- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D mætir til leiks þann 17. júní

Þegar sumarið skellur brátt á og tölvuleikjaunnendur fá loksins nægan tíma við að spila leiki dettur inn ný endurgerð útgáfa af meistaraverkinu The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D á Nintendo 3DS. Nintendo hafa einmitt verið þekktir fyrir að endurgera leikina sína með þeim tilgangi í huga að leyfa nýjum spilurum að njóta góðs af þeim gullmolum sem við eldri fengum að upplifa hér áður fyrr.

En verða einhverjar breytingar á 13 ára gömlum leik? Svarið við spurningunni er einfaldlega: Jú, talsverðar breytingar!

Ocarina of Time, eins og mörgum er kunnugt, er talinn vera einn af betri leikjum allra tíma og Nintendo vilja að sjálfsögðu leggja allt sitt að mörkum til þess að gera þessa gamla klassík að betri leik. Til þess hafa þeir bætt„framerate“ leiksins til muna, lagfært útlit persónanna, sem og bætt við auka „textures“ til þess að hann líti sem best út litlu lófatölvunni. Svo ekki sem minnst mun að sjálfsögðu stærsti kosturinn vera sjálf þrívíddin sem 3DS hefur upp á að bjóða.

Nokkrar myndir hafa verið birtar úr leiknum og hægt að skoða þær með því að smella á „more“ hér fyrir neðan og má sjá á nokkrum þeirra stóran mun á gömlu Nintendo 64 útgáfunni og nýju 3DS útgáfunni. Þeir sem hafa ekki fengið nóg af gripnum, þrátt fyrir að hafa spilað leikinn sjö sinnum og tekið heilt maraþon í gegnum leikinn, eins og ég, ættu að verða yfir sig ánægðir þegar leikurinn lendir í búðum hérlendis þann 17. júní.

Enn meira til þess að gleðjast yfir þessum merka degi!

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

0 Responses to “The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D mætir til leiks þann 17. júní”


Comments are currently closed.