- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2011

Page 2 of 7

PSP Remaster serían væntanleg á PlayStation 3

Sony hefur kynnt að uppfærðir PSP leikir muna koma út fyrir PlayStation 3 í HD. Sérían kallast PSP Remaster Series og verður fyrsti leikurinn til að mæta á svæðið Monster Hunter Portable 3rd HD.

Myndbandið hérna fyrir neðan fer í gegnum munin á að spila leikinn á PSP og PS3 og þær bætur sem koma með nýju útgáfunni.

Those who are worried that Sony intends to release a bunch of lackluster PSP ports can rest easy: In addition to the HD visuals, Sony is promising new content for the games, plus control schemes designed for the PS3 controller. Stereoscopic 3D support and ad-hoc multiplayer will also be supported for certain games. Sony also revealed that save files can be swapped between the PS3 and PSP versions of the games, allowing you to play on your television at home, then take the game on the road with your PSP, something that Hideo Kojima showed interest in last year.

Það er ekki langt síðan að fréttir byrjuðu að spretta fram um að God of War PSP HD pakki væri á leiðinni af PSP leikjunum 2 sem höfðu eingöngu komið út fyrir PSP og ófáir aðdáendur hafa óskað þess heitt að fá að spila þessa stórgóðu leiki á stórum skjá á PS3 vélinni sinni.

Kv.
GameTíví

Heimild: Game Informer

12 Mín spilun úr Dead Island

Uppvakningar leikurinn Dead Island hefur vakið mikkla athygli með flottum myndbrotum á netinu. Hingað til höfum við ekki fengið að sjá leikinn keyrandi beint.

GameTrailers vefurinn er með tæplega 12 mín langt myndband af Xbox 360 útgáfu leiksins keyrandi og kynnta af starfsmanni Deep Silver útgefandans.

Við verðum að segja að þessi er að looka vel og vonandi fáum við góða tilfinningu fyrir leiknum og sögu hans á E3 í næsta mánuði. Leikurinn á síðan að koma út á PC/PS3/Xbox þann 30. Sept samkvæmt fréttum.

Kv.
GameTíví

Heimild: VE3D

Ný skjáskot úr Bioshock: Infinite ásamt umfjöllun

Maður veit að E3 er við handan hornið þegar að leikir sem munu verða stór hluti af sýningunni byrja að fá þétta umfjöllun rétt áður en að fjörið byrjar á E3 sýningunni.

Bioshock: Infinite dúkkaði upp í dag á netið með stóra umfjöllun á öllum helstu stóru leikjasíðunum á netinum ásamt nýjum myndum úr leiknum.

Kynningin sem fréttamenn eru að fá er líklega hluti af því sem verður kynnt á E3 sýningunni sjálfri að hluta. Bioshock: Infinite er áætlaður einhver tíman á árinu 2012 og er leikur sem við getum ekki beðið eftir að spila.

Fyrir þá sem hafa ekki spilað fyrri Bioshock leiki, sérstaklega þann fyrsta þá mælum við sterklega að þið bætir úr þeim hrikalegum mistökum að vera ekki búin að spila þann frábæra leik.

Kv.
GameTíví

Duke er tilbúin, svínin fljúga og fjörið fer að byrja

2K Games og Gearbox Software hafa staðfest að Duke Nukem Forever er komið í Gull stöðu og er farinn í fjöldaframleiðslu. Við sverjum að það er satt!

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það eru hátt í 15 ár síðan að vinna hófst við Duke Nukem Forever leikinn eftir gríðalegar vinsældir Duke Nukem 3D. Það er ekki annað hægt að segja en að framleiðslan gekk í gegnum mikkla dramatík, það var byrjað með Quake II grafíkvélina skoppað yfir í Unreal vélina og síðan Unreal Tournament og alltaf voru tafir á leiknum fyrir vikið. Leikurinn var sýndur á E3 1997, E3 1999 og E3 2002 og síðan ekki sögunna meir í langan tíma.
Eftir fall 3D Realms 2009 leit út fyrir að leikurinn myndi aldrei koma út, vinna hélt áfram við leikinn af hópi 9 starfsmönnum heima hjá þeim sem hreinlega neituðu að gefast upp, þeir urðu síðan að Triptych Games sem er sjálfstætt fyrirtæki og eru staðsetti á sama stað og Gearbox Software.
Gearbox sem er samsett að hluta af gömlum 3D Realms starfsmönnum tóku við leiknum seint árið 2010 og voru staðráðnir að leyfa Duke kappanum að mæta á svæðið á ný. Það tók fjögur leikja stúdíó til að klára gripinn sem að flestir sem hafa áhuga á tölvuleikjum töldu að myndi aldrei koma út!

