- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for April, 2011

Page 2 of 6

Sony ræðir niðurtíma PSN netþjónustunnar

Það hafa ófáir tekið eftir því síðustu dagana fyrir Páskanna að PSN netkerfi Sony fyrir PlayStation 3 hafi átt í talsverðum erfiðleikum og slökknaði síðan á því um miðja vikuna.  Sony hefur ekki tjáð sig mikið um ástæðurnar fyrir þessu ástandi sem margir vildu rekja til árása hakkara á PSN netkerfið.

PlayStation Bloggið ræddi aðeins ástandið og hvað er framundan hjá þeim og PSN þjónustunni.

“Við biðjumst innilega afsökunnar á að PlayStation Network og Qriocity þjónusturnar hafa legið niðri, og að við erum að vinna stanslaust að koma þeim í gangið á ný. Leiðir okkar til að gera það snúast um að endurbyggja kerfi okkar til að styrkja þau gegn utanaðkomandi aðkomu. Þessi vinna eru tímafrek, og ákváðum við þessi tími væri þess virði til að bæta við auknu öryggi.

Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina hingað til og biðjum um að þið sýnið okkur biðlund aðeins lengur á meðan að við klárum þetta verkefni. Við munum gefa ykkur nánari upplýsingar eins fljótt og þær verða fáanlegar.”

Það er erfitt að segja til nákvæmlegar ástæður fyrir þessu ástandi, hvort að þetta sé útaf árásum nethakkara gegn PSN þjónustunni eða hvort að aðrar bilannir séu tengdar þessu eða hreinlega blanda af báðum hlutum.

Það var forvitnilegt að sjá að á svipuðum tíma fór niður stór gagnageymsla Amazon á Austurströnd Bandaríkjanna sem hafði áhrif á margar vefsíður þar á meðal leikjavefinn Giantbomb, en ekkert hingað til hefur bennt til að þessir hlutir tengjast hingað til.

Það er óneitanlega leiðinlegt ef að þessi niðurtími PSN þjónustunnar megi rekja til árásir lítils hóps hakkara sem hafa horn í síðu Sony eftir að Other Os Linux valmöguleikinn var tekinn úr PlayStation 3 leikjavélinni eftir að Sony ákvað að loka fyrir það útaf hættu við öryggis smugum sem var talið að væru tengdar því.

Vandinn samt við svona aðgerðir er að þær bitna ávallt gagnhvart saklausu fólki sem langar ekkert frekar en að setjast uppí sófann og spila nokkra leiki með vinunum.

Við vonum innilega að þetta farið að lagast og að PSN þjónustan fari í gagnið og fólk geti notið hennar aftur.

Kv.
GameTíví

Sunnudags trailer Skammturinn

Það er enn einn Sunnudagur og þá er auðvitað komin tími fyrir nýjan trailer skammt.

Við hérna á GameTíví viljum þó byrja að óska öllum lesendum og áhorfendum okkar gleðilegra páska og vonum að þið eigið góðar stundir fyrir framan skjáinn með stórt páskaegg til að narta í.

Við byrjum á nýjum trailer úr glæpa thrillernum L.A. Noire sem kemur út núna þann 20. Maí á PS3/Xbox 360 og er einn af heitustu leikjum ársins. Í leiknum fara leikmenn í spor Cole Phelps sem rís í gegnum raðir lögreglunnar og þarf að takast á við mörg erfið mál, og eru mörg af þeim byggð á sönnum atburðum sumum sem voru aldrei leystir.

Guild Wars 2 er MMO leikur sem mun keppa við stóra risann sem er World of WarCraft, það er gerði fyrri Guild Wars svona sérstakan og það sama gildir um þann nýja er að það er ekkert áskriftargjald að spila leikinn heldur selja þeir stóra aukapakka sem bæta við leikinn.

