- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2011

Project Beachhead verður að Call of Duty Elite, mánaðargjald lagt á kerfið

Hinn hinsti draumur Activisions er að geta rukkað Call of Duty spilendur fyrir að spila leikina þeirra á netinu. Nú fer brátt að koma að því.

Í tæp tvö ár hafa Activision unnið að nýju kerfi fyrir Call of Duty seríuna til þess að halda utan um spilendur þeirra og verður kerfið loksins tilbúið þegar Modern Warfare 3 fer af stað. Kerfið hefur hingað til verið nefnt Project Beachhead þar sem Beachhead Studios voru sameinaðir til þess að byggja upp nýtt kerfi fyrir leikina og mun það heita Call of Duty Elite.

Megin tilgangurinn með Call of Duty Elite er svo að Activision geti haldið sjálfir utan um vefþjónana og þurfa ekki að notast við Steam lengur, líkt og Modern Warfare 2 og Black Ops hafa gert hingað til á PC. Þeir sem kjósa að nýta sér þessa þjónustu verða hins vegar að borga mánaðargjald fyrir hana og eiga Activison enn eftir að negla niður verð á gjaldið.

Engum verður þó skylda að borga fyrir Call of Duty Elite til þess að spila fjölspilunar hlutann í Modern Warfare 3, en þeir sem kjósa að notfæra sér hana munu hljóta meiri ávinning en hinir sem ætla sér að hunsa hana. Kostnaðurinn fyrir Call of Duty Elite mun dekka yfir nýju kortin sem verða gefin út fyrir leikinn sem og önnur góðgæti sem þeir eiga enn eftir að kynna.

Einnig er talað um að Call of Duty Elite muni halda utan um stöðuna þína á meðan þú spilar leikina á netinu. Með því getur þú séð hvernig þér hefur gengið undanfarna leiki og séð hvaða vopn henntar þér að hverju sinni. Fleira á enn eftir að koma í ljós og munu Activision vonandi kynna Call of Duty Elite opinberlega á næstu dögum.

Það er ekki hægt að segja að svo stöddu hvort þessi þjónusta sé þess virði til þess að eyða 5-8 dollurum í hverjum mánuði í senn. Activision eru samt sem áður þeir snjöllustu þegar kemur að því að veiða krónur frá spilendum sínum þannig að þeir ættu ekki að vera í neinum erfiðleikum að koma þessu kerfi í gang.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

PSN kerfið ætti að komast í gang að fullu í vikunni

Það eru loks gleðifréttir fyrir PlayStation eigendur eftir frekar erfðar viku, Sony hefur staðfest að í PSN kerfið sem fór fyrst niður þann 20. Apríl eftir árás tölvuhakkara muni komast í gangið að fullu í lok þessarar viku.

Þetta passar inní fréttir um að kerfið muni liggja niðri að hluta vegna viðhalds í kvöld og fram yfir miðnætti, ef að fólk vill vera skráð inni til að spila á netinu, þá þarf það að gerast fyrir kvöldmat í kvöld.

Áður hafi PSN kerfið komið upp eftir 25 daga niður tíma að hluta og var netspilun leikmanna og skilaboðaþjónustan virkjuð á ný.

Vinir okkur í Japan, Hong Kong og Suðu Kóreu þurfa að bíða aðeins lengur af fá restina af PSN upp og er ekki nema örstutt síðan að Japan fékk PSN í gangið á ný.

Fyrir okkur hin þá munu allir partar PSN kerfisins verða komnir í gang fyrir eða um næsta föstudag þann 3. Júní. Þeir sleppa fyrir horn á tímarammanum sem þeir gáfu sér, sem voru lok Maí mánaðar.

Þetta er mjög góð tímasetning fyrir Sony þar sem að í næstu viku byrjar E3 leikjasýningin í Bandaríkjunum og munu þeir kynna helstu leiki og vörur þeirra fyrir árið og hver stefnar er.

Það sem mun þýða fyrir þá sem eru ekki alveg vissir um hvað af PSN er ekki ennþá í gangi;

- Full virkni PlayStation®Store netbúðarinnar
- Möguleikinn að kaupa hluti innan leikja
- Möguleikinn að nýta kóða og tilboð (t.d fyrir netspilun í Mortal Kombat og Dirt 3)
- Full virkni Music Unlimited powered by Qriocity fyrir PS3, PSP, VAIO og PC, hefur reyndar lítið að segja fyrir okkur
- Media Go þjónustan verður virk á ný

Kaz Hirai yfirmaður PlayStation sagði;

“We have been conducting additional testing and further security verification of our commerce functions in order to bring the PlayStation Network completely back online so that our fans can again enjoy the first class entertainment experience they have come to love.”