Duke Nukem Forever is the game that was once thought to be unshippable, and yet here we are, on the precipice of history,” said Christoph Hartmann, president of 2K. “Today marks an amazing day in the annals of gaming lore, the day where the legend of Duke Nukem Forever is finally complete and it takes that final step towards becoming a reality.”

Created over the span of 15 years, Duke Nukem Forever was first developed with the intense passion and commitment from an inspired group of dedicated designers, artists and programmers at 3D Realms under the direction of game industry icon, George Broussard.

Duke Nukem Forever and its journey to store shelves is legendary,” said George Broussard, creative director at 3D Realms. “It’s an epic tale of four game development studios that banded together and did the unthinkable and shipped the unshippable. When you play this game you will be reminded of that epic journey at every turn and in every small detail of the game. The character, attitude, interactivity, gameplay and political incorrectness combine to make a Duke Nukem game a unique gaming experience. In the timeless words of Duke Nukem it’s finally time to ‘Come Get Some’. Come be a part of gaming history.”

Randy Pitchford yfirmaður Gearbox Software og hafði áður eimmit byrjað í bransanum á hjá 3D Realms á Duke sagði; “Veðjið ávallt á Duke, ég gerði það. Ég veðjaði á alla þá sem hafa komið af þessu goðsagnakennda verkefni og ég veðjaði að enginn af okkur langaði að búa í heimi þar sem Duke væri ekki á svæðinu.”

Demó af leiknum verður aðgengilegt fyrir þá sem forpöntuðu leikinn eða keyptu Borderlands: Game of the Year Edition þann 3. Júní. Duke Nukem Forever kemur út þann 10. Júní í Evrópu og þann 14. Júní í Bandaríkjunum á PC/Xbox 360/PS3.

Kv.
GameTíví

Steam siglir inn í Ubisoft viku

Tilboð, tilboð… TILBOÐ!!!

Heyrist í Steam eimreiðinni. Ekki fyrir svo löngu síðan héldu Steam upp á svo kallaða EA viku, þar sem leikir frá samnefndum útgefanda voru á fanta góðu tilboði. Leikir á borð við Dragon Age, Need for Speed og Crysis voru allir á tilboði, hver á eftir öðrum og áttu menn eflaust mjög erfitt að þrauka í gegnum þá viku.

Nú hefur Steam ákveðið að endurtaka þann leik nema hvað að nú eiga Ubisoft leik. Þessi vika verður tileinkum þeim og megum við búast við veglegu tilboði á leikjunum þeirra, fyrsti dagurinn byrjar með trompi eins og sjá má á auglýsingunni hér að ofan.

Við biðjum ykkur að fara varlega í þessari komandi viku, því veskið getur fengið að finna verulega til ef ekki er farið með aðgát.

Kveðja,
Game Tíví

Þriðja heimsstyrjöldin hefst í Modern Warfare 3

Stríð eru óumflýjanleg og spennan yfir Call of Duty leikjunum er engu síðri. Í gærkvöldi birtist fyrsta stiklan úr Call of Duty: Modern Warfare 3 á meðan fjórði leikurinn í NBA körfuboltanum stóð yfir.

Eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan að þá er þriðja heimsstyrjöldin gengin í garð og munt þú takast á við orrustur í helstu löndum í Evrópu, þar á meðal Bretland, Frakkland, Þýskaland og svo að sjálfsögðu í Bandaríkjunum.

En nóg af texta, við látum mynbandið sjá um rest!

Valve sleppa E3 sýningunni í ár

Valve fyrirtækið, þeir sömu og færðu okkur Portal 2 fyrir stuttu hafa gefið út tilkynningu um það að þeir muni ekki láta sjá sig á E3 sýningunni sem hefst þann 6. júní næstkomandi.

Við munum ekki sýna neina titla á sýningunni í ár.

Þetta voru þau orð sem fyrirtækið lét flakka á netinu nú á dögum. Í fyrra voru þeir einkum hljóðlátir og komu öllum í opna skjöldu með því að birta nýjar upplýsingar um Portal 2 á Sony sýningunni, en það var einmitt í fyrsta sinn sem þeir höfðu gert einhvern samning við Sony við að hanna leik fyrir Playstation 3 vélina.