Það er oft ekki mikið um gæða skotleiki á Wii hvað þá sem eru hannaðir með hana og stjórnkerfi hennar í huga. Einn slíkur er Conduit 2 sem gefur fólki tækifæri að drifa niður geimverur í stórum stíl og berjast í gegnum netið við vini og óvini.

Fable III RPG leikur Microsoft og Lionhead Studios mun fá útgáfu á PC þann 20. Maí næsta og verður hægt að kaupa hann í gegnum Games for Windows Marketplace, Steam og auðvitað beint út úr næstu leikjaverslun. Í nýjustu dagbók Lionhead þá fara þeir í gegnum þær breytingar PC útgáfa leiksins hefur fengið frá Xbox 360 útgáfu leiksins sem kom út í fyrra vetur.

Við teljum niður í þann frábæra viðburð sem verður útgáfa hins langþráða Duke Nukem Forever í Júní. Það er búin að vera vægast sagt löng bið eftir honum Duke. Gearbox Software hafa verið duglegir að kynna leikinn og leyft þeim að grípa í. Hérna er svo nýtt myndband, við vörum við það það er ekki fyrir þá yngstu.

F.E.A.R. 3 skotleikurinn fær útgáfu núna í Maí. Serían er skotleikja sería með sterkri blöndu af hryllingi sem fær blóðið til að rísa all verulega. Hérna er nýr trailer sem ætti að koma fólki í gírinn á sögu seríunnar.

Við endum þessa rispu síðan á Pólska RPG leiknum The Witcher 2: Assasins of Kings sem mun koma út á PC í Maí og mun verða stór hvalreki fyrir hlutverkaleikja aðdáendur. Í myndbandinu halda hönnuðir leiksins áfram að ræða leikinn og hvað verður í boði.

Kv.
GameTíví

Nintendo kynnir útgáfuætlun þeirra fyrir Ds/3DS/Wii

Nintendo kynnti fyrir stuttu útgáfu plön þeirra fyrir næstu vikur og mánuði á helstu leikjavélar þeirra.

Fjörið mun byrja að viti á þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. Júní með 3DS endurgerð af einum af betri leik fyrr og síðar og það er auðvitað The Legend of Zelda: Ocarina of Time sem kom áður út á Nintendo 64 leikjavélina.

Nintendo staðfesti að annar Zelda leikur mun koma út í lok ársins á Nintendo Wii og það verður The Legend of Zelda: Skyward Sword sem á að koma út í lok ársins.

Það eru ekki bara Zelda leikir í vinnslu heldur er eiga Nintendo áðdáendur vona á leikjum eins og Wii Play: Motion, The Conduit 2, Dragon Quest VI: Realms of Reverie, LEGO: Pirates of the Caribbean ásamt mörgum öðrum.

Hérna er svona yfirlit yfir helstu leikina í útgáfu plönum á leikjavélar Nintendo út árið 2011.

3DS

  • 21st April: Puzzle Bobble Universe (Square Enix)
  • 6th May: Steel Diver (Nintendo)
  • 13th May: LEGO Pirates of the Caribbean: The Video Game (Disney Interactive Studios)
  • 20th May: Dead or Alive: Dimensions (Nintendo)
  • 26th May: Sudoku: The Puzzle Game Collection (Hudson Soft)
  • 2nd June: Sports Island 3D (Hudson Soft)
  • 17th June: The Legend of Zelda: Ocarina of Time 3D (Nintendo)
  • 17th June: Naruto Shippuden 3D The New Era (505 Games)
  • Q2: Pac-Man and Galaga Dimensions (Namco Bandai)

