Kynning:
Fyrir stuttu síðan kom út á Xbox Live Arcade þjónustu Xbox 360, hasar og RPG leikurinn Torchlight frá Runic Games.
Fyrirtækið er samsett af Max og Erich Schaefer sem eru fyrrum starfsmenn Blizzard North og vöru hönnuðir af Diablo I og Diablo II og síðan Travis Baldree sem hafði áður gert leikinn Fate.
Torchlight er hægt að segja að sé leikur undir sterkum áhrifum af Diablo seríunni þar sem að allt snýst um að kanna dýflyssur fullar af skrímslum og auðvitað nóg af phat loot.
Leikurinn kom út fyrst á PC í Október 2009 og hálfu ári síðar á Mac. Xbox 360 útgáfan er straumlínulöguð útgáfa af leiknum og löguð einstaklega vel að því að spila leikinn með fjarstýringu uppí sófa að kála skrímslum. 360 útgáfan inniheldur nýjar brynjur, nýtt gæludýr og nýja tækni sem Runic Games hefur notað við að búa til Torchlight II sem er ætlað að koma út í sumar.

Spilun og stjórnun
Þegar er hoppað inní leikinn er hægt að velja þrjá klassa;
Destroyer sem er Warrior týpa sem þykir ekkert betra en að vaða inní hasarinn vopnaður tveimur öxum og ganga frá öllum.
Alchemist sem er galdratýpan sem getur kastað frá sér eld og eldingar göldrum úr fjarlægð til að grilla óvinina, að auki er hægt að kalla til sýn dýr og vélmenni til aðstoðar.
Vanquisher er kvenn-ynja sem þykir ekkert betra en að nota boga og gildrur gegn óvinum hennar.
Blái X takki fjarstýringarinnar fær líklega mesta vinnuna þar sem að hann er notaður til að berja á óvinunum, síðan er hægt að mappa hægri og vinstri gikkinn fyrir galdra ásamt B og Y takkanum. LB og RB axlar takkarnir eru notaðir til að drekka snöggvast heilsu eða mana drykki í miðjum bardögunum.
Sagan sem slík í leiknum er ekki mikil og hreinlega þarf ekki að vera það í svona leik. Leikurinn dregur nafn sitt af bænum Torchlight sem er ekki búin að eiga góða daga og námurnar sem vinna hið dýrmæta Ember og ævintýramenn og fjárstjóðsleitendur fylkjast til bæjarins í leit að skjótfengnum gróða og aðdáun annara.
Leikmenn eru fengnir af Syl galdrakonu sem er að leita af meistara hennar Alric sem hefur horfið ofan í námurnar. Það er síðan hægt að fá fleiri verkefni frá bæjarbúum sem munu öll leiða leikmenn dýpra ofan í námurnar þar sem að þeir munu kafa dýpra og dýpra niður og sjá leyfar fornar siðmenningar og heilan helling af skrímslum sem vilja öll hafa þig í kvöldmatinn. Að lokum rekast leikmenn á Alric sem hefur spillst af Ember efninu í grjótinu og síðan skrímslið Ordrak sem er orsök alls sem hefur gerst áður.

Allt þetta er þó bara skemmtileg afsökun fyrir að vaða í gegnum ótal dýflyssur fullar af skrímslum og gulli. Runic Games hefur náð frekar vel Diablo formúlunni að fara djúpt ofan í iður jarðarinnar drepa fullt af skrímslum og fá fullt af flottu dóti og nota galdrabragð að hoppa aftur í bæinn eins og í gamla Diablo og fara aftur niður og endurtaka þetta aftur, og alveg eins og í Dibalo eru óvinirnir handhófskennt raðað aftur í leikinn til að gera reynsluna hálf endalausa.
Þú hækkar í level eins og í svo mörgum RPG leikjum, stigin sem þú færð hækka þetta klássíska eins og styrk, galdra, heilsu ofl, að auki við þetta færðu stig sem er hægt að raða í hæfileikatré eins og aftur í Diablo og velja sér hæfileika og bónusa sem leikmenn telja að komi að góðum notum. Þegar þú telur þig vera búin að ná öllu sem er hægt að gera, er hægt að setja gömlu hetjuna á eftirlaun og búa til nýja hetju sem verður afkomandi hennar og fær bónusa frá henni.
Eitt af því sem leikurinn gerir nýtt frá Diablo seríunni er gæludýrið og hvernig það virkar í leiknum, það kannast margir við að vera á kafi í svona leik og með fulla poka af dóti og það droppar feitt galdrasverð sem er með fjólubláum lit og gerir það Epic (eitthvað sem Wow leikmenn ættu að kannast við), og geta ekki tekið það vegna þess maður hefur ekki plássið. Svo þá vanalega var eina leiðin að skokka í bæinn sjálfur og selja draslið eða fleygja því á gólfi og taka upp það nýja og tapa peningunum á geta selt hið gamla.
Í Torchlight er auðveldlega hægt að ýta á back takkan á fjarstýringunni og setja dótið í poka gæludýrisins hvenær sem er og þegar greyjið getur ekki haldið á meiru þá er það bara sent tilbaka og selur góssið og kemur stuttu síðar hlaupandi tilbaka með gullið á sama tíma ert þú búin að vera að drepa kvikyndi vinstri hægri.

Ending leiksins er fín miðað við verð. Á Steam kostar leikurinn í dag 15$ og á Xbox Live Markerplace 1200 Ms puntka sem er jafn mikið. Ekki mikið myndi ég segja fyrir leik sem skarta um 8-10 spilun í fyrstu og er með sæmilega góða endingamöguleika. Ekki slæmt fyrir niðurhals leik, og á sama tíma eru það leikir útúr búð sem kostar kannski 11 þúsund krónur sem geta varla fært sambærilega lengd fyrir talsvert meiri pening. Það eru síðan leaderboards sem er hægt að bera sig saman við vini sýna og hvernig þeim hefur gengið, og auðvitað metist á ef að þér er búið að ganga betur að kála og græða en þeim.
Það er auðvellt að mæla með þessum leik, ég sat uppí sófa í þægindunum og spilaði þennan leik yfir nokkurn tíma og endaði í kringum 9 tíma spilaða í fyrstu umferð með minn Destroyer og hafði dritað niður yfir 7214 skrímsli af hinum ýmsu gerðum og unnið mér inn um 160 þúsund gullpeninga sem ættu að koma að góðum notum í ellini.
Ég mæli með þessu fyrir þá sem vilja fá smá Diablo fílinginn uppí sófa, ekki verður síðan verra ef að leikurinn gengur vel þá fáum við kannski Torchlight II á Xbox 360 og kannski hver veit PlayStation 3 líka.
Leikurinn fær frá mér þétta 8 í einkun af 10 mögulegum.
Skrifað af:Bumbuliuz © Sveinn A Gunnarsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.




0 Responses to “Torchlight dómur GameTíví.is”