“We appreciate the patience and support shown during this time.”

Glaðningarnir sem Sony kynnti í Welcome Back verkefninu munu fara í loftið þegar PSN Store kemur upp aftur. Hægt er að lesa um það nánar hérna í eldri frétt á síðunni.

Það verður frábært fyrir alla þegar loka partur PSN fer í gangið á ný og við getum öll snúið okkur af því sem skiptir máli og það er að spila tölvuleiki með vinum og njóta alls þess sem leikirnir bjóða uppá og spila skemmtileg demó og forvitnilega trailera og má búast við að PSN Store verði stútfull af efni til að byrja með og hefur Sony sagt að þeir muni uppfæra hana örar til að byrja með til að komast yfir allt það efni sem hefur beðið að komast út.

Hægt er að lesa fréttatilkynningu Sony hérna í heild sinni.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

Ninja Gaiden 3 keyrir á 60fps og inniheldur Co-op

Í nýjasta hefti Opinbera PlayStation blaðsins hafa Team Ninja fyrirtækið kynnt fyrstu upplýsingarnar um Ninja Gaiden III. Upplýsingarnar koma frá NeoGAF vefnum. Leikurinn á að keyra á uppfærðri Sigma 2 grafíkvélinni, við erum með nokkrar pínu óskýrar myndir skannaðar úr blaðinu, þrátt fyrir það er ekki annað hægt að sjá en að leikurinn verði jafn blóðugur og fyrri leiki.

Helstu upplýsingarnar:

- Ninja Gaiden 3 mun keyra á 60 römmum á sek.
- Þeir ætla ekkert að slaka á í erfiðleikastillingunni og það verður ekki neitt lagað til fyrir áhugaleikmenn.
- Það verður bæði keppnis og Co-op spilun. Bæði munu styðja uppí 8 leikmenn.
- Ekki lengur verða vopnin keypt í spes búð, heldur munu uppfærast með tímanum.
- Sterkari áhersla á söguna um Ryu. Ekkert vitað um aðra spilanlega karaktera.
- Gæti stutt PlayStation Move tæknina.

Leikurinn er áætlaður 2012 fyrir PlayStation 3 og Xbox 360.

Kv.
GameTíví

Heimild: PSUni

Dead Space 2: Outbreak Map pakki á leiðinni

Dead Space 2 er að fara að fá frían DLC korta pakka sem kallast Onslaught og er væntanlegur fljótlega. Í boði verða tvö fjölspilunarborðin The Academy og The Concourse. Í báðum borðunum snýst fjörið um fyrir þá spila mennina að sleppa lifandi og auðvitað fyrir skrímslin að slátra þeim.

Til að gera þetta enn betra þá mun gripurinn ekki kosta krónu.

The Dead Space 2: Outbreak Map Pack introduces two all-new multiplayer maps, The Academy and The Concourse. The premise for both maps is simple, help the human team escape or use the Necromoprhs to stop them. The Academy map takes place in the elementary school on the Sprawl, where the human team has to work together to activate the decontamination system. In the Concourse map, the human team will need to evade the Necromorph incursion in the mall and send a distress signal to the rescue ship outside.

Pakkin kemur út á Xbox Live þann 31. Maí og á PlayStation Network þann 3. Júní (ef að PSN Store verður komin upp).

Kv.
GameTíví

Sunnudags trailer Skammturinn

Við bjóðum ykkur innilega velkomin í nýjasta Sunnudags trailer Skammtinn. Við vonum að þið hafið haft það gott og liggið líklega á kafi í leikjum eins og L.A. Noire og The Witcher 2 ásamt öðrum. Við fáum ekki nóg af þeim minnsta kosti.

Við byrjum þetta á einum heitum titli sem kemur í Nóvember og það er Assasin’s Creed: Revelations sem heldur áfram að segja sögu Ezio og Desmonds. Miðað við fréttir af leiknum er talið að vinur okkar Altair úr fyrsta leiknum dúkki upp líka.

Star Wars: The Old Republic er líklega einn eftirstóttasti MMORPG leikurinn sem er í vinnslu eins og er og eru sögur um að EA hafi eytt nokkur hundruð Miljón Dollurum í hann hingað til. Allt er þetta auðvitað gert til að keppa við risann sem er World of WarCraft.

Nýjasta myndbandið fjallar um hvernig Trooper klassinn virkar og mun þróast.

Það er ekki langt síðan að nýji Mortal Kombat leikurinn mætti á svæðið og endurlífgaði seríuna frá frekar sorglegum kafla síðustu árin. Það er von á nýjun DLC pakka fyrir leikinn fljótlega og erum við með myndbrot af honum hérna fyrir neðan. Þetta DLC hafði áður verið bara aðgengilegt með forpöntum leiksins í vissum búðum erlendis.