DS

  • 22nd April: Valet Parking 1989 (DSiWare – Zordix)
  • 29th April: Thor: God of Thunder (SEGA)
  • April: Cradle of Rome / Cradle of Egypt Double Pack (Mastertronic/Advantage Distribution)
  • 6th May: Plants vs. Zombies (Mastertronic Games Ltd.)
  • 13th May: LEGO Pirates of the Caribbean: The Video Game (Disney Interactive Studios)
  • 20th May: Dragon Quest VI: Realms of Reverie (Nintendo)
  • May: Pucca Power Up (Rising Star Games)
  • 17th June: Challenge Me: Brain Puzzles 2 (O-Games)
  • Q2: Zhu Zhu Classic (Activision Publishing)
  • Q2: Kung Zhu (Activision Publishing)
  • Q2: Miffy’s World (Pan Vision)
  • 1st July: Solatorobo: Red the Hunter (Nintendo)

Wii

  • 15th April: Spongebob Squigglepants (THQ) (uDraw compatible)
  • 22nd April: Conduit 2 (SEGA)
  • 28th April: DanceDanceRevolution hottest party 4 (Konami)
  • 29th April: Virtua Tennis 4 (SEGA)
  • April: National Geographic Challenge! (Black Bean Games)
  • 6th May: Greg Hastings Paintball 2 (505 Games)
  • 6th May: Cabela’s Dangerous Hunts 2011 (Activision Publishing)
  • 13th May: LEGO Pirates of the Caribbean: The Video Game (Disney Interactive Studios)
  • May: Let’s Dance with Mel B (Black Bean Games)
  • May: We Dance (Nordic Games)
  • May: FAST – Racing League (WiiWare – Shin’en Multimedia)
  • May-June: Champion Jockey (Tecmo Koei)
  • 10th June: Green Lantern: Rise of the Manhunters (Warner Bros Interactive Entertainment)
  • 17th June: Challenge Me: Brain Puzzles 2 (O-Games)
  • June: MotoHeroz (WiiWare – RedLynx)
  • Q2: Karaoke Revolution Glee: Volume 2 (Konami)
  • Q2: Attack at the Movies (505 Games)
  • Q2: Dance Sensation (505 Games)
  • Q2: ExerBeat (Namco Bandai)
  • Q2: Chrono Trigger (Virtual Console – Square Enix)

Kv.
GameTíví

PSPgo búin að gefa upp öndina

Kotaku birtir staðfestingu á frétt sem er búin að vera í loftinu í nokkra daga um endalok PSPgo lófavélar Sony.

Sony í Japan sagði í viðtölum að það yrðu ekki búnar til nýjar PSPgo vélar til að fókusa á hina væntanlegu NGP lófavél sem er stefnt á að koma út í lok ársins minnsta kosti í Japan. Það verður haldið áfram að selja PSPgo þangað til að birgðirnar klárast.

Þegar þeir voru spurðir útí eldri PSP-3000 týpuna þá sögðu þeir að hún yrði áfram seld og þeir munu einblýna á hana framvegis. PSP ætti að seljast vel áfram í Japan og annar staðar enda er orðið til stórt safn af gæðaleikjum fyrir vélina, ekki ólíkt og með PS2 sem fékk áframhaldandi stuðning eftir útgáfu PS3.

Sony í Bandaríkjunum virðist ekki vera tilbúin að sleppa takinu alveg strax og hafa sagt að þeir muni bjóða áfram uppá PSPgo og PSP-3000 týpurnar, það verður spurning hvað þetta verður lengi og síðan hvað gerist í Evrópu.

Það er sorglegt að sjá endalok PSPgo ekki löngu eftir útgáfu hennar, en það ætti samt ekki að koma á óvart eftir hvernig var staðið af vélinni. PSPgo átti að vera algerlega stafrænt ævintýri þar sem að engir UMD diskar komu við sögu, þetta hljómaði fínt á pappír en Sony klikkaði á að vera ekki alltaf með leiki fáanlega á PSN búði PSPgo og á sama tíma og fólk gat labbað í næstu verslun og fengið leikinn á UMD diski.

Ofan á þetta spilaði verðið á vélinni, leikjum, að það var engin leið fyrir fólki sem átti eldri PSP og leiki að færa þá eign yfir og geta ekki notað þá leiki í PSPgo, ásamt öðru sem bjó til aðstæður sem vélin átti ekki mikinn séns til að lifa af.

