- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


E3 Kynning Sony

Sony steig síðast á sviðið í kvöld og endaði fyrsta daginn á E3 þó að opinberlega telst hann ekki byrja fyrr en á morgun. Það er búið að bíða mikið eftir þessari kynningu, sérstaklega í tilefni alls þess sem hefur gengið á undan.

Jack Trenton mætti á sviðið og byrjaði að ræða niður tíma PlayStation Network og hve þakklátir þeir væru fyrir allan stuðninginn.

Evan Wells og Christophe Balestra frá Naughty Dog komu á sviðið og sýndu Uncharted 3: Drake’s Deception sem leit rosalega vel út. Það var staðfest að það yrði full fjölspiluna prufa en ekki takmörkuð Beta. Leikurinn kemur síðan 1.11.2011.

Næstu á sviðið var Markus Smith frá Insomniac Games og sýndi hann Resistance 3 skotleikinn sem kemur út í byrjun September.

Sony sýndi God of War PSP leikina sem fá HD uppfærslu á PS3. ICO og Shadow of the Colossus kemur í September og verður í HD fíling ásamt að styðja 3D.

NBA 2K12 var kynntur og Kobe Bryant frá Los Angeles Lakers var á sviðinu til að spila leikinn.

Medieval Moves: Deadmund’s Quest var sýndur og er galdra þemaður Move leikur í honum er hægt að berjast með boga, sverðum og kasta stjörnum.

inFamous 2 var sýndur og er eimmit að koma í búðir í vikunni um allan heim. Uppfærsala er í vændum sem styður PlayStation Move hreyfitæknina. LittleBigPlanet 2 fær einnig Move uppfærslu í haust.

Starhawk leikur Lightbox Interactive fyrrum hönnuða Warhawk var kynntur og er hægt að segja að þessi sé hálfgerð framtíðar útgáfa þess leiks, en sem skartar raunverulegri sögu og endurbættri fjölspilun.

Sly Cooper 4: Thieves in Time kemur út 2012.

Eitt af því sem kom okkur skemmtilega á óvart var að sjá Hilmar Pétursson frá CCP fyrirtækinu koma á sviðið og staðfesta að skotleikur þeirra Dust 514 muni eingöngu koma út á PlayStation 3. Dust mun tengjast við EVE-Online netleikinn í einn stóran netleik. Einn heimur, eitt stríð. Dust 514 mun styðja PlayStation Move tæknina og tenging við nýju lófavél Sony. Heimasíða leiksins er hérna.

Bioshock Infinite sýndur og Ken Levine hönnuður leiksins mætti á sviðið. Hann var pínu vandræðalegur þegar að hann útskýrði að hann hefði ekki verið mikill stuðningsmaður Move tækninnar en eftir símtal frá Sony hafði það breyst. Leikurinn styður Move, mun fá sýna eigin útgáfa á lófavél Sony og PS3 útgáfan mun innihalda upprunalega Bioshock á Blu-Ray disknum.

Saint’s Row: The Third og nýji Star Trek leikurinn munu styðja Move. Nýji Star Trek leikurinn var sýndur í Alpha formi.

EA staðfesti að SSX muni fá fjallið Fuji eingöngu á PS3, Need for Speed: The Run inniheldur súperbíla og Battlefield 3 kemur með Battlefield 1943 á disknum.

Kazuo Hirai kom á sviðið og kynnti nýja nafn NGP lófavélarinnar og arftaka PSP. Vélin mun heita PlayStation Vita. Það eru tvær myndavélar, tveir snertiskjáir. Verður hægt að fá Wifi útgáfu á 249$ og 3G/Wifi útgáfu á 299$.

Það voru sýndir leikir fyrir Vita eins og; Uncharted: Golden Abyss. sem leit meiriháttar út, Ruin sem er RPG leikur og leyfir þér að færa árangurinn á milli Vita og PS3. Streetfighter x Tekken og mun hann innihald Cole McGrath úr inFamous.

Modnation Racers fær uppfærslu yfir á Vita og að sögn Sony er lagt talsvert í það, LittleBigPlanet fær einnig útgáfu og inniheldur mikið af hlutum úr LBP2.

Sony stóð sig bara mjög vel og á góðan möguleika að “vinna” E3 eins og er kallað. En við eigum reyndar Nintendo eftir sem eru kl. 16:00 í dag og það ætti að verða forvitnilegt að sjá.

Kv.
GameTíví

3 Responses to “E3 Kynning Sony”


Comments are currently closed.