Í pakkanum eru 7 klassísk skin fyrir Sub-Zero, Scorpion, Reptile, Ermac, Mileena, Jade og Kitana. Ásamt klassísk Fatalities fyrir; Reptile, Scorpion og Sub-Zero. Pakkinn kemur út þann 7. Júní á Xbox Live og PSN og mun kosta 400 Ms punkta eða $4.99/£3.19 á PSN.

Það er ekki annað hægt að segja að biðin eftir Diablo III frá Blizzard sé stundum hreinlega sársaukafull. Við elskum metnaðinn í þeim og að skila aldrei af sér leik nema að hann sér 110% tilbúin, en það er erfitt fyrir sálin oft að bíða. Til að stytta ykkur og okkur stundir þá er hérna nýtt myndband sem fer í gegnun Runestone kerfið og hvaða krafta það bíður uppá.

Við munum fá núna um miðjan Júní leikinn Alice: Maddness Returns og fyrir þá sem kaupa leikinn á PS3/Xbox 360 verður upprunalegi leikurinn með í för. Við erum með tæplega 2. mín myndbrot sem sýnir Alice að berjast við nokkur skrímsli og gefur til kynna hvernig bardagapartar leiksins verða.

Finnska fyrirtækið Futuremark er einna best þekktastir fyrir að búa til forrit eins og 3DMark og PCMark á undan því sem voru notuð að reyna á PC vélarnar til að þær gátu ekki meira og gáfu okkur eitthvað til að bera saman við vinina um hver var að rúlla kraftmeiri vél.

Þeir hafa verið að fikra sig inná leikjamarkaðinn uppá síðkastið, sem kemur ekki á óvart enda var maður oft búin að segja að grafíkvélar þeirra ættu að vera meira en bara tech demó. Fyrsti leikurinn frá þeim var Shattered Horizion geim skotleikurinn og núna eru þeir að stríða þremur nýjum verkefnum sem koma á PC/Xbox Live Arcade og iOS.

Við endum þetta á stuttu myndbroti fyrir StarCraft II: Heart of The Swarm sem er næsti leikur/aukapakkinn í seríunni. Stiklan lak út á netið aðeins of snemma frá Gametrailers og hefur flætt um Youtube. Við getum ekki ábyrgst að þetta fái að hanga lengi uppi.

Just Cause 2 kom út síðasta sumar og var að okkar mati virkilega skemmtilegt framhald sem bætti forvera sinn á nærri öllum pörtum og var hriklega gaman að leika sér í þeim gríðalega stóra sandkassa sem leikurinn var. Þó að leikurinn hafi ekki verið netleikur voru ófáir óvinir sem týndu lífinu á móti þér, nánar tiltekið 11. Miljónir! Square-Enix útgefandi leiksins er með virkilega flott myndband þar sem að hver punktur á að tákna 1 líf og er það notað til að skapa heim leiksins og hvar hver og einn dó.

Kv.
GameTíví

Gears of War 3 kemur 20. Sept

Í lok úrslitaleiks Manchester United og Barcelona í Meistaradeildinni í dag var sýndur fyrsta alvöru myndbrotið úr Gears of War 3 leik Epic Games og Microsoft.

Epic er búin að vera að keyra Betu fyrir leikinn á Xbox Live til að prufukeyra netspilun leiksins og slípa til hin mörg banvænu vopn sem verða í boði í haust. Á myndinni fyrir ofan er hægt að sjá tölfræðina fyrir Betuna og er ekki annað hægt að segja en margir hafa tapað lífinu á blóðugan hátt í Betunni.

Hérna fyrir neðan er síðan fyrsta sýnishornið úr sögunni og þann hasar sem verður í boði þann 20. September þegar að leikurinn kemur út á Xbox 360.

Þessi er að lookar hrikalega vel og ætti að verða meiriháttar gaman að spila leikinn á netinu og síðan í Co-op í gegnum sögu leiksins.

Kv.
GameTíví.

Nýr Hitchhiker’s Guide to the Galaxy leikur í vinnslu

Það eru orðin ófá ár síðan að það kom út leikur eftir sögu Breska rithöndarins Douglas Adams sem er frægastur fyrir The Hitchhikers Guide to the Galaxy. Það var árið 1984 og kom leikurinn út fyrir Infocom og var portaður yfir á margar vélar eftir það.

Hothead Games sem eru þekktastir fyrir að Deathspank leikina ofl hafa tilkynnt að þeir eru að vinna að nýjum ævintýraleik eftir sögum Douglas Adams.

Hail people of Earth! Megadodo Publications is pleased to announce that we are working with the interactive entertainment development team Hothead Games to bring The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy, the standard repository for all knowledge and wisdom, to the farthest uncharted backwaters of the unfashionable end of the Western Spiral arm of the Galaxy. This new edition of The Guide will be available not only on your planet but also on all nearby systems including Alpha Centauri.

“Við erum gríðalega spenntir að vera hluti af hinni frábæru The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy seríu. Hinn skemmtilega skrítni heimur sem Douglas Adams skapaði hefur orðið klassík fyrir svo marga. Starfsmenn Hotheat voru ekki lengir að hoppa á tækifærið að vinna að leiknum, sagði Joel DeYoung hjá Hothead.

Kv.
GameTíví

Valve dreifir frítt tónlistinni úr Portal 2

Valve hönnuðir hins frábæra þrautaleik Portal 2 hafa ákveðið að gefa unnendum leiksins smá glaðning í formi tónlistarinnar sem heyrist í leiknum.

Að sögn vísindarmanna Aperture Science eru pakkarnir 3 “downloadable aural stimulus packages” og heita Songs to Test by og er sá fyrsti komin út núna algerlega frítt.

Þetta lofar að verða gríðalega flottur pakki af tónlist fyrir fólk. Það eru 22 lög í boði í

Songs to Test By, giving players a chance to marvel at the intricate and varied music they likely missed because they were too busy giggling at jokes like these.

Whether you’re a mega-science corporation with decades of test experience, or a young start-up liberating your first test subject from non-testing with a chloroform-soaked rag, Aperture guarantees results. Wake up your test subject, open the chamber door, and press play—let Aperture’s patent-pending rhythmic compliance enhancers do the rest.

Endalag leiksins eftir Jonathan Coulton er ekki í boði í þetta skiptið en ætti vonandi að koma í næsta en örugglega loka pakkanum.

Hægt er að sækja pakkann hérna: Songs to Test By

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

Vinna að Dragon Age III hafin

Samkvæmt fréttum frá IGN er Kanadíska fyrirtækið BioWare byrjað að undirbúa vinnu fyrir Dragon Age III hlutverka leikinn.

Á Twitter mátti finna auglýsingu eftir nýju starfsfólki;

“I’m looking for exceptional environment artists to join me at #BioWare Edmonton, Canada to work on #DragonAge3 #gamejobs #jobs #3D #artists” í tweet frá Alistair McNally, senior director of creative development hjá BioWare

Það kemur engum í raun á óvart að BioWare er byrjað að staffa sig upp fyrir framleiðslu á næsta leiknum í seríunni og mun líklega fylgja eftir sögu Hawke úr Dragon Age II. Við vonum að þeir taki til sýn gagnrýni fólks á leiknum og umhverfi hans og bryddi uppá meiri fjölbreytileika en oft var í leiknum.

Kv.
GameTíví

Allt DLC fyrir The Witcher 2 verður frítt, en aukapakkar munu kosta

Fyrir tæpri viku kom út RPG leikurinn The Witcher 2 út á PC frá Pólska fyrirtækinu CD Project Red og er hann jafnvel metnaðarfyllri en fyrri leikurinn og nær á sama tíma að okkar mati að bæta galla upprunalega leiksins á sama tíma færa seríuna áfram.

Með flesta nútíma leiki í dag er DLC eða niðurhalsefni fyrir leikina bæði á PC og leikjavélunum mikilvægur hlutur af plönum fyrirtækjanna að styðja við leikina þeirra og á sama tíma fá pening í kassann.

CD Project Red hefur staðefst að allt aukaefnið fyrir leikinn verður frítt og að fyrirtækið muni eingöngu rukka fyrir aukapakka fyrir leikinn sem væru stór og bitastæð viðbót við leikinn eins og var t.d með Awakening aukapakkann fyrir Dragon Age sem bætti við hátt í 30 tímum við leikinn í spilun.

DLC efnið sem verður í boði er smærra í sniðum og eins og hálftíma stutt ævintýri sem leikmenn geta hoppað inní. Fyrsta fría efnið er nú þegar fáanlegt og kallast það “Troll Trouble” og á að innihalda 90 mín af auka spilun.

Að sögn CD Project Red þá “ef að við munum fara að rukka fyrir eitthvað, þá verður það efnis mikið og drjúgt ekki ólíkt aukapökkum áður fyrr”

RPG unnendur eru að fýla The Witcher 2 og hefur leikurinn verið að fá mjög góða dóma og er með 9.2 í meðal einkum sem er bara frábært og eru margir gagnrýnendur að tala um leikinn ásamt Portal 2 sem leikina sem blada sér í baráttuna um leik ársins.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb