- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for August, 2011

Page 2 of 3

The Legend of Zelda: Skyward Sword fellur af skýjum ofan þann 18. nóvember

Hinn langþráði Zelda leikur, Skyward Sword sem hefur verið í bígerð síðan að Nintendo Wii kom fyrst út árið 2007 en fer loks að detta inn á leikjatölvuna. Nintendo staðfestu í gær að leikurinn verður fáanlegur í Evrópu þann 18. nóvember næstkomandi þannig að Zelda aðdáendur geta bætt við enn einum stórviðburði á dagatalið sitt.

Skyward Sword er jafnframt fyrsti Zelda leikurinn sem hefur verið hannaður með Wii fjarstýringuna í huga frá upphafi Wii leikjavélarinnar. Einnig er gaman að segja frá því að saga leiksins gerist á undan öllum öðrum Zelda leikjum svo það verður fróðlegt að sjá við hvað verkefni Link þarf að kljást í þessu spennandi ævintýri.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Indie sumar uppreisnin nálgast

Xbox Live Indie Games Summer Uprising áætlunin hefur verið gefin út og það er úr nægu að velja af heitum sumar Indie titlum til að spila á Xbox 360.

  • Monday, August 22: Raventhrone
  • Tuesday, August 23: Battle High: San Bruno
  • Wednesday, August 24: Cute Things Dying Violently
  • Thursday, August 25: T.E.C. 3001
  • Friday, August 26: Doom and Destiny
  • Monday, August 29: Take Arms
  • Tuesday, August 30: SpeedRunner HD
  • Wednesday, August 31: Train Frontier Express
  • Thursday, September 1: Fan Vote #1
  • Friday, September 2: Fan Vote #2

Hægt er að skoða meira á Facebook síðu IGSU og hafa aðdáendur verið að kjósa um nokkra titla sem fá síðustu 2 dagana.

Fyrir þá sem vita ekki hvað Indie titlar eru, þá eru það litlir og oft metnaðarfullir leikir gerðir oft af 1-2 gaurum/dömum heima hjá sér og kóðaðir í XNA forritunar tungumáli Microsoft og gefnir út á Xbox Live Arcade þjónustunni fyrir Xbox 360 fyrir lítinn aur.

Microsoft hefur verið að auka athyglina á þessari þjónustunni þeirra á sama hátt og þeir hafa gert með Summer of Arcade síðustu árin.

Kv.
GameTíví

Twisted Metal seinkar

Bíla hasar leikurinn Twisted Metal hefur fengið seinkun frá áætluðum útgáfudegi sínum í Október yfir í einhver tíman snemma 2012, David Jaffe einn af stofnendum Eat Sleep Play hefur staðfest þetta.

Sony hefur ákveðið að gefa þeim lengri tíma til að fínpússa leikinn til að hann verði fullkominn að þeirra mati.

“There’s a great, classic industry saying by legendary Nintendo designer – and personal hero – Shigeru Miyamoto,” Jaffe added, “that goes a little something like this: ‘A late game is only late until it ships. A bad game is bad until the end of time.’

“Ef að við myndum gefa út Twisted Metal á morgun – miðað við álit fólks sem hefur spilað hann núna – Þá lofa ég þér að hann yrði aldrei slæmur leikur. Ekki einu sinni nærri. En við erum að stefna á meira!

“Með Twisted Metal stefnum við á að fjölspilunar klassík. Planið er að gefa út besta Twisted Metal leik fyrr og síaðar. Áætlun okkar er að ná til fólks sem telur að bíla hasar leikir eru best geymdir á síðasta áratug. Við stefnum eimmit á að breyta þeirra hugmynd að eini góði skotleikurinn er fyrstu persónu skotleikur.”

Jaffe of félagar vilja vera öruggir að skila af sér sem bestum leik og er þessi seinkun hluti af því. Vonum að það skili sér sem best fyrir þá.

Kv.
GameT’íví

Football Manager 2012 mætir fyrir jólin

SEGA og Sports Interactive hafa kynnt næsta skammtinn fyrir fótboltafíklanna í formi Football Manager 2012 sem mun leyfa þeim að taka við hvaða klúbbi sem er í yfir 50 löndum um allan heiminn og í öllum stærstu deildunum í Evrópu.

Þú ert stjórinn, það þýðir að ef að þér líkar er stjörnustælar t.d Balotelli hjá Man City þá smellirðu honum bara á bekkinn, þú stjórnar taktíkinni, ræðir við liðið fyrir leikinn og í hálfleik til að peppa þá upp eða smella “hárþurkunni” hans Fergusons á þá ef að þeir eru að klikka ílla, skiptir leikmönnum inná og öskrar á þá á hliðarlínunni á meðan þú fylgist með öllu gerast í 3D vél leiksins.

Helstu breytingarnar á leiknum eru það þer búið að bæta við “Loyalty” bónus sem hluta af samningum og kaupum leikmanna, eitthvað sem er algengt í dag og snýst um að leikmenn eru hliðhollir klúbb og biðji ekki um sölu og fyrir vikið fá bónus ef þeir eru síðan seldir. Áhugamanna og æsku samningarnir hafa verið lagaðir til, þú getur núna fest vissa parta samnings sem þú ert ekki tilbúin að bakka með þegar er samið við leikmann.

Njósnarar liðanna færa núna nákvæmari skýrslur um andsæðingana og veileika þeirra til að tryggja að þú ert sem best undirbúin áður en að leikurinn hefst.

3D grafíkvélin sem sýnir leikinn hefur verið bætt með nýjum hreyfingum, “glænýju áhorfenda kerfi”, betra veðurkerfi, nýjir vellir, tvenn ný myndavéla sjónarhorn: Behind Gaol og Director Cam.

Football Manager 2012 mun núna leyfa þér að bæta við eða taka í burtu þjóðir í leiknum hvenær sem þú villt ef að þú ákveður að þér vantar fleiri þjóðir til að spila og leita af leikmönnum frá eða ekki.

Núna verður hægt að stjórna tóninum sem samtalið á milli þín og leikmannana er, sem er gott ef að þú villt vera afslappaður eða hreinlega öskra á þá.

Football Manager 2012 mun koma með nýjan kennslu flokk sem er sérstaklega fyrir leikmenn sem hafa ekki spilað fyrri leiki og ætti að hjálpa þeim að ná tökum á FM2012.

Það er nýtt viðmótar kerfi sem lagar sig að tölvuskjám með háa upplausn og mun þá sýna meira efni. Það eru nýjir filterar, sérsníðanlegar blokkir, taktík og yfirlits skjár að auki og má sjá hérna fyrir ofan.

SEGA og SI hafa síðan sagt að það eru “stórar breytingar” í ár um 800 sem eiga við fjölmiðla kerfið, blaðamanna fundum, unglinga kerfinu, newgen (leikmönnum sem koma í stað þeirra sem hætta og talvan býr til), social networking eins og Twitter og Youtube ofl, vináttuleikir, að stjórna landsliðum og fleiri hlutum leiksins sem verða kynntir nánar á næstu vikum og mánuðum þegar að nær dregur útgáfu leiksins.

fyrsta sýnishornið úr endurbættu match engine leiksins

Fótbolta unnendur munu fá nýja “afsökun” til að mæta ósofnir í vinnuna/skólann næsta vetur og dreyma um hagstæð bikarúrslit eða að finna 15 ára gimstein sem verður af næsta súperstjörnu leiksins.

Kv.
GameTíví

id Software stefnir í að gefa út Doom 3 kóðann frítt

á QuakeCon sýningunni staðfesti John Carmack aftur að hann ætli sér að gefa út forritunar kóðann fyrir DOOM 3 skotleik id Software eftir að þeir gefa út RAGE leikinn sinn í haust.

Í Apríl sagði Tim WillitsJohn Carmack aðalsprauta id Software væri að vonast eftir að gefa út forritunar kóðan fyrir Doom 3 skotleik þeirra sem kom út árið 2004 á PC. Opnir kóðar eins og þessir, eru notaðir af áhugamönnum um forritun og leiki til að kóða þeirra eigin leik á grafíkvélinni ásamt mods fyrir leikinn ofl. Til að notast við kóðann þarf að eiga löglegt eintak af leiknum fyrir.

Hugmyndar stefna Carmacks hefur alltaf verið að halda tengsl við leikjasamfélagið sem spilar leikina þeirra. Áður hefur hann gefið út kóðana fyrir Wolfenstein 3D, Doom, Quake, Quake 2 og Quake 3. Móður fyrirtækið Zenimax hefur gefið sitt leyfi fyrir að kóðinn verði gefin út frítt á netinu. Carmack ræddi þetta aftur um helgina á QuakeCon og sagði að það þyrfti að fínpússa þetta og fara í gegnum lagalegu málin eftir að RAGE kemur út í byrjun Október.

Kv.
GameTíví

Valve kynnir Counter-Strike: Global Offensive

Valve hefur  staðfest að þeir eru að vinna að nýjum CS sem mun kallast Counter-Strike: Global Offensive og er hann unnin í samvinni við Hidden Path Entertainment. CS: GO er nýr Counter-Strike titill sem er planaður fyrir útgáfu snemma á næsta ári á Steam á PC/Mac, PlayStation Network og Xbox Live Arcade.

Hérna fyrir neðan er fréttatilkynningin frá Valve:

Valve, creators of best-selling game franchises (such as Counter-Strike, Half-Life, Left 4 Dead, Portal, and Team Fortress) and leading technologies (such as Steam and Source), today announced Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO).

Targeted for release via Playstation Network, Xbox Live Arcade, and Steam (for PC and Mac) in early 2012, CS: GO will expand upon the team-based action gameplay that it pioneered when it was launched exactly 12 years ago (CS beta 1, August 1999).

CS: GO features new maps, characters, and weapons and delivers updated versions of the classic CS content (de_dust, etc.). In addition, CS: GO will introduce new gameplay modes, matchmaking, leader boards, and more.

“Counter-Strike took the gaming industry by surprise when the unlikely MOD became the most played online PC action game in the world almost immediately after its release in August 1999,” said Doug Lombardi at Valve. “For the past 12 years, it has continued to be one of the most-played games in the world, headline competitive gaming tournaments and selling over 25 million units worldwide across the franchise. CS: GO promises to expand on CS’ award-winning gameplay and deliver it to gamers on the PC as well as the next gen consoles and the Mac.”

Leikurinn verður sýndur í spilanlegu formi á PAX Prime og Eurogamer Expo, líklegt er að leikurinn átti að verða kynntur í næstu viku á Gamescom sýningunni í Þýskalandi en eftir að fréttirnar láku út þá brást Valve snöggt við og sendi út opinberar fréttir af leiknum. Valve verður eimmit með Dota 2 leikinn þeirra í Köln í næstu viku.

Núna ef þeir gætu bara loksins farið að láta okkur fá Half-Life 2: Episode 3/Half-Life 3 þá yrðum við loksins sáttir :)

Kv.
GameTíví

The Witcher 2 fyrir Xbox 360 seinkar til 2012

Í smá svekkelsis fréttum þá hefur CD Project RED fyrirtækið tilkynnt að Xbox 360 útgáfa þeir af RPG leiknum The Witcher 2 muni ekki koma út í lok ársins eins og stefnt hafði verið að.

Leikurinn kom út í Maí á PC og hefur fengið frábæra dóma ásamt því að seljast mjög vel og verið góður hvalreki fyrir aðdáendur stórra og epískra RPG leikja.

Í stað þess að stefna á útgáfu í Nóvember á þessu ári, en núna stefnt á útgáfu á fyrsta ársfjórðungi 2012 sem þýðir Jan-Mars.