Við vonum að NGP vélin sem Sony er að vinna að muni laga galla bæði PSP og PSPgo vélarinnar og verði sú lófavél sem leikjaunnendur vonast eftir frá Sony, það sem við höfum séð að NGP lofar þetta góðu og hún virðst taka á mörgum þeim kvörtunum sem voru lagðar til PSP ásamt að færa nýjunar fram á sviðið.

Kv.
GameTíví

Sony seinkar The Last Guardian og ICO/SOTC safninu

Í frekar stórum svekkelsis fréttum þá hefur Sony í Evrópu staðfest að ICO/Shadow of the Colossus safnið og The Last Guardian munu ekki koma út á réttum tíma sem hefði átt að vera í vor fyrir ICO/SOTC pakkan æg næsta vetur fyrir Last Guardian.

Fumito Ueda hönnuður/framleiðandi The Last Guardian hafði þetta að segja:

Ég kynnti í fyrra á Tokyon Game Show hvenær The Last Guardian myndi koma út sem átti að vera veturinn 2011.

En til að búa til betri gæða leik og uppfylla kröfur okkar sem First Party Studio hef ég ákveðið að seinka leiknum.

Allir starfsmenn okkar eru að vinna saman og eins hratt og þeir geta til að gefa leikinn út í hæðsta gæðaflokki.

Ég biðst alla kúnna okkar innilega afsökunnar sem hafa verið að bíða lengi eftir The Last Guardian, ég bið um þolinmæði ykkar og ég mun gefa út nýjan útgáfudag síðar.

Það bendir þá allt til að ICO/SOTC pakkinn komi vonandi næsta vetur og þá mun The Last Guardian færast til 2012 :(

Kv.
GameTíví

Heimild: EU PlayStation Blog

PSN uppfærsla vikunnar

PSN stafræna búðin hefur verið uppfærð eins og venja er á Miðvikudögum og hefur Sony í Evrópu lagað aðeins til í skipulaginu á henni aftur og smellt inn takka sem heitir “New This Week” sem undirstrikar nýtt efni fyrir hverja viku og hjálpar það fólki að detta beint inní nýjasta efnið.

Leikirnir The Fancy Pants Adventures, Battle: Los Angeles and Red Johnson’s Chronicles fá allir útgáfu þessa vikuna.

Fancy Pants Adventures tasks you and up to three friends (online or offline!) with traversing the line drawn world in search of your kidnapped sister – if you’ve played the Flash game of the same name you’ll know the score. This version turns the Fancy Pants formula up to 11 and comes highly recommended.

Battle: Los Angeles is the movie tie-in game for the recent alien invasion blockbuster – kick the aliens off your planet and protect the human race in this first person shooter.

Red Johnson’s Chronicles follows in the footsteps of BTTF and Sam and Max, you play as the titular Red Johnson as he attempts to solve the mystery of the murder surrounding Drownedman’s Bridge. You’ll have to question suspects and look for clues to find the truth! Plus member? Half-price for you! If that’s not an invitation then I don’t know what is.

Þeir sem eru með PlayStation Plus áskrift fá afslætti af ýmsum titlum ásamt stórum afslætti af ModNation Racers sem fær feitan afslátt.

PSP leikurin Patapon 3 – mætir á svæðið og heldur áfram ævintýrum littlu augn dýranna.

Í DLC fréttum þá er það helst, Reverie sem er nýtt efni fyrir Castlevania: Lords of Shadow, karakter pakki fyrir WWE: AllStars og síðan Revelation bíla pakkinn fyrir MotorStorm: Apocalypse.

Hægt er að sjá listann í heild sinni á Evrópska Playstation Blogginu að venju.

Kv.
GameTíví

The Collector’s Edition af Deus Ex: Human Revolution kynnt ásamt breytingum

Square Enix hefur kynnt mjög flotta útgáfu af Deus Ex: Human Revolution sem verður í takmörkuðu upplagi í vissum Evrópu löndum ásamt Ástralíu og Nýja-Sjálandi.

Innifalið verður:

  • Adam Jensen fígúra sem er hönnuð af Play Arts Kai.
  • Explosive Mission Pack: Sem eru ný verkefni sem munu innihalda óvænta persónu úr upprunalega Deus Ex leiknum.
  • Spes vopn til að nota innan leiksins: Automatic Unlocking Device, M-28 Utility Remote-Detonated Explosive Device (UR-DED), Linebacker G-87 multiple shot grenade launcher, Huntsman Silverback Double-Barrel Shotgun, SERSR Longsword Whisperhead silenced sniper rifle.
  • 10,000 extra credits til að kaupa eða uppfæra vopn.
  • DVD diskur sem inniheldur 44-mín “gerð leiksins”, 30-mín tónlist úr leiknum, motion-comic (sem er tekin frá opinberuDC Comics’ seríunni), E3 trailer ofl.
  • 40-blað síðna art bók.

The Collector’s Edition sem Square-Enix ræðir um að verði í “mjög takmörkuðu upplagi” mun fara í sölu samdægurs og leikurinn í Evrópu þann 26. Ágúst næst komandi á PC/PS3/Xbox 360.

Fyrir nokkrum vikum birtum við ykkur frétt um að ekki allir væru hrifnir af hvernig highlight kerfið mun virka í leiknum, semsagt lýsa útlínur sumra hluti. Eidos Montreal hefur klárlega verið að hlusta vegna þess að þeir hafa gefið út nýtt myndband sem ræðir þetta og afhverju þeir telja þetta vera hluti af reynslunni sem leikmenn eiga að fá, en á sama tíma munu gefa fólki valkost að slökkva algerlega á þessu.

Það er síðan rædd erfiðleika stilling leiksins og fannst okkur flott nöfnin á þeim; “Tell me a story”, “Give me a Challenge”, “Give me Deus Ex”.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer og VE3D

Alice: Madness Returns mun innihalda upprunalega Alice leikinn

Í viðtali við CVG þá missti líklega American McGee hönnuður Alice: Madness Returns leiksins að leikjavélaútgáfur leiksins munu innihalda kóða til að sækja upprunalega Alice leikinn.

McGee ræddi síðan um DLC plönin fyrir leikinn sem mun verða meðal annars; kjólar með sérstökum hæfileikum. Gamespot er með frétt um að EA neitaði að tjá sig um þetta mál, sem gaf til kynna að McGee hafi líklega sagt eitthvað sem átti ekki að heyrast strax. Það er óvíst eins og er hvort að PC eigendur fá eintak af American McGee’s Alice eins og PS3/Xbox 360 eigendur.

“There will be DLC in the form of dresses that the player can download and Alice can wear,” he told us. “Those dresses come with special abilities and enhance how you play through the game.

“There’s also going to be pretty significant release which is the original Alice brought over to the consoles so that a person who’s purchased Madness Returns gets a download code and is able to bring Alice 1 onto their console and play through the entire original game alongside playing Madness Returns.”

Upprunalega Alice leikurinn var vanmetinn leikur og yrði það frábært fyrir leikjaunnendur að fá tækifæri til að getað spilað hann uppí sófa á PS3/360.

Alice: Madness Returns er dagsettur þann 16. Júní næst komandi og verður fáanlegur á PC/Mac/PS3/Xbox 360.

Kv.
GameTíví

Heimild: Evilavatar

Portal 2 fréttir

Í dag kemur út þrauta leikurinn Portal 2 á PC/Mac/PS3/Xbox 360 og fylgir eftir einum af besta leik ársins 2007 sem raðaði af sér verðlaunum og var hluti af ofur pakkanum sem var The Orange Box sem innihéllt Half-Life 2, Episode One og Episode Two aukapakkana ásamt Team Fortress 2 fjölspilunar leiknum og upprunalega Portal sem var rúsínan í pulsuendanum.

