- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Sony í Evrópu útlistar “Welcome Back” glaðningum

Glaðningarnir sem Sony minntist á að yrðu í formi “Welcome Back” verkefnisins sem var hluti af endurreisn PSN netkerfisins eru komnir í ljós og náðu að leka út stuttu áður en að Sony gat staðfest þá.

PSN notendur munu fá uppí fjóra fría tölvuleiki fyrir PS3 og PSP af völdum lista. PlayStation Network notendur munu geta nýtt sér tilboðið strax og PlayStation Store búðin fer í loftið á ný. Sem að sögn Sony er “eftir smá tíma í viðbót”.

Tilboðin eru bara í boði í þeim löndum sem eru með PSN búð í landinu fyrir.

Það sem er í boði í Evrópu og Bandaríkjunum er næstum því það sama með litlum mun, vinir okkar Þjóðverjar fá aðeins öðru vísi pakka útaf stífari reglum þar.

Hérna er það sem er í boði. Það verður hægt að velja tvo PlayStation 3 leiki af þessum lista:

  • LittleBigPlanet
  • Infamous
  • Wipeout HD/Fury
  • Ratchet and Clank: Quest for Booty (Bara í Evrópu)
  • Dead Nation
  • Super Stardust HD (Aðeins í Norður Ameríku/Þýskalandi)

Og síðan tvo PSP leiki af þessum lista:

  • LittleBigPlanet PSP
  • ModNation Racers PSP
  • Pursuit Force
  • Killzone Liberation

Þjóðverjar fá ekki Dead Nation og inFamous og fá í staðinn Super Stardust HD og Hustle Kings á PS3 og Everybody’s Golf 2 og Buzz Junior Jungle Party í stað  Pursuit Force og Killzone Liberation á PSP.

PSN notendur fá að auki síðan 30 fría daga af PlayStation Plus þjónustunni og fyrir þá sem eru nú þegar áskrifendur frá 60 fría daga að auki við þann áskriftartíma sem þeir eiga eftir.

Í Bandaríkjunum verður síðan aðgangur af fríum kvikmyndum til leigu yfir eina helgi þar sem að Video Store er í boði.

PlayStation Home notendur munu frá 100 fría hluti ásamt leik bara fyrir þá sem eru í Bandaríkjunum “Ooblag’s Alien Casino.”

Það er aldrei leiðinlegt að fá fría tölvuleiki og fyrir þá sem eiga ekki þessa leiki þá eigið þið von á góðu. Ti að geta nýtt sér þetta tilboð þarf að vera með PSN aðgang sem var stofnaður fyrir 20. Apríl, þetta mun ekki virka fyrir Íslenska aðganga þar sem að við höfum aldrei verið með PSN Store því miður.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

20 Responses to “Sony í Evrópu útlistar “Welcome Back” glaðningum”


  • Mun þetta ekki virka fyrir Íslendinga? Af hverju ekki, erum við ekki gjaldgengir í bresku búðina?

  • útaf icesave

  • What, það er nú bara asnalegt ef að við fáum ekki neitt út úr þessu máli!

  • sjitt hvað sony geta verið miklir douchebags

  • haha eruði turdz, skráið bara UK á sub account, þannig versla eg allaveganna við PSN

  • eg fae leiki thvi eg bjo i bretlandi yay!

  • Spurning hvort að þetta virki ekki ef maður er með UK eða USA Account.

    Testa það þegar maður kemst í PS3 tölvuna seinna í dag. Er með bæði USA og UK account

  • Damn.. Ég á inFamous…

  • The Postal Dude

    Hvað er þetta lengi, PS3 tölvan fékk Yellow light of death :(

  • en hvað ef að maður er með breskan account kemst maður þá inná

  • er PSN búðin ekki komin alveg í gang eða? ég á PSP tölvu, og ef ég tengi hana við Pc-tölvuna, fer í media go og svo playstation store kemur bara “an error occurred during communication with the server”

  • chilliða allir geta fengið þetta geriði bara nýjan user og account geriði region breskt eða amerískt og þig komist í búðina

  • Nkl það er ekki erfitt, ég á amerískan og breskan account. Og get verslað eins og ég vill

  • ah fkn bömmer madur eg gerði mér upp alltof miklar væntingar :(

  • NEEEEEEIIII ÉG Á INFAMOUS OG PHO!!!

  • LBP* FKN AUTO CORRECTION

  • Þið sem eruð að minnast að þið eigið leiki sem eru á listanum, þá virðist eins og þið hafið ekki lesið þetta alveg.

    Það stendur:
    “Það verður hægt að velja tvo PlayStation 3 leiki af þessum lista:”

    Takið eftir, TVO leiki. Þannig að ef þið eigið einhverja leiki á listanum, þá veljið þið ykkur bara aðra :-)

  • Svavar er bestur

    Jibbí! Er með breskan user.

    Verð að muna að senda þeim blóm á eftir…..

  • Ásgeir í Eyjum

    Mitt val er:
    PS3 = Infamous og Ratchet & Clank-quest for Booty
    PSP = Modnation Racers og LBP
    en ég mæli með Pursuit Force, hann er mjög nettur.

Comments are currently closed.