- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


PSN komið í gang eftir 25 daga niðurtíma

Uppfært: Sony hefur gefið út upplýsingar fyrir þá sem hafa gleymt upplýsingunum þeirra eða skráðu viljandi rangar upplýsingar. Vefsíðan er hérna og það er meira að segja Íslenskt númer til að bjalla í sem er hjá Senu umboðsaðila PlayStation á Íslandi.

Upprunalega frétt:Eftir óneitanlega erfiðan tíma fyrir marga PlayStation eigendur er PSN þjónustan loksins komin í loftið eftir 25 daga niðutíma eftir árás hakkara á netkerfi Sony sem varð til að það var tekið niður á meðan innbrotið var rannsakað og öryggi kerfisins stórbætt.

Leikmenn geta núna spilað á netinu, séð vinalistann sinn og sent skilaboð sýn á milli og uppfært Trophy listann sinn og borið saman við aðra. Hlutir eins og PSN Store er ekki komin upp eins og er.

PSN kerfið í Japan er ekki komið upp, og það er ekki föst tímasetning á það. Ástæður fyrir töfinni þar er að Japanska ríkið er með strangar reglur um hvað Sony þarf að gera til að tryggja netöryggið þar og telur að þeir eru ekki búnir að því til fullu.

Þeir sem eru ekki búnir að ræsa upp PS3 vélina sýna í smá tíma er þetta til tölulega auðvellt ferli sem þarf að gera og við smellum því upp hérna. Ef að þið lendið í einhverjum vanda þér að gefast ekki upp strax, álagið er mjög mikið og gæti þetta tekið smá í versta falli.

Fyrst þarf að sækja og setja upp PlayStation 3 firmware 3.61, allir PlayStation Network notendur verða að sækja hana til að geta notað PSN framvegis. Það er nauðsynlegt að breyta leyniorðinu á öllum PSN aðgöngum vélarinnar og er ekki hægt að sleppa þessu skrefi.

Það þarf að skrá sig inn með því netfangi og leyniorði sem upprunalega var á vélinni, og ætti það að vera auðvellt fyrir flesta sem hafa hakað við þann möguleika að láta PS3 vélina muna þær upplýsingar. Það er nauðsynlegt að vera með aðgang af því netfangi sem upprunalega var notað til að skrá sig fyrir PSN í byrjun. Því að fyrir suma þurfa þeir að smella á tengil í þeim tölvupósti á PC/Mac og uppfæra upplýsingar sýnar þarna í gegnum netið.

Eftir að er reynt að skrá sig umm mun poppa upp gluggi sem biður þig að breyta um leyniorð, það er smellt á OK og skráð inn nýtt leyniorð tvisvar sinnum. Við mælum með að nota stóra og litla stafi ásamt 1-2 tölustöfum að auki til að vera með gott og öruggt leyniorð. Gott er að passa sig þó að vera með leyniorð sem þið getið munað aftur, og ef til þess þarf skrá það niður á lítið blað eða annar staðar til vonar og vara ef að þið gleymið því :)

Eftir að þetta er búið er hægt að skrá sig inn á ný á PSN og byrja að spila og spjalla við vinina. A.T.H. er að það er slökkt á að þið skráist sjálfkrafa inn útaf því sem gerðist áður og ef að þið viljið að vélið skrái sig sjálkrafa inn þarf að haka við þann valmöguleika.

Þá ættuð þið að vera komin inná PSN á nýju og tilbúinn í slagið, Sony hefur lofað á næstu dögum verði útlistað “Welcome Back” glaðninga prógrami þeirra og síðan rætt um hvenær PSN búðin kemst í loftið á ný.

Við vorum snöggir að ræsa upp Portal 2 og tengja saman Steam og PSN aðganga okkar og erum spenntir að stökkva inní Co-Op spilun leiksins.

Hvað er það fyrsta sem þið munið gera eftir 25 daga án PSN kerfisins?

Kv.
GameTíví

21 Responses to “PSN komið í gang eftir 25 daga niðurtíma”


  • kemst ekki inná psn með íslenska accountinum mínum

  • Gætir þurf að fá tölvupóst til að virkja hann á ný.

  • Black Ops Zombies f****** EPIC!!!

  • Þið megið endilega adda mér á PSN :)

  • Kemst ekki inná með íslenska accountinum mínum. Ég fæ póst og fer inná linkinn sem er í póstinum en þá kemur einhver villa sem segir að þetta sé ekki í mínu landi eða eitthvað kjaftæði, búinn að reyna nokkrum sinnum og það kemur alltaf það sama.

  • Hringdu í 591- 5100, ég fékk hjálp þar

  • Varst þú með sama vandamál eða?

  • ég fæ ekki postin til að breyta lykilorðinu (accoundin er skráður á ísland ef það skiptir einhverju) en ég kemst inná gegnum annan accound hvað get ég gert þar sem ég fæ engan póst :(

  • hvað ef maður er ekki með gamala netfangið og man ekki hvað lykilorðið var ?

  • davitos

    eg gerði tad sama eg skradi accountinn minn a island og eg get ekki breytt. eg fekk emailið en tegar eg er buinn ad skrifa nyja passwordid 2 sinnum tarna ta kemur PSN is not available in your country.
    veit eitthver hvad a ad gera ??

  • @davitos

    eg gerði tad sama eg skradi accountinn minn a island og eg get ekki breytt. eg fekk emailið en tegar eg er buinn ad skrifa nyja passwordid 2 sinnum tarna ta kemur PSN is not available in your country.
    veit eitthver hvad a ad gera ??

  • Ég kemst inná þetta þótt að ég sé með íslenskt account :) suckers

  • kærir meðlimir kviðdómsins. mr kari nokkur sýndi vott af monti kl 16:45 síðdegis í dag. við getum öll tekið lærdóm af þessu en því miður er öllum alveg sama um þetta mál hans.
    en hann getur verið stoltur af sér.

  • takk fyrir :) :)

  • Bara að taka þátt hehehehe :) :):):)

  • Við minnum á að biðja fólk að koma vel fram við aðra hérna á kommentunum. Enda eiga allir Gamers að vera vinir.

    Fögnum bara að PSN er að lifna við eftir erfiðar 3 vikur og njótum þess :)

  • Hrinigjið í Sony og þeir reseta accountið þitt fyrir þig.

  • ég næ ekki að sign-a mig á PSN, ég fæ tölvupóst og ýti á linkin þar og skrái nýtt lykilorð en þá kemur PlayStation®Store is not available in the selected country or region.
    hvað get ég gert?

  • ef þið nennið ekki að bíða þá getiði prófað að gera breskann account. eg gerði það og það virkar að fara á PSN
    btw það er lika miklu meira af aukaefni sem þið fáið á breskum acc bara svona heads up :) )

  • hey ég er búinn að gefast upp alltaf þegar ég reini að fara inná PSN kemur upp ” This service is currently undergoing maintenance ég er orðinn fokk piraður og vill vita hvað ég á að gera til að komast inna PSN

    veit það eitthver ??

  • lendi í þessu líka.Þeir voru nú búnir að lofa að laga þetta fyrir 24 maí þannig að þetta gæti dottið inn seinna í dag

Comments are currently closed.