CD Project RED vonast eftir til að nýta tímann til að gera Xbox 360 útgáfuna enn betri, þeir hafa sagt það þetta verði ekki port heldur útgáfa hönnuð til að sýna styrk leikjavélarinnar.

“Auka tíminn mun gefa okkur tíma til að fínpússa leikinn til fullkomunnar, svo að leikurinn bjóði fullkomnlega jafna og frábæra reynslu fyrir alla leikmenn,” sagði Adam Kicinski forstjóri stúdíósins í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Það er spurning líka hvort að þessi töf hafi eitthvað líka að segja við lagaflækjurnar frá Namco Bandai eftir að CD Project RED ákvað að vinna með THQ að útgáfu leiksins á Xbox 360 í Evrópu í stað þeirra.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb

Síðasti DLC pakkinn fyrir Fallout: New Vegas seinkar

Síðan að Old World Blues DLC pakkinn fyrir Fallout: New Vegas kom út hefur eftirvæntingin fyrir þeim síðasta, Lonesome Road verið mikil. Í honum mun saga aðalpersónu leiksins ljúka þegar hann hittir forvera sinn sem kom honum í öll vandræðin.

Jason Bergman skrifaði á spjallborðinu:

“Við viljum bara droppa hérna inn og leyfa ykkur að vita útaf aðstæðum sem við ráðum ekki viðmun Lonesome Road ekki koma út í þessum mánuði eins og var planað. Það er ekki útaf neinum vanda við kóðann leiksins eða efnið, heldur aðrið hlutir tengdir útgáfunni og mun sjá til þess að útgáfan tefst.

Við erum ekki með fastan dag í staðin, heldur er stefnan að gefa þetta eins fljótt út og mögulegt er. Við munum tilkynna nýjan dag eins fljótt og mögulegt er ásamt nýjun Fallout: New Vegas fréttum í nánari framtíð.”

Hérna fyrir ofan er fyrsta myndin út Lonesome Road aukapakkanum, sem vonandi verður biðarinnar virði. Old World Blues var frábær að okkar mati og meinfyndinn og bíðum við spenntir að sjá hvernig þessi kemur út.

Kv.
GameTíví

Sony gefur út firmware 3.70 fyrir PS3

Sony hefur gefið út nýtt firmware 3.70 fyrir stýrikerfi PlayStation 3 leikjavélina sem bætir við talsverðum viðbætum fyrir PlayStation+ áskrifendur, lagfæringar á PlayStation Store og smá lagfæringu á XMB viðmótinu sjálfu. Eigendur 3D sjónvarpa fá nokkra glaðninga að auki

Hægt er að lesa nánar um það ef að smella er á more takkan hérna fyrir neðan.

Kv.
GameTíví

Continue reading ‘Sony gefur út firmware 3.70 fyrir PS3′

Ubisoft gefur út demó fyrir Driver: San Francisco í dag

Ubisoft gefur út prufuútgáfu fyrir leikinn Driver: San Francisoco í dag fyrir Xbox 360 og PlayStation 3.

Prufuútgáfan er úr sögu parti leiksins og inniheldur þrjú verkefni. Það fyrsta er Team Colours sem notast við möguleikann að hoppa úr líkamanum og fara í annan bílstjóra til hoppa hærra í keppninni.

Það seinna, Escapist krefst þess að þú sleppir undan lögreglunni með VIP farþega um borð.

Þriðja og loka verkefnið, Prove It er með alls konar þrautir og trix til að reyna í miðjun lögreglu eltingarleik.

Síðustu Driver leikir voru ekki alveg það besta, sérstaklega Driv3r sem fékk mjög slaka dóma og deilur útaf óvenjulega háum dómum hjá sumum pörtum pressunnar.

Við vonum að þessi nái að hysa upp buxurnar á seríunni þegar að hann kemur út þann 2. September fyrir PC/PS3/Wii/Xbox 360.

Kv.
GameTíví