fifa 12.

Allir sem kaupa leikinn í forsölu geta skráð sig á mótið en skráningu lýkur kl. 12.00 þann 28.sept. Keppnin verður útsláttarkeppni þar sem spilað er við 4 stöðvar. Hver leikur er 8 mín.

Fifa 12 verður síðan afhentur kl. 21.00.

Steindinn okkar og Friðrik Dór munu starta mótinu kl. 15.00.

100 fyrstu sem kaupa leikinn í forsölu fá einnig Bíómiða á myndina What‘s your number, Gjafabréf á Dominos og viðbót frá FIFA. Leikurinn kostar 11.499 í Skífunni og er hægt að forpanta leikinn á heimasíðu þeirra.

Dominos sér síðan um að fæða spilara og aðra gesti.

Kv.
GameTíví

Heimild: Skífan og Fótbolti.net

Crytek í Bretlandi mun búa til Homefront 2

Fyrir nokkrum mánuðum gáfu THQ og Kaos Studios út skotleikinn Homefront á PC/PS3/Xbox 360. Leikurinn sagði sögu aðeins öðruvísi heims í framtíðinni þar sem að Norður Kórea sameinaðist grönnum sínum í suðri og fór á hernaðarbrölt sem endaði með innrás í Bandaríkin.

Leikurinn sagði forvitnilega en frekar stuttu sögu og var með fínasta fjölspilunar part að auki. Því miður gengu vonir THQ ekki eftir með sölu leiksins. Þeir höfðu hugsað sér að leikurinn myndi berjast inní þann erfiða markað þar sem að Call of Duty serían trónir á toppnum eins og er.

Stuttu eftir útgáfu leiksins var Kaos fyrirtækinu lokað og það leit út fyrir að aðrir hlutar THQ myndu taka við keflinu og hanna næsta leik. Eitthvað hefur THQ snúist hugur og hafa þeir núna staðfest að Crytek í Bretlandi sem var áður Free Radical munu hanna Homefront 2. Fyrirtækið hafði  áður fyrir kaup Crytek á þeim verið þekktastir fyrir Time Splitters leikina þeirra.

Það hljómar ekki ílla að okkar mati að fá aðeins lengri Homefront leik keyrandi á hinni mjög flottu CryEngine 3 grafíkvél Crytek með gott fjármagn á bakvið sig og skemmtilega fjölspilun.

Kv.
GameTíví

 

DCU verður frír frá og með Október

Er eitthvað betra en að spila skemmtilegan tölvuleik? Hvað með að spila hann algerlega frítt á PlayStation 3 eða PC? Því þeir sem hafa gaman að því að spila hlutverkaleiki á netinu en tíma ekki að borga föstu áskriftargjöldin sem fylgja oft þeim leikjum eiga von á góðu.

DC. Universe Online mun bætast við í hópinn af leikjum sem hafa færst sig úr því að rukka áskriftargjöld yfir í frían grunnleik með sölukerfi sem byggir á því að selja ýmsar viðbætur fyrir leikinn ásamt því að vera með áskriftarmöguleika með ýmsum bónusum fyrir þá sem vilja.

DC Universe Online verður fljótlega fáanlegur til niðurhals í PlayStation Store fyrir PlayStation 3 og á netinu á PC og mun ekkert áskriftargjald vera fyrir leikinn framvegis. Það þýðir að eina sem leikmenn þurfa að gera er að niðurhala leiknum, við vörum við að hann er mjög stór um 15Gb+ og þarf að vera með auka pláss laust á harða disk PlayStation 3 vélarinnar til að setja hann upp í fyrsta sinn og síðan nóg pláss á PC vélinni sem ætti að vera talsvert minna mál.

  • Free Access – Just like it sounds. Download and play the game for free. You also get all ongoing game updates (except DLC packs).
  • Premium Access – This next level of access opens up to you if you spend at least $5 in the in-game store. Premium Access grants you additional benefits that improve your experience in the game, such as more inventory slots, more character slots, bank slots and more free Vault tickets. So all you have to do is pick up some cool items in the store or buy a DLC pack and you unlock Premium Access. The best part? Once you unlock Premium Access you keep it for the life of your account.
  • Legendary Access – With Legendary Access you can unlock the maximum level of features and benefits. To unlock Legendary Access you can pay for a $14.99 per month game pass, or save big with a discounted multi-month pass. Lifetime members are automatically granted Legendary access. Legendary Access also includes all DLC packs at no extra charge.

Núverandi áskrifendur munu sjálfkrafa fá Legendary stöðu fyrir þann tíma sem þeir eiga eftir, eftir á er hægt að borga fyrir áframhaldandi stöðu eða færa sig niður í eitthvað sem hentar betur. Þeir sem hafa verslað leikinn útúr búð eða frá PSN munu sjálfkrafa fá Premium aðgang að leiknum.

Þeir sem borguðu fyrir lífstíðar áskriftina eiga að halda Legendary aðgangi jafnlengi og aðgangurinn er virkur. Örugglega nokkrir svekktir þarna þó að hafa borgað um 200$ fyrir það.

Hægt er að smella sér á vefsíðu leiksins fyrir nánari upplýsingar um hvernig breytingin á leiknum virkar ásamt FAQ skjal sem ætti að svara flestum spurningum sem leikmenn hafa.

Svo það er um að gera að undirbúa sig að mæta í heim DC Comics þar sem að Batman, Superman, Lex Luthor, Joker og aðrar súperhetjur og óþokkar búa þegar breyting DCU fer í gangið í Október.

Kv.
GameTíví

Heimild: PlayStation Bloggið