- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


E3 Kynning EA

E3 kynning EA lauk fyrir stuttu og lagði áherslu á 9 leiki sem þeir munu gefa út á næstu 12 mánuðum.

Fjörið byrjaði með kynningu á Mass Effect 3 sem lookaði hrikalega vel út og lítur út fyrir að verða epískur leikur. Jörðin liggur undir árás og þurfa Sheppard og vinir hans að gera allt til að bjarga henni. Kemur út 6. Mars 2012.

Star Wars: The Old Republic var sýndur á ný og lofar mjög góðu. Eina sem olli vonbrigðum var að þeir minntust ekkert á útgáfudag á honum eða Betuna.

SSX snjótbrettaleikurinn var sýndur og lítur meiriháttar vel út. Heimurinn er unnin uppúr gögnum frá NASA geimferðastofnunni. Hægt verður að hoppa fram að klettum og opna flugbúninga. Kemur í Janúar 2012.

Need for Speed: The Run leikur Black Box og EA var sýndur og keyrir á Frostbite 2.0 grafíkvél DICE þeirri sömu og keyrir Battlefield 3. Autolog kerfið er byggt inní alla parta leiksins og leggur mikkla áherslu á sögu, sumir partar leiksins eru utan bílanna.

FIFA 12 var kynntur og lofar að halda áfram að betrumbæta bestu íþrótta seríuna á markaðnum í dag. Meðal nýjunga er; taktísk vörn, meir boltastjórnun, nýtt kerfi sem mælir áhrif leikmanna á hvern annan og býr til raunverulegri meiðsli og spilun (er búið að vera í hönnun í 2 ár), EA Sports Football Club er kynntur og er ný frí netþjónusta leiksins sem tengist við Facebook ofl.

Madden 12 var kynntur, þurfum við virkilega að ræða það eitthvað nánar?

The Sims Social er nýr Facebook leikur sem á að keppa við leiki eins og Farmville ofl.

Kingdoms of Amalur: Reckoning var sýndur. Leikurinn er nýr RPG leikur frá 38 Studios og skartar yfir 100 tímum í spilun og gerist í opnum heimi. Er hannaður af Ken Rolston einum af yfirhönnuðum The Elder Scrolls IV: Oblivion, R.A. Salvatore rithöfundi og síðan Todd Todd Mcfarlane hönnuði Spawn teikniblaða seríunnar. Kemur á PS3/Xbox 360 á næsta ári.

Insomniac Studios sem eru þekktastir fyrir Resistance og Rachet & Clank leiki þeirra fyrir PlayStation leikjavélarnar mættu á sviðið og kynntu Overstrike sem er þeirra fyrsti leikur fyrir Xbox 360 og PS3. Leikurinn er skemmtilegur og æsifenginn leikur þar sem að litrík og flott vopn og tæki koma við sögu í skemmtilegum leik.

EA endaði þetta á risaleiknum Battlefield 3 sem leit meiriháttar vel út og sýnir virkilega hvað Frostbite 2 grafíkvél DICE getur gert.

Everything in the environments can be destroyed
Huge landscapes with a massive draw distance
Amazing audio from real weapons, explosions and more
Multiplatform open Beta in September
PC gameplay demo of Tehran desert shown

  • Graphics and scale of the battlefield is lifelike and amazing
  • Massive tanks on tanks firefight
  • smoke and explosions fill the screen
  • Fighter jets and bombers fly over head

October 25th release date.

Það verður frítt tölfræðikerfi ekki ólíkt Call of Duty Elite kerfi Activision, en verður algerlega frítt.

Það verður að segjast að kynning EA var bara þrusugóð og eini vankanntur hennar var að það vantaði algerlega dagsetningu fyrir Star Wars: The Old Republic MMO netleik EA og BIoware.

Kv.
GameTíví

3 Responses to “E3 Kynning EA”


Comments are currently closed.