- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


E3 Kynning Nintendo

Þá er síðustu stóru E3 kynningunni lokið og Nintendo er nýbúið að kynna sitt efni fyrir árið og það sem koma skal á næsta ári.

Það fyrsta sem við fengum var sinfoníuhljómveit sem flutti lög úr Zelda leikjum síðustu 25 ára, Shigeru Miyamoto steig á sviðið og ræddi hvernig þeir myndu fagna þessum áfanga með leikjum á vélar Nintendo yfir árið. Það verður tónleikaröð um heiminn í haust ásamt tónlist sem verður gefin út á geisladiski.

The Legend of Zelda: Link’s Awakening verður fyrsti Game Boy Color leikurinn sem kemur út fyrir 3DS eShop búðina í lok dagsins í dag. The Legend of Zelda: Four Swords kemur út á DSware í Október og verður frír. Klassíski leikurinn Excitebike fær 3D útgáfu og verður frítt niðurhald í eShop 3DS vélarinnar. The Legend of Zelda: Skyward Sword kemur út fyrir Nintendo Wii í lok ársins.

Satoru Iwata forseti Nintendo kynnti leiki sem eru á leiðinni fyrir 3DS sem eru; Mario Kart, Star Fox 3D, Super Mario Bros 3D, Kid Icarus og Luigi’s Mansion 2. Leikirnir koma út á þessu ári. Kid Icarus inniheldur 3 móti 3 fjölspilun og stuðning við “augmented reality” spilin sem 3DS getur notast við.

3rd Party leikja demó var sýnt og innihélt leiki eins og; Resident Evil. Mario & Sonic Olympics. Ace Combat 3D. Tetris Online. Cave Story 3D. Another Resident Evil. Driver Renegade. Pac-Man & Galaga. Tekken 3D. Metal Gear Solid Snake Eater 3D.

Gæti þetta orðið að nýjum The Legend of Zelda leik fyrir Wii U?

Reggie Fils-Aime steig á sviðið og staðfesti að næsta leikjavél Nintendo héti Wii U, nafnið kom mörgum talsvert á óvart sem bjuggust við nýju nafni. Nýjar fjarstýringin var sýnd og leyfir leikmönnum að færa leikinn úr sjónvarpinu þegar aðrir vilja nota það og yfir á fjarstýringuna beint til að spila. Það eru tveir analog takkar, kross,  framan verðir takkar, axlar takkar ásamt öðrum. Skjárinn er 6.2 tommur og er með snertimöguleikum, það er ekki multitouch eins og á tækjum Apple. Hægt er að nota stylus penna á skjánum.

Wii U virkar með öllum Wii motes, Wii Balance brettinu og öðrum tækjum, það er titringur, hraðamælir, míkrafónn, hátalarar. Wii U mun spila alla Wii leiki. Wii leikirnir munu þó ekki verða uppfærðir í HD eða uppskalaðir í þá upplausn. Reggie sagði í viðtali við Gametrailers að það væri útaf mismuninum á vélbúnaði í Wii U.

Spekkar: Við vitum að vélin mun nota sitt eigið háskerpudiska kerfi, styður 1080p, 1080i, 720p, 480p upplausnir, notast við HDMI ásamt Composite og Component skjátengjum, sex rása PCM linear output hljóð í gegnum HDMI. Verður með innbyggt flash minni ásamt möguleika að bæta við í gegnum SD minniskort og utanliggjandi USB harðan disk. CPU vélarinn keyrir á IBP Power byggjum örgjafa. Það eru 4 USB 2.0 raufar á vélinni.

Tæknilegt demó sem sýndi Japansk landslag með fuglum, blómum og fiskum átti að sýna tæknilega og grafíska getu vélarinnar og ef að marka má Twitter færslu Mark Rein hjá Epic þá keyrði það á Unreal 3 grafík vélinni.

Saturu Iwata staðfesti að Masahiro Sakurai er að vinna að nýjum Smash Bros leik fyrir 3DS og Wii U.

Reggie staðfesti New Super Mario Bros. Mii og LEGO City stories.

Næst var sýnt myndband af þekktum leikjahönnuðum frá öllum helstu stúdíóum og útgefundum þar sem að þeir ræddu nýju tæknina og að búa til leiki fyrir það.

Næst kom það stóra og leikir eins og Darksiders II, Dirt, Aliens: Colonial Marines, Tom Clancy’s Ghost Recon Online, Metro: Last Light, Tekken, Ninja Gaiden 3: Razor’s Edge og Batman: Arkham City munu allir koma út á nýju vélina og sýna að harðari og blóðugri leikir snúa aftur á Nintendo leikjavélina. Það var þó tekið fram eftir á að þessir leikir í vídeóinu voru tekin úr Xbox360/PS3 útgáfum leikjanna.

John Rccitiello forstjóri EA steig á sviði og ræddi um þá möguleika að færa stóru titla EA yfir á Wii U, hann staðfesti þó enga fasta leiki.

Reggie Fils-Aime mætti svo á sviðið á ný og þakkaði fólki fyrir viðbrögðin og sagði að þeir myndu kynna meira á E3 sýningunni sjálfri.

Þetta var nokkuð góð sýning hjá Nintendo og það eina sem var skrítið var að þeir voru í raun ekkert að sýna vélina heldur bara nýju fjarstýringuna, engin útgáfudagur eða verð var heldur rætt. Spurning að við þurfum að bíða til E3 2012 eftir þeim fréttum?

Kv.
GameTíví

1 Response to “E3 Kynning Nintendo”


Comments are currently closed.