Portal 2 mun skarta 2-3 lengri spilun í gegnum sögu leiksins ásamt drjúgri Co-Op spilun með sinn eigin söguþráð.

Við ákváðum að taka saman nokkrar upplýsingar tengdar leiknum í tilefni útgáfu hans í dag,  fyrir PlayStation 3 eigendur mun þessi leikur marka stór tímamót og innihald stuðning við Steam þjónustu Valve hönnuða leiksins. Eitt af því sem gerir PS3 útgáfuna svona ómótstæðilega er auðvitað, Steam þjónustan á PS3 og að fá leikinn einnig frítt á PC/Mac með.

Portal 2 mun verða einn af þeim nýrri leikjum sem mun gera kröfu að PlayStation 3 eigendur hafi uppfært uppí Firmware 3.60 sem kom út síðasta Mars og var hluti af vörn Sony gegn sjóræningjunum.

Fyrir þá sem eru að kaupa leikinn á PlayStation 3 og hafa í huga að nýta sér alla þá möguleika sem eru í boði, þá eru nokkrir hlutir til að hafa í huga og munum við reyna að taka það helsta fyrir hérna.

Í PS3 hulstrinu mun verða Steam kóði sem er notaður til að sækja leikinn á PC/Mac. Til að tengja saman PSN og Steam prófílinn þarf að gera nokkra hluti og er hérna röð þeirra fyrir neðan.

Á PlayStation 3 vélinni…

1. Verið viss að vera búin að skrá ykkur fyrir PSN aðgangi áður.
2. Þegar Portal 2 er spilaður, ýtið á SELECT takkann til að opna fyrir Steam viðmótið.
3. Fylgið leiðbeiningunum á skjánum. Skráið inn notendanafn og leyniorð ykkar á Steam. Eða búið til frían aðgang.
4. Þegar hefur verið skráð sig inn, er hægt að skoða Achievements, Steam News, og vinalistann ykkar ásamt að spjalla við vinina.

Á PC/Mac vélinni…

1. Skoðið Steam kóðann á Portal 2 PS3 eintaki ykkar, eins og er á myndinni fyrir ofann.
2. Verið viss um að Steam forritið er uppsett nú þegar, annars farið á www.steampowered.com og sækið það.
3. Farið í Games valseðilinn og veljið Activate Product.
4. Skráið inn kóðann ykkar.

Með að tengja PSN og Steam aðgangana saman…

Geta leikmenn skráð sig inná Steam hvenær sem er, og geta notað Save prófílinn sem var búin til á PS3 eða öfugt.

Við vonum að þetta hjálpi aðeins ykkur og við vonum að þið skemmtið ykkur í leiknum, við erum búnir að vera talsvert spenntir yfir þessum.

Kv.
GameTíví

Nýjar myndir og kynning úr The Elder Scrolls V: Skyrim

RPG leikur Bethesda Softworks, The Elder Scrolls V: Skyrim fékk í gær talsverða kynningu á helstu leikjavefsíðunum um allan heim og erum við með tengla á allt það helsta fyrir ykkur að lesa yfir eins og við gerðum.

Í tilefni kynningu Bethesda voru gefnar út glænýjar myndir af leiknum sem sýna umhverfi Skyrim ásamt þeim persónum sem þú gætir rekist á.

Leikurinn stefnir í að verða einn af epískari leikjum ársins og miðað við lesturinn um leikinn þá virðist Bethesda hafa eytt talsverðum tíma í að hlusta á aðdáendur þeirra og hugsað um hvernig er best að færa seríuna fram á við.

Dýrið mun síðan skella á þann 11.11.2011 og koma út á PC/PS3/Xbox 360.

Kv.
GameTíví