
E3 kynningu Ubisoft fyrirtækisins lauk fyrir stuttu. Eftir mjög sýrða kynningu í fyrra sem var meira um nærri allt nema leikina í fyrra. Þeir sneru tilbaka þetta árið og fókusaði á það sem skipti mál og það eru gæða leikir.
Fyrstur á sviðið er leikurinn Rayman Origins og virðist ætla að verða skemmtilegur hopp og skopp leikur. Það verða nýjar persónur og borð sem hafa ekki sést áður. Kemur út næsta vetur á 3DS/Wii/Xbox360/PS3.
Driver San Fransico mun færa leikmönnum nýju fjölspilun og sögu sem ætti að halda leikmönnum vel upteknum tímunum saman. Þetta á að verða endur risa seríunnar eftir slaka 2 leiki áður.
FarCry 3 mætti á svæðið með mjög flott sýnishorn og snýr leikurinn aftur til grænna frumskógareyja. Sagan virðist vera mjög dökk og er áherslan lögð á að lifa af. Kemur 2012.
Randy Pitchford frá Gearbox Software mætti á sviðið og bjuggust margir við að hann myndi kynna framhaldið að Brothers In Arms: Hell’s Highway. Fólkið fékk svona hálfpartinn það, leikurinn sem hann kynnti var Brothers in Arms: Furious 4 sem verður pínu geggjaður seinni heimsstyrjaldar leikur í anda Inglorious Basterds myndar Quentin Tarantino. Leikurinn segir sögu fjögurra hermanna í Þýskalandi umkringda af Nasistum. Leikurinn á að koma á næsta ári.
Tom Clancy’s Ghost Recon: Future Soldier skotleikurinn var sýndur og hefur hann gengið í gegnum talsverða breytingu frá E3 í fyrra. 4 manna Co-Op spilun með taktísku ívafi. Ubisoft kynnti einnig Ghost Recon Online sem er frír netleikur á PC sem á að fara í loftið á næstunni og er hægt að skrá sig í Betuna núna.
Það er nýr kanínu leikur í vinslu fyrir Kinect hreyfitækni Xbox 360. Leikurinn heitir Raving Rabbids Alive & Kicking og inniheldur ótal mini leiki. Leikurinn styður Facebook stuðning og er hægt að senda myndir úr Kinect vélinni og deila með vinum.
Just Dance 3 var kynntur og mun halda æðinu áfram á Wii/PS3 og Xbox 360.
Rocksmith tónlistar leikurinn var sýndur og mun kenna fólki á að spila á gítar með því að stinga raunverulegum gítar í PS3 eða Xbox 360 til að læra að spila eins og gítarhetjan ykkar.
Your Shape: Fitness Evolved kemur í Nóvember með nýjum æfingum, þjálfunum sem eru sniðan að þörfum hvers og eins og góðar leiðir til að tengjast vinum þeirra og bera saman.
Það var síðan sýnd myndbrot úr TinTin (Tinna) leiknum sem leit virkilega vel út og síðan TrackMania 2 Canyon bílaleiknum.
Ubisoft endaði þetta síðan á Assassin’s Creed: Revalations, fyrst var sýndur CGI trailer sem var meiriháttar og má finna á Facebook síðunni okkar. Eftir það var sýnd spilun úr leiknum. Leikurinn virðist ætla að halda áfram að bæta seríuna með hverjum leik og mun líklega enda sögu Ezio með stæl og sýna hann á slóðum Altair einni af sögupersónu fyrsta leiksins.
Að mestu stóðu Ubisoft sig frekar vel og bættu upp fyrir ruglið sem var á kynningunni í fyrra, þrátt fyrir það var nokkur sérviska í gangi en það á ekki að koma á óvart þar sem að Ubisoft er Franskt fyrirtæki.
Kv.
GameTíví



Get ekki beðið eftir Assassin’s Creed Revalations!
Nóvember 2011 verður góður mánuður!
Assasins og FarCry 3 heilluðu mig mest.