Þeir sem höfðu gert einhverjar vonir um nýjar upplýsingar um Half Life 2: Episode 3, þ.e.a.s. ef hann er enn þá til, verða því miður að bíta í sitt súra epli og þrauka enn þá lengur. Ekki er vitað hvað Valve munu taka fyrir hendi næst en það verður án efa eitthvað spennandi.

Heimildir: GiantBomb

Kveðja,
Game Tíví

Nýr Carmageddon í væntum?

Square Enix fyrirtækið setti upp nýja heimasíðu í vikunni undir slóðinni www.carmageddon.com þar sem nokkra daga niðurtalning blasir við okkur.

En niðurtalning að hverju?

Allt bendir til þess þegar niðurtalningin er komin að enda muni Square Enix afhjúpa nýjan Carmageddon leik, en sú sería hefur verið dauð í nær 11 ár, allt frá því að Carmageddon TDR 2000 kom út síðast árið 2000.

Þeir sem þekkja til seríunnar vita mætavel að Carmageddon kallar ekki allt ömmu sína. Leikirnir eru í flokki kappakstursleikja og skarta þeir mikinn hraða, sem og hasar og jafn vel heljarinnar blóðböð, því gangandi vegfarendur hafa ekkert með að segja hvernig keppnin fer fram.

Eins og staðan er nú að þá eru 9 dagar og 14 klukkustundir eftir að niðurtalningunni frá því að þetta var skrifað. Henni líkur svo miðvikudaginn 1. júní klukkan 08:00 að morgni og munum við færa ykkur ýtarlegar fréttir þegar tíminn er runninn upp.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Sunnudags trailer Skammturinn

Við erum frekar spakir á þessu Sunnudegi og erum á kafi í L.A. Noire og áttum í verstu vandræðum að slíta okkur frá leiknum til að henda þessum trailerum inn, svo þetta verður í styttra laginu þessa vikuna.

RPG leikurinn The Witcher 2 kom út núna fyrir helgina og er að fara vel í fólkið. Hérna er stutt myndbrot úr leiknum og kynnir persónuna Roche.

Það fer að styttast Red Faction: Armageddon skelli á í Júní á PC/PS3/Xbox 360. Leikurinn er að looka rosalega vel og hefur nú þegar komið út demó fyrir Xbox 360 og ætti að verða fáanlegt fljótlega fyrir PlayStation 3.

Hérna er stutt myndbrot sem á að leiða inní lengri trailer fyrir Gears of War 3 sem á að verða sýndur 28. Maí sama dag og úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni í fótbolta.

Það er talsvert í að næsti Yakuza leikurinn komi út í vesturlöndunum. Leikurinn átti að koma út núna í Mars í Japan, en útaf náttúruharmförunum var leiknum seinkað. Við ættum líklega að fá hann á næsta ári og á meðan njótið að sjá uppvakninga í Yakuza: The End.

Hljóð skiptir oft gríðalega mikklu máli í bæði kvikmyndum og tölvuleikjum. Í nýjustu vídeó dagbók fyrir leikinn Hunted: The Demon’s Forge. Myndbandið heitir “Around Dark Corners.”

Kv.
GameTíví

Nýjar upplýsingar um Modern Warfare 3 á mánudaginn kemur

Í síðustu viku lak út efni úr nýjasta Call of Duty leiknum, Modern Warfare 3 sem er væntanlegur þann 8. nóvember næstkomandi um allan heim. Activision áttu ekki von á því en þeir voru ekki lengi að snúa vörn í sókn með því að afhjúpa nokkra áfangastaði leiksins sem var gefið út í nokkrum stiklum.

Þrátt fyrir að E3 sýningin sé rétt handan við hornið, sem fer af stað þann 6. júní, að þá eru Activision tilbúnir að kinda enn meira í bálinu sem hefur farið hljótt af stað. Á mánudaginn kemur verður sýnt úr nýju efni í auglýsingahléi  á meðan fjórði leikurinn í NBA úrslitunum fer fram.

Mikil spenna ríkir yfir Call of Duty seríunni með hverju árinu sem líður og er hún nánast óumflýjanleg. Modern Warfare 3 ætti ekki að vera nein undantekning en við eigum eftir að sjá mikið úr honum þegar nær dregur að útgáfudegi hans.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví