- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Sony ræðir niðurtíma PSN netþjónustunnar

Það hafa ófáir tekið eftir því síðustu dagana fyrir Páskanna að PSN netkerfi Sony fyrir PlayStation 3 hafi átt í talsverðum erfiðleikum og slökknaði síðan á því um miðja vikuna.  Sony hefur ekki tjáð sig mikið um ástæðurnar fyrir þessu ástandi sem margir vildu rekja til árása hakkara á PSN netkerfið.

PlayStation Bloggið ræddi aðeins ástandið og hvað er framundan hjá þeim og PSN þjónustunni.

“Við biðjumst innilega afsökunnar á að PlayStation Network og Qriocity þjónusturnar hafa legið niðri, og að við erum að vinna stanslaust að koma þeim í gangið á ný. Leiðir okkar til að gera það snúast um að endurbyggja kerfi okkar til að styrkja þau gegn utanaðkomandi aðkomu. Þessi vinna eru tímafrek, og ákváðum við þessi tími væri þess virði til að bæta við auknu öryggi.

Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina hingað til og biðjum um að þið sýnið okkur biðlund aðeins lengur á meðan að við klárum þetta verkefni. Við munum gefa ykkur nánari upplýsingar eins fljótt og þær verða fáanlegar.”

Það er erfitt að segja til nákvæmlegar ástæður fyrir þessu ástandi, hvort að þetta sé útaf árásum nethakkara gegn PSN þjónustunni eða hvort að aðrar bilannir séu tengdar þessu eða hreinlega blanda af báðum hlutum.

Það var forvitnilegt að sjá að á svipuðum tíma fór niður stór gagnageymsla Amazon á Austurströnd Bandaríkjanna sem hafði áhrif á margar vefsíður þar á meðal leikjavefinn Giantbomb, en ekkert hingað til hefur bennt til að þessir hlutir tengjast hingað til.

Það er óneitanlega leiðinlegt ef að þessi niðurtími PSN þjónustunnar megi rekja til árásir lítils hóps hakkara sem hafa horn í síðu Sony eftir að Other Os Linux valmöguleikinn var tekinn úr PlayStation 3 leikjavélinni eftir að Sony ákvað að loka fyrir það útaf hættu við öryggis smugum sem var talið að væru tengdar því.

Vandinn samt við svona aðgerðir er að þær bitna ávallt gagnhvart saklausu fólki sem langar ekkert frekar en að setjast uppí sófann og spila nokkra leiki með vinunum.

Við vonum innilega að þetta farið að lagast og að PSN þjónustan fari í gagnið og fólk geti notið hennar aftur.

Kv.
GameTíví

8 Responses to “Sony ræðir niðurtíma PSN netþjónustunnar”


Comments are